Dagblaðið Vísir - DV

Dagsetning
  • fyrri mánuðurmars 1994næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    272812345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    272829303112
    3456789

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1994, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1994, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 1994 17 Fréttir Flyst bresk skemmtibáta- verksmiðja til Akraness? agurður Sverrissan, DV, Akranesi: Svo kann að fara að Cleopatra Cruisers, kunn skemmtibátaverk- smiðja í Essex í Englandi, flytji starfsemi sína til Akraness á næstu mánuðum að sögn Nick Sweeney, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Sweeney var á Akranesi i síðuátu viku og ræddi við þá Gunnar Leif Stefánsson og Rúdolf Jósefsson vegna málsins. Þeir Gunnar og Rúdolf hafa þegar keypt mót og framleiðslurétt á þeirri tegund báta sem fyrirtækið hefur selt mest af á undaníomum árum og samningar um kaup á mótum af nýrri og stærri tegund skemmtisiglingabáta fyrirtækisins eru nú í bígerð. Þeir félagar reikna með að 6-10 manns fái vinnu við bátasmíðina þegar hún fer í gang en starfsmenn gætu orðið mun fleiri færi svo að Cleopatra Cruis- ers færði starfsemi sína alfarið til Akraness. Þegar DV spurði Sweeney hvaö kæmi til að rótgróið breskt fyrir- tæki sýndi því áhuga að flytja starf- semina til Islands svaraði hann að þar kæmu fyrst og fremst til per- sónulegar ástæður sem hann vildi ekki rekja nánar. Um 90% fram- leiðslu fyrirtækisins hefur farið á Evrópumarkað. Markaður fyrir þessa báta hefur verið stöðugur í Evrópu og Gunnar Leifur og Rúdolf vona að selja megi þessa báta hér á landi til aðila sem hafa áhuga á að stunda sjóstanga- veiði með ferðamenn. Rúdolf, Sweeney og Gunnar Leifur við Akraneshöfn. Sweeney heldur á bæklingi frá Cleopatra Cruisers þar sem sjá má mynd af þeim báti sem mest hefur verið framleiddur og seldur. DV-mynd Sigurður Konur á námskeiði i körfugerð, dúkamálun, dúkaprjóni og páskaföndri í félagsmiðstöð aldraðra. DV-mynd Sigrún Egilsstaöir: Kröftug starf semi eldri borgara Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egiisstöðum; Það gaf á að líta þriðjudaginn 1. mars í félagsmiðstöö aldraðra á Eg- ilsstöðum. Þar unnu um 20 manns að ýmis konar handverki. Þar var m.a. körfugerð og páskafondur. Þar var málað á dúka og prjónaðir dúkar. Þetta starf er á hverjum þriðjudegi síðdegis. Fyrr í vetur voru þama gerðar nokkrar dúkkuvöggur fyrir leikskólann á Egilsstöðum og sem þakklætisvott gáfu börnin í leikskól- anum nokkrar myndir sem prýða veggi félagsmiðstöðvarinnar. En þetta er minnsti hluti starfsem- innar. Nokkrir félagar stunda vatns- leikfimi í sundlaug Vonarlands tvisvar í viku. Aðrir sækja keramik- námskeið á Vonarlandi. Egilsstaða- bær greiðir leiðbeinendum en þátt- takendur borga efni og fyrir sund- laugina. Á fimmtudögum koma menn saman og spila bridge og lom- ber. Annan hvern laugardag er opið hús í félagsmiðstöðinni þar sem skemmtinefnd sér um dagskrá og veitingar. Þá má ekki gleyma kór eldri borgara sem nú hefur starfað í tvö ár og hyggst fara suður í vor á kóramót aldraðra. Formaður félagsins er Ólafur Stef- ánsson. Hann sagði mjög mikilsvert og til fyrirmyndar að bærinn kostaði leiðbeinendur. Félagsmiðstöðin var tekin í notkun vorið 1990 og sagði Ólafur að það hefði hleypt nýju blóði í starf félagsins. Fáskrúös^örður: - Lars Gunnarsson efstur Ægir Kristmason, dv, Fáskrúðsfiiði: ’ Þrif Unnsteirm Kárason verka- ________________________________ maður. Arnfnður Guðjonsdottir Prófkjör Framsóknarfélags Fá- verslunarmaður varð í fiórða sæti skrúðsfjarðar vegna sveitar- og í því fimmta Guðmundur Þor- stjómakosninganna í vor fór fram grímsson vörubifreiðarstjóri. um helgina, 5.-6. mars. Fyrstu þrjú sætin eru bindandi. I fyrsta sæti varð Lars Gunnars- Lars, Guömundur Þorsteinsson og son varaoddviti. Guðmundur Þor- Arnfríður hafa öll gegnt oddvita- steinsson skólastjóri varð annar. störfum i Búðahreppi. Vestmannaeyj ar: Yfirhaf nsögumaðurinn kjörinn heiðursborgari á afmælisfundi Ómar Garöarsson, DV, Vestmannaeyjum; Bæjarsfjórn Vestmannaeyja kom saman 14. febrúar til að minnast þess að þann dag fyrir 75 árum var fyrsti fundur bæjarstjórnar haldinn. Eitt mál var á dagskrá, tillaga um að kjósa Jón ísak Sigurðsson, fyrrum yfirhafnsögumann heiðursborgara Vestmannaeyja. Hún var samþykkt með 9 samhljóöa atkvæðum. Bragi I. Ólafsson, forseti bæjar- stjórnar, flutti ræðu í tilefni þessara tímamóta og sagði að fyrsti fundur bæjarstjómar Vestmannaeyja hefði verið haldinn 14. febrúar 1919. Fyrsta bæjarstjórnarkosning í Eyj- um fór fram þann 16. janúar 1919, samkvæmt 8. grein í lögum frá 22. nóvember frá 1918 um bæjarstjórn Vestmannaeyja. Til kjörstjórnar bár- ust sjö hstar yfir fulltrúaefni, merkt- ir í þeirri röð sem þeir komu með bókstöfunum A til G. Á þessum fyrsta fundi voru tekin fyrir 18 mál. Jón Isak og eiginkona hans, Klara Friðriksdóttir. DV-mynd Omar Langir biðlistar haf a þegar myndast - þjónustahugsanlegaaukinefdrreynslutímarm „Við kynntum þetta á blaða- mannafundi og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Það hefur mjög mikið verið hringt í okkur. Bæði voru menn að leita upplýsinga og panta tima í ráðgjöf," segir Marteinn Más- son, framkvæmdastjóri Lögmanna- félags íslands. Lögmannafélagið tók upp þá ný- breytni 8. febrúar síðasthöinn að bjóða fólki upp á lögfræðiráðgjöf. Fólki er boðið að koma einu sinni í viku og hitta lögfræðing og hefur þjónustan verið starfrækt í fjórar vikur. Um 50 manns hafa komið, 10 til 15 í hvert skipti, og telst það fuh- bókað. „Við auglýstum eftir lögmönnum til aö taka þátt í þessu. Það eru þegar komnir 40 lögmenn á skrá og ég á von á fleiri. Þeir skipta þessu með sér, tveir í hvert skipti. Það er þegar orðið upppantað í tvö næstu skipti, einn tími laus þar á eftir og við erum farnir að skrá í viðtalstíma 29. mars,“ segir Marteinn. Marteinn segir að í öllum viðtölun- um hafi það verið raunhæf mál sem fólk hafi veriö að leita sér upplýsinga um. Um sé að ræða mál af margvís- legum toga. Fólki sé gerð grein fyrir réttarstöðu sinni í viðtölunum og ef máh ljúki ekki í viðtali sé því leið- beint um hvert beri að snúa sér til að reka mál sitt. Marteinn segir að mönnum hafi verið beint til umboösmanns Alþing- is, opinberra stofnana ríkis- og sveit- arfélaga eða þá til starfandi lög- manna. Hann segir þaö ekki svo að lögmenn á vaktinni taki sjálfkrafa að sér einstök mál. Hann segir að líklega verði þjón- ustan ekki aukin á næstunni. Ætlun- in hafi verið að gera tilraun með ráðgjöfina fram að réttarhléi dóm- stóla í júh. „Miðað við þessar fyrstu viðtökur sýnist mér vera full þörf á ráðgjöf af þessu tagi. Það er hins vegar spurning hvort við aukum við þjónusfima með einhverjum hætti.“ -pp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Slag av riti:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-8254
Mál:
Árgangir:
41
Útgávur:
15794
Registered Articles:
2
Útgivið:
1981-2021
Tøk inntil:
15.05.2021
Útgávustøð:
Keyword:
Lýsing:
Dagblað. Fréttablað. Tölublaðsnúmerin fylgja Dagblaðinu og Vísi til ársins 2002. Fyrsta tölublað sameinaðra blaðanna er því 262. tölublað 71. og 7. árgangs.
Stuðul:
Tidligere udgivet som:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað: 57. tölublað (09.03.1994)
https://timarit.is/issue/195268

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

57. tölublað (09.03.1994)

Aðgerðir: