Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Side 14
14
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NLJMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblaö 180 kr. m/vsk.
Hvað um verslunarfrelsið?
Þaö vakti mikla athygli þegar Hæstiréttur komst aö
þeirri niðurstöðu að ráðherrum hefði verið óheimilt að
banna innflutning Hagkaups á danskri skinku á síðast-
hðnu hausti. Um þennan innflutning stóð nokkur styr
og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra hélt því
meðal annars fram að lögin bönnuðu ekki skinkukaupin
og talaði þá í anda þess frjálsræðis sem stefnt er að í
verslun og viðskiptum.
Það varð hins vegar ofan á í ríkisstjóminni, einkum
fyrir atbeina þriggja sjálfstæðisráðherra, að stöðva inn-
flutninginn með þeim rökum að lögin bönnuðu hann og
íslensk landbúnaðarframleiðsla stæðist ekki samkeppn-
ina.
Hagkaup skaut máhnu til dómstóla sem nú hafa sagt
sitt. Stjómvaldsaðgerðimar vora ólögmætar, innflutn-
ingurinn var löglegur.
Aht hefur þetta vakið verðskuldaða athygh og þá ekki
síður viðbrögð þeirra ráðamanna sem stóðu að banninu
og studdu það. Þeir hafa gert lítið úr dómsniðurstöð-
unni, nánast tahð hana marklausa, og jafnvel fullyrt að
breytingunum á lögunum, sem úrshtum réðu, hafi verið
laumað í gegnum þingið.
Nú hefur verið boðað að stj ómarflokkamir muni sam-
eiginlega leggja fram frumvarp til lagabreytingar sem
tekur af ahan vafa um að landbúnaðarráðherra hafi
óskorað og afdráttarlaust vald til að stöðva innflutning
á þeim matvælum sem ógna einokunaraðstöðu íslenskrar
landbúnaðarframleiðslu.
Fuhtrúi Alþýðuflokksins, Össur Skarphéðinsson, lýsti
yfir stuðningi við þessa málsmeðferð, þegar búvörulögin
vom rædd á Alþingi á dögunum. Ef það fer eftir mun
þetta frumvarp mæta lítilli andstöðu á þingi og er þá svo
komið að enginn stjómmálaflokkur sér ástæðu th að
taka upp hanskann fyrir neytendur og viðskiptafrelsi.
Máhð snýst ekki um Hagkaup, eina sendingu af dönsku
svínakjöti né heldur túlkun á óljósri lagagrein. Máhð
snertir þá stefnu og þá póhtík hvort verslun skuh gefin
frjáls eða ekki. íslendingar sóttust efdr og fengu aðhd
að Evrópska efnahagssvæðinu og em aðUar að GATT-
samkomulaginu sem hvort tveggja lýtur að frjálsum við-
skiptum landa í milh.
Þá þarf ekki að nefna þá staðreynd að framfarir og
sókn íslenskra atvinnuvega undanfama áratugi er beinn
árangur af auknu viðskiptafrelsi, afnámi hafta og
skömmtunar á inn- og útflutningi. Verslunarfrelsið færði
launþegum, almenningi og neytendum betri, ódýrari og
fjölbreyttari vörur og þjóðinni allri efnahagslegt sjálf-
stæði.
Á þeim tímum sem berjast þurfti fýrir frjálsri verslun
var auðvitað ærið nóg af úrtölumönnum. Iðnaðurinn í
landinu fór tfl dæmis ekki varhluta af innflutningi á
ódýrum samkeppnisvörum og sjávarútvegsmenn hafa
eklti verið par hrifinr af auknu fijálsræði í útflutningi á
sjávarafurðum. Engu að síður létu fylgismenn fijálsræð-
isins ekki hræða sig frá skoðunum sínum og stefnu og
þær urðu ofan á áður en yfir lauk.
