Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Síða 27
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994
39
Meiming
Fréttir
Verk Finnboga á Kjarvalsstööum. „Fljótt á litið eru þetta bara ósköp venjulegar skólplagnir en þegar nánar
er að gáð kemur í Ijós að um eins konar hljóðfæri er að ræða.“ DV-mynd BG
Frumstælt
Helgí Jónsson, DV, Ólafefirði;
Ilraðfrystihús Ólafsfjarðar varð
reyklaust um áramótin og mun þaö
vera fyrsta frystihúsiö á landinu
sem verður algjörlega reyklaust.
Ákvörðun ura að reykja ekki innan
veggja fyrirtækisins var tekin fyrr
í vetur og var nokkur aðdragandi
að því, m.a. var Halldóra Bjarna* •
dóttir frá Krabbameinsfélaginu
fengin til að halda námskeið.
Karl Guðmundsson, fram-
kvæmdasijóri HÓ, segir þaö stefnu
íyrirtækisins að breyta ímynd þess
- hér sé um fy rirtæki í matvælaiðn-
aði að ræða ogþað samræmist ekki
starfseminni að starfsfóikið reykiá
vinnustað.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRADA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
tfsr0"
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
seiðmagn
- Finnbogi Pétursson á Kjarvalsstöðum
Finnbogi Pétursson hefur á síðustu
árum notið sérstöðu á innlendum
myndlistarvettvangi vegna þess
hvemig hann hefur tvinnað saman
myndlist og tónlist og jafnframt
listina og tæknina. í inngangi skrár
sýningar Finnboga er nú hefur ver-
ið opnuö á Kjarvalsstöðum, íjallar
HaUdór Björn Runólfsson um sam-
þáttun listgreina frá fomu fari og
finnur samsvörun með list Finn-
boga hjá þrakverska skáldinu og
hljóðfæraleikaranum Orfeifi og
rekur samþáttunarhugmyndir
listamanna á borð við Shelley,
Rimbaud, Kandinsky, Skrjabín,
Wagner og Nam June Paik. Þar er
í flestum tilvikum um að ræða hug-
myndir um að litir eigi sér sam-
svarandi tón og öfugt. Finnbogi
hefur strangt til tekið ekki fjallað
um slíka samsvörun í list sinni.
Að mínu mati má allt eins tengja
listiðkun hans við það uppgjör við
módemismann sem átti sér stað
fyrir u.þ.b. áratug en á rætur m.a.
í dadaismanum og hugmyndalist-
inni. Bæði í Evrópu og Bandaríkj-
unum komu fram á sjónarsviðið
vídeó- og gemingalistamenn sem
byggðu að töluverðu leyti verk sín
á tæknilegri þekkingu. Örtölvu-
byltingin fyrir rúmum áratug átti
þama aö sjálfsögðu nokkurn þátt,
en einnig svonefnd „iðnaðarmenn-
ing“ er spratt upp úr borgaralegri
firringu pönksins. Viðleitnin var
ekki einungis sú að tvinna saman
listina og tæknina að hætti Leon-
ardos, heldur einnig að senda skýr
skilaboð til ómannlegs samfélags
sem studdi listir og menningu á
meðan það sópaði kjamaúrgangi
undir mottuna. Bandaríski gem-
ingalistamaðurinn Mark Pauline
bjó þannig til vélmenni sem hann
lét ráðast hvert á annað á víggirtu
svæði.
Eins konar hljóðfæri
Finnbogi Pétursson hefur að
sönnu ekki verið ýkja herskár í
sinni list, en sagt er að allar tækni-
framfarir byggist í raun á því hvort
þær nýtist í hemaði. Allt um það
hafa sum verka Finnboga verið
býsna ágeng, s.s. rör er hann lét
sveiflast í vegg fyrrum frystiklefa
í hinu nýstofnaða Listasafni Akur-
eyrar á opnunarsýningu þess. Önn-
ur eftirminnileg verk Finnboga frá
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
síðustu árum, s.s. „Hringur" - verk
sýnt í Nýlistasafninu 1991 er sam-
anstóð af sínustóni úr hátalara sem
gáraði vatn og gerði skuggamynd -
og „Pendúlar", sýnt í Listasaftn ís-
lands sl. sumar á sýningunni Bo-
realis, er samanstóð af hátölurum
sem festir vom á endann á járnrör-
um og sveifluðust yfir hljóðnemum
á gólfi - vekja fremur dulúð og
hafa til aö bera óskilgreint frum-
stætt seiðmagn sem maður tengir
alls ekki tækni þó svo að vírar og
tengingar séu áberandi og stór
þáttur í útlitinu. Hið sama má segja
um það verk sem Finnbogi hefur
nú sett upp á 25 metra löngum vegg
miðsalarins á Kjarvalsstöðum.
Fljótt á litið eru þetta bara ósköp
venjulegar skólplagnir, en þegar
nánar er að gáð kemur í ljós að hér
er um eins konar hljóðfæri að
ræða. Finnbogi hefur hér raðað
upp sjö mislöngum plaströrum sem
eru rofin á mismunandi stöðum.
Samkvæmt sýningarskrá varpa
tveir forritar út átta púlsum tengd-
um í hátalara aftast í hverju röri,
en stuttbylgjuskali útvarpssendis
er látinn mynda hljóðin sem kýld
eru með áslætti gegnum rörin. Hér
hefur Finnboga enn einu sinni tek-
ist að virkja umhverfið á útsjónar-
saman hátt. Efniviðurinn er hvers-
dagsleg iðnaðarframleiðsla líkt og
áður, en útkoman er seiðmagnað
verk, knúið dularfullum krafti.
Slæm villa slæddist inn í fyrirsögn
greinar minnar um Geoffrey
Hendricks. Rétt er fyrirsögnin
þannig: „Lífsgaldur Geoffrey
Hendricks".
Launagreiðendur - Launþegar
Staðgreiðsla
af hlunnindum
Kostnaður
vegna ferða til og
frá vinnustað
Kostnað launþega við ferðir til og frá vinnustað
ber að telja til persónulegra útgjalda. Greiði vinnuveitandi
þennan kostnað að öllu leýti eða að hluta skal telja þau persónulegu útgjöld
sem þannig sparast launþega til staðgreiðsluskyldra tékna hans.
Greiði vinnuveitandi kostnað vegna ferða launamanns til og frá vinnustað ber
að standa skil á staðgreiðslu af þeim greiðslum.
Ókeypis flutning til og frá vinnustað ber að meta til staðgreiðsluskyldra
hlunninda. Á svæðum þar sem almenningsvagnar ganga skal miða hina
skattskyldu fjárhæð við vagn-
fargjöldin á hverjum tíma
(á Stór-Reykjavíkursvæði
skal miða við kostnaðarverð
mánaðarkorta).