Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Blaðsíða 11
I MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994
11
DV
Fréttir
Atvirmuleysi Dagsbrúnarmanna nálgast 20 prósent:
Geturekki
gengið lengur
segir Guðmundur J., ræðumaður á útifundi um atvinnumál á morgun
„Það eru um það bil 4 þúsund Dags-
brúnarmenn á vinnumarkaðnum.
Af þeim eru nú um 700 án atvinnu
og þeim íjölgar um 50 á viku. Þetta
getur bara ekki gengið svona leng-
ur,“ sagði Guðmundur J. Guðmunds-
son, formaður Dagsbrúnar, í samtali
við DV í gær.
Guðmundur J. verður annar
tveggja ræðumanna á útifundi um
atvinnuástandið sem boðaöur hefur
verið á Austurvelli kl. 15 á morgun.
Það eru verkalýðsfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu og ýmis félög opin-
berra starfsmanna sem að fundinum
standa.
Guðmundur sagði að í fyrra hefði
tala atvinnulausra Dagsbrúnar-
manna farið hæst í 500 manns, það
var í febrúarmánuði.
„Ég óttast að talan veröi komin í
eitt þúsund manns um miðjan febrú-
ar næstkomandi," sagði Guðmund-
ur.
Hann sagði að allt árið 1992 hefðu
910 Dagsbrúnarmenn fengið at-
vinnuleysisbætur, samtals rúmar 99
milljónir króna. Arið 1993 hefðu 1182
fengið atvinnuleysisbætur, samtals
162 milljónir króna. Á þessu gætu
menn séð hversu alvarleg staðan
væri nú.
„Það versta við þetta allt saman er
að sjá vonleysið, sem hefur heltekið
fólk, og kvíðann. Margir hafa misst
íbúðir sínar og aðrir eru um það bil
að missa allt sitt, allt vegna atvinnu-
leysis eöa stórminnkandi vinnu. Yf-
irvinna þekkist varla lengur. Það er
ekki hægt að sitja þegjandi hjá leng-
ur. Þess vegna höldum við þennan
útifund á AusturveUi á morgun. Við
beinum máh okkar til Alþingis og
ríkisstjómar. Það er stjómvalda að
gera eitthvað í atvinnumálunum. Eg
er alveg sannfærður um það að ef
við missum atvinnuleysiö niður í 10
prósent eða einhvern punkt nærri
þeirri tölu náum við okkur ekki upp
aftur. Þá sitjum við fastir th fram-
búðar í tveggja stafa tölu eins og
margar Evrópuþjóöimar. Guð hjálpi
okkur þá,“ sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson. -S.dór
Guðmundur J. Guðmundsson fór i Alþingishúsið i fyrradag og ræddi við
þingmenn. „Svona til að undirbúa þá fyrir útifundinn," sagði hann í sam-
tali við DV. DV-myndir GVA
Alþýðubandalagið:
Ákveðið í næstu viku
Kjördæmisráð Alþýðubandalags-
ins í Reykjavík hittist um miðja
næstu viku th að ákveða hvemig
raöað verður í sæti Alþýðubanda-
lagsins á sameiginlegum hsta minni-
hlutaflokkanna í borgarstjóm í vor;
hvort um handröðun, forval eða
skoðanakönnun verður að ræða.
Nokkur ágreiningur hefur verið
mihi hinna mismunandi arma
flokksins um hugsanlega frambjóð-
endur flokksins. Fyrirfram var búist
við aö Guðrún Ágústsdóttir og Art-
húr Morthens yrðu fuhtrúar flokks-
ins á hstanum en nú þykja einnig
koma th áhta Garðar Mýrdal eðhs-
fræðingur og Ámi Þór Sigurðsson
kennari. -GHS
Auglýsing frá Seðlabanka fslands
í Seðlabanka íslands eru tvær stöður bankastjóra lausar. Samkvæmt lögunj um Seðla-
banka íslands skipar ráðherra í stöðu bankastjóra að fengnum tillögum bankaráðs.
Bankaráð auglýsir hér með eftir umsóknum um fyrrgreindar stöður til undirbúnings
tillögugerðar. I umsókn skal ítarlega greint frá menntun og starfsferli umsækjanda.
Umsóknir sendist Seðlabanka íslands, Ágústi Einarssyni, formanni bankaráðs, Kalk-
ofnsvegi 1, 150 Reykjavík, fyrir 4. mars 1994.
Reykjavík, 20. janúar 1994
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Bankaráð
<& & & & & &
|--||—||—1| | Rúmgóður fjölskyldubíll á verði smábíls -
HLJI 916.000,- kr! ágö,una
^euardetf^NUS!
HYunoni
.,. til framtíðar
Bílarnir fást til afhendingar strax!
Verið velkomin - Gerið verðsamanburð og reynsluakið
HYUNDAI PONY árgerð '94.
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 68 12 00
BEINN SÍMI: 3 12 36
<a>
<s>