Nú er tekist á um frjálsræði í sölu landbúnaðarmat-
væla og þá bregður svo við að stærstu stjpmmálaflokk-
amir og nánast hver einasti alþingismaður er því fýlgj-
andi að hér ríki áfram einokun og ríkisskömmtun á þeim
vettvangi. Heldur er þetta nöturleg staðreynd, ekki síst
í ljósi þess að frelsi í viðskiptum er forsenda fyrir því
að landbúnaðurinn losni úr þeim álögum sem hann er í.
Ehert B. Schram
„Auka má vöruflug milli Ameriku, Evrópu og Asíu,“ segir m.a. í greininni.
Markaðssetning á Keflavíkurflugvelli:
Hefjumst handa
Lokiö er viðræðum íslands og
Bandaríkjanna um vamarsam-
starfið. Fréttir og umræður um
hvers væri að vænta höfðu valdið
þeim áhyggjum sem eiga afkomu
sína undir niðurstöðunni. Óvissa
þeirra stóð of lengi og fagnaðarefni
að hún er afstaðin.
Fullt samkomulag er um mat á
viðfangsefninu sem er gæsla örygg-
ishagsmuna íslands, Bandaríkj-
anna og Norður-Atlantshafsbanda-
lagsins. Bætt samskipti ríkjanna
umhverfis þau svæði sem fylgst er
með frá íslandi hafa dregið veru-
lega úr þörf fyrir viðbragðsstöðu
og eftirhti með umferð skipa og
flugvéla. Þessa sér þegar merki í
umsvifum vamarliðsins.
Samdráttur
Leitað verður sparnaðarleiða í
rekstri vartiarliösins. Rockville-
stöðin og SOSUS-stöðin á Stafnesi
verða lagðar niður enda hafa ný
fjarskipta- og ratsjárkerfi leyst þær
af hólmi. Þær em mannaðar her-
mönnum eingöngu, en fá þjónustu
deilda sem íslendingar starfa við.
Viö nýja ratsjárkerfið vinna þeg-
ar margir íslendingar, ráðnir á
undanfomum árum og þjálfaðir til
sérhæfðra starfa, að auki þjóna því
íslensk verkfræðifyrirtæki sem
sérhæfðir og sérfróðir verktakar.
Fjölgun hefur því þegar átt sér stað,
en brotthvarf eldri stöðva og sparn-
aðarviðleitni munu leiða til ein-
hverrar fækkunar.
Ný tækifæri
Stefnt verður að því að ísland
axh aukna ábyrgð í leitar- og björg-
unarstarfi. Hér er hreyft við lang-
þráðu áhorfsmáh okkar islendinga
í vamarsamstarfinu. Það fehur vel
að ábyrgðarhlutverki okkar á al-
þjóðlega íslenska flugstjómar-
svæðinu. Ekki síst tryggir það sam-
hæfingu leitar- og björgunaraö-
gerða vegna sjávarháska eða flug-
slysa við strendur landsins, á norð-
KjáUarinn
Árni Ragnar Árnason
alþingism. Sjálfstæðisflokksins
fyrir Reykjaneskjördæmi
urhöfum eða í óbyggðum íslands,
jafnvel suðvestur Grænlands.
Landhelgisgæslan er án efa best
til þessa fahin. Undirritaöur hefur
lagt það til að flytja hana th Kefla-
víkur, vegna nálægðar við fjölsótt
fiskimið og fiölfamar siglingaleiðir
sem reynst hafa hættulegar, svo og
til að treysta samhæfingu við
björgunarsveit vamarhðsins.
Nefnd forsætisráðhema um flutn-
ing stofnana út á land hefur og
gert tillöguna að sinni. Hefia verð-
ur án tafar undirbúning að flutn-
ingi Landhelgisgæslunnar th
Keflavíkur, taka nauðsynlegar
ákvarðanir um tækjakost hennar
og hyggja að aðstöðu á Keflavíkur-
flugvelh og hafnarsvæðum Kefla-
víkur.
Ný viðhorf
Keflavíkurflugvöhur er vannýtt-
ur, einnig er vannýtt geta og kunn-
átta fyrrverandi starfsmanna
vamarhðsins og verktaka þess.
