Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1994, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1994
Fréttir
Þrjár stúlkur á þrítugsaldri hætt komnar við Eldborg
Má segja að ég haf i
bjargað Ivfi þeirra
segir Kristján Ágúst Magnússon, 25 ára bjargvættur
„Þær gengu í þveröfuga átt þegar
ég kom að þeim. Eg veit nú ekki hvort
ég hef bjargað lífi þeirra, jú, það má
kannski segja það því það var mjög
blint, skafrenningur og blaut snjó-
koma þegar ég fann þær. Ég veit
ekki hvar þær hefðu endað göngu
sína hefði ég ekki fundið þær,“ segir
Kristján Ágúst Magnússon.
Kristján bjargaði 25 ára danskri
stúlku og tveimur 22 ára þýskum
vinkonum hennar þegar þær lentu í
hrakningum í mjög slæmu veðri við
Eldborg á sunnudag.
Stúlkurnar fóru frá Snorrastöðum,
sem eru í um 40 mínútna göngufæri
í góðu veðri frá Eldborg, um klukkan
10.30 um morguninn. Mjög gott veður
var þegar þær fóru frá Snorrastöð-
um, þar sem danska stúlkan vinnur,
og höfðu þær hund af bænum með
sér.
Hins vegar versnaði veörið skyndi-
lega um klukkan 11.30 og klukkan
12.50 ákvaö Kristján Ágúst Magnús-
son, tengdasonur bóndans á Snorra-
stöðum, að fara og leita stúlknanna.
„Það var mjög blint þegar ég fór
af stað. Ég tók með mér eldri hund-
inn á bænum og gekk að Eldborginni
þar sem ég vissi að þær ætluöu að
verða. Hundurinn fann eiginlega
slóðina og gekk á eftir mér eftir að
við fundum hana. Það var svo um
klukkan hálftvö sem ég fann þær.
Þegar ég fann þær vissi ég eiginlega
ekkert hvar við vorum því það sást
ekki í Eldborgina en ég vissi í hvaða
átt við áttum að ganga og kom fljótt
auga á giröingu sem ég notaði svo
sem kennileiti," segir Krislján.
Hann segir aö stúlkumar hafi verið
þokkalega búnar til útiveru fyrir ut-
an það að þær vantaði almennileg
höfuðfot. Þær hafi verið ágætlega á
sig komnar þegar hann kom að þrátt
fyrir aö snjókoman hafi verið blaut
og mjög hvasst.
Heimferðin tók um klukkustund
og segir Kristján að hún hafi gengið
mjög vel.
-PP
f slandsbankamót í bridge:
Sveit Landsbréf a sigraði
Sveit Landsbréfa var aö vonum kampakát í leikslok. Frá vinstri eru Þorlák-
ur Jónsson, Guðmundur Páll Arnarson, Jón Baldursson, Sverrir Ármanns-
son og Sævar Þorbjörnsson. DV-mynd IS
Sveit Landsbréfa tryggði sér ís-
landsmeistaratitilinn í sveitakeppni
í bridge meö því að vinna stóran sig-
ur á sveit VIB í lokaumferð keppn-
innar. Úrslