Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1994, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1994, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 1994 Fréttir Mætti ekki í réttarhöld í þjófhaðar- og ölvunarakstursmáli eftir að honum var sleppt úr haldi: Lögreglan leitar að Steingrími Njálssyni - rannsóknRLRílikamsárásarmálinuerálokastigi Lögregluyfirvöld leita nú aö kyn- feröisafbrotamanninum Stein- grími Njálssyni í kjölfar þess að hann mætti ekki í réttarhald vegna ákæru í þjófnaöar- og ölvunarakst- ursmáli sem Héraösdómur Reykja- víkur hefur til meöferðar gegn hon- um. Þegar síöast fréttist lágu ekki fyrir upplýsingar um hvar Stein- grímur hefur haldið sig en Héraðs- dómur hefur gert ráöstafanir til að hafa uppi á honum þannig að unnt verði að freista þess að leiða hann fyrir dómara. Á miðvikudag í síðustu viku losn- aði Steingrímur úr haldi í Síðum- úlafangelsinu eftir aö hafa setið í nokkrar vikur í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegs líkamsárásarmáls. Héraðsdómur hafði fallist á kröfu RLR um framlengingu á gæslu- varðhaldinu en þá ákvörðun kærði Steingrímur til Hæstaréttar sem féllst á rök hans og hnekkti niður- stöðu héraðsdóms. Steingrími var því sleppt út á miðvikudag í síðustu viku. í þvi máli var Steinrímur grunaður um að hafa sært karl- mann illa á kynfærum. Það mál er ennþá í rannsókn hjá Rannsóknar- lögreglu ríkisins og hefur Stein- grímur ekki viðurkennt þaö sem hann er grunaður um. Á fimmtudag í síðustu viku átti Steingrímur að mæta í yfirheyrslu í Hérðsdómi Reykjavíkur í öðru sakamáli en þá lét hann ekki sjá sig. Hlutaðeigandi aöilum í Héraðs- dómi barst ekki vitneskja um aö Steingrímur væri þá laus úr gæslu- varðhaldi fyrr en þinghaldið átti að fara fram og sakborningurinn mætti ekki. í því máli er Steingrím- ur sakaður um þjófnað í söluskála Shell aö Sleitustöðum í Skagafirði og tvö ölvunarakstursmál. I ööru þeirra er honum gefið að sök að hafa ekið ölvaður frá borði farþega- feijunnar Norrænu í Danmörku þann 5. júní 1993 en í hinu er hann ákærður fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis skammt frá Akra- nesi á Þorláksmessu árið 1992. Steingrímur hefur áður hlotið tugi dóma fyrir ölvunarakstur. Eför að hann losnaði úr fangelsi eftir af- plánun á dómi vegna kynferðis- legrar áreitni við lítinn dreng viö Skarphéðinsgötu fékk hann í hend- ur ökuskírteini semgiltitiltíuára. í þvi máh þar sem Steingrímur var kærður fyrir líkamsárás á framangreindan karlmann hefur RLR að undanfomu unnið að þvi að fá fram ýmsar tæknilegar niður- stöður sem sendar verða ríkissak- sóknara á næstunni. Málið er langt komið h)á RLR og er niðurstöðu að vænta hjá ríkissaksóknara á næstu vikum. -Ótt Ellefu keppa um titilinn fegurðar- drottning Suðurnesja Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum; Fegurðardrottning Suðumesja verður kjörin í félagsheimilinu Stap- anum í Njarövík 13. mars. Þá verður Fegurðarsamkeppni Suðurnesja háö og sú sem sigrar hlýtur glæsUeg verðlaun, m.a. 90 þúsund krónur, skartgripi og önnur verölaun, auk þess sem hún keppir fyrir hönd Suð- umesja um titUinn fegurðardrottn- ing íslands. I Stapanum á laugardag velja stúlk- umar sjálfar vinsælustu stúlkuna og einnig veröur kjörin ljósmyndafyrir- sæta Suðumesja. Ellefu stúlkur víðs vegar af Suðurnesjum keppa um tití.1- inn og hafa verið í strangri þjálfun hjá Agústu Jónsdóttur, umsjónar- manni keppninnar. LiH f W JSS 11 'J H| ” r \ i ■I Wm ■ í ; í %' V «1 Wa % . 9 K <Z3 M Stúlkurnar sem taka þátt í keppninni eru: Gunnur Magnúsdóttir Keflavik, Maria Erla Pálsdóttir, Njarðvík, Helga Dögg Jóhannsdóttir Grindavik, Sunneva Sigurðardóttir Keflavík, Sigriður Oddsdóttir Njarðvík, Birgitta ína Unnars- dóttir Garði, Birgitta Vilbergsdóttir Keflavík, Rakel Þorsteinsdóttir Keflavík, Sólrún Guðmundsdóttir Keflavík, Karl- otta Malony Keflavík og Lovísa Guðmundsdóttir Njarðvik. DV-mynd Ægir Már Tómas Gunnarsson lögmaður krefst svara við bréfi Hrafhs: Hætta á að lögmenn taki dómsvaldið í sínar hendur - segiríathugasemdLögmannafélagsins Tómas Gunnarsson lögmaður hef- ur sent öllum hæstaréttardómumm bréf þar sem hann ítrekar þá ósk sína að fá endurrit af bréfi því sem Hrafn Bragason, forseti Hæstaréttar, skrif- aði Lögmannafélaginu og Héraðs- dómstólunum og skýrði fyrra bréf sitt með samantekt á kærum lög- manna til Hæstaréttar. í bréfi sínu segir Tómas að hann fari fram á afrit af bréfum Hæstarétt- ar þar sem hans sé getið í þeim báð- um. Segir hann að bæði bréfin séu leynibréf gagnvart sér. Brýnt sé að hann fái upplýsingar um afstöðu Hæstaréttar og einstakra dómara réttarins til bréfanna sem forseti Hæstaréttar hefur skrifað þar sem hann hyggist flytja kærumál fyrir Hæstarétti. „Er þaö vegna þess að ég tel að með ódagsetta bréfinu hafi- forseti Hæstaréttar haft bein afskipti af störfum héraðsdómstólanna, sem eiga lögum samkvæmt að vera sjálf- stæðir og óhlutdrægir. Engum, hvorki stjórnvaldi, dómara eða öðr- um, á að líðast það,“ segir Tómas í bréfi sínu. í fyrra bréfinu sagði Hrafn að mála- tilbúnaður sumra lögmanna styddi þvi miður það álit margra að rétt væri að fella heimild til kæru niður. Um þetta segir Tómas að óviðsættan- legt sé „að opinber stofnun, sem ekki hefur lagasetningarvald, skuh láta slíka ályktun frá sér fara. Athugasemd Lögmannafélagsins Þá hefur Lögmannafélag íslands sent öllum lögmönnum athugasemd við fyrra bréf Hrafns. Þar segir að skýringu á óþarfa málskotum til Hæstaréttar sé meðal annars að finna í því að Hæstiréttur standi sig ekki í útgáfu á dómum sem þar ganga en Hæstarétti ber að gefa út alla dóma á sínu dómstigi. Þetta hafi „leitt til óþarfa málskota til Hæsta- réttar, þar á meðal kærumála." Ennfremur segir að það geti skapað hættu á að lögmenn taki í raun dóms- valdið í sínar hendur sé þeim ætlað að ákveöa hvaða dómsathöfn fari til Hæstaréttar og hundsa vilja umbjóð- enda sinna. Telur stjórn Lögmanna- félagsins þetta jafnframt geta heft réttarþróun í landinu. Segir jafnframt í athugasemdinni að heppilegra væri að viðræður lög- manna og dómara færu fram á sam- eiginlegu málþingi dómara og lög- manna. Loks er tahð að óheppilegt hafi verið að nafngreina einstaka lög- menn í samantektinni. Það sé ekki til þess fallið „að treysta samband lögmanna og Hæstaréttar, enda geti slík nafngreining kastað rýrð á lög- mennina sem fyrir verða." -pp Stuttar fréttir Óperan án starfsmanna Öllu starfsfólki Óperunnar í Reykjavík hefur verð sagt upp störfum vegna fjárhagserfiðleika. Að sögn Morgunblaðsins á aö endurskipuleggja reksturinn. Fullfær tryggingaf élög Tryggingafélögin í landinu telja sig fullfær um að taka við hlut- verki Húsatrygginga Reykjavík- ur. Sjónvarpið greindi frá þessu. Embættismenn valdir Borgarráð ákvað í gær að ráða Láru Bjömsdóttir í stöðu félags- málastjóra Reykjavlkurborgar. Þá mælti meirihluti ráðsins með því að Hjörleifúr B. Kvaran yrði ráðinn borgarlögmaður. 40 milljarðar afskrifaðir Lánastofhanir lögðu um 40 miUjarða inn á afskriftareikninga á tímabilinu 1988 til 1992. Sjón- varpiö greindi frá þessu. Villverðakona íslenskur karlmaöur, búsettur í Sviþjóð, vill láta breyta sér í konu. Yfirvöld þar vilja hins veg- ar ekki borga fýrir aögerðina nema hann breyti líka um ríkis- fang. Timinn segir afstöðu Svía vera skýlaust mannréttindabrot. Konur látnar vikja Framkvæmdasfjóri Jafnréttis- ráðs segir að verið sé að ýta kon- um út af vinnumarkaðinum í at- vinnuleysinu. Sjónvarpið greindi Jrá þessu. íslandbarágóma Eftir að Sviþjóð, Finnland og Noregur höföu gengið frá samn- ingi viö Evrópusambandiö á dög- unum var rætt um það í Brussel að bjóða íslendingum aðild. Skv. Tímanum var málið ekki kynnt fyrir íslenskum stjórnvöldum. Sýktir kettór og hundar Um sjötti hver hundur og kött- ur, sem kemur í einangrunar- stöðina í Hrísey, hefur reynst sýktur. Frá þessu var greint í Dýralæknaritinu. Starfsmönnum vaktfyrirtækis- ins Vöktunar var í gær gert að breyta lítillega fatnaði sínum sem þótti oflíkur fótum lögreglunnar. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.