Auka má vöruflug mihi Ameríku,
Evrópu og Asíu. Leiguflug með far-
þega og vömr. Hefia þjónustu og
viðskipti við ferjuflug og annað
einkaflug. Koma upp starfsemi sem
mundi leiða th aukins flugreksturs j
og verða heimamarkaður hans, svo
sem fríiðnaðarsvæði. Þjónustumið-
stöð Flugleiða má tengja sérstaka
fríhöfn - varahlutamiðstöð fyrir
flugvélar. Æfinga- og þjálfunar-
miðstöð fyrir flugáhafnir. Sérstök
thboð og meiri viðskipti viö farþega
og áhafnir. Aflétta einokun og póh-
tískri ráðsmennsku. Skapa sam-
keppnishæfni í þjónustu og verð-
lagi. Tengja við innanlandsflug.
Kynna og markaðssetja Keflavík-
urflugvöh og Suðumes.
Brýnast af þessu er að ljúka lögg-
jöf um fríiðnaðarsvæðið. Nærri ár
er frá því að ríkissfiómin sam-
þykkti thlögur nefndar á vegum
sfiómvalda um stofnun þess, þ.á
m. um lagasetningu o.m.fl. sem enn
er ólokið.
Árni Ragnar Árnason
„Brýnast af þessu er að ljúka löggjöf
um fríiðnaðarsvæðið. Nærri ár er frá
því ríkisstjórnin samþykkti tillögur
nefndar á vegum stjórnvalda um stofn-
un þess, þ.á m. um lagasetningu, o.m.fl.
sem enn er ólokið.“
Skoðanir annarra
Lífeyrisréttur er eign
„Það á að vera á valdi hvers einstaklings aö taka
ákvörðun um það, hvar hann telur hag sínum bezt
borgið.... Iifeyrisréttur í lífeyrissjóði er eign, sem
einstaklingur hefur safnað upp með greiðslum úr
eigin vasa og með samningum við vinnuveitanda
sinn um greiðslur í lífeyrissjóð. Greiðslur atvinnu-
rekenda í lífeyrissjóði em hluti af starfskjörum við-
komandi starfsmanns. Þeirri eign, sem þannig verð-
ur th með spamaði á launþegi að geta ráöstafað sjálf-
ur, þ.e. hvar hún sé bezt geymd.“
Úr forystugrein Mbl. 23. jan.
Fráleit viðbrögð tveggja ráðherra
„Þvi miður veröur það að segjast um samstarfs-
flokk Alþýðuflokksins í ríkissfióm, að ráðandi öfl í
Sjálfstæðisflokknum hafa stutt óbreytt landbúnaðar-
kerfi að mestu. Núverandi ríkissfióm Alþýðuflokks
og Sjálfstæðisflokks hefur haft ahar forsendur th að
breyta þjóðfélaginu th opnunar, markaðslögmála og
nýrra atvinnuhátta. Framsóknarmenn Sjálfstæðis-
flokksins hafa því miður tafið fyrir þessari framþró-
un. Viðbrögð tvegjja ráðherra Sjálfstæðisflokksins
viö dómi Hæstaréttar eru fráleit."
Úr forystugrein Alþbl. 25. jan.
Nauðsynlegur samráðsvettvangur
„Það má fuhyrða að íslendingar hafa notið mjög
góðs af norrænu samstarfi í utanríkismálum gegnum
árin. Náinn samráðsvettvangur sfiómmálamanna
frá Skandinavíu hefur veriö okkur nauðsynlegur og
norrænt samstarf hefur skapað þennan grundvöh.
... Norræn samvinna og trúnaður við nágrannaþjóð-
imar á Norðurlöndum er einn af homsteinum utan-
ríkisstefnu íslendinga og mun verða svo áfram, þótt
aðstæður séu aðrar og heimsmyndin önnur en áður.“
Úr forystugrein Tímans 25. janúar.
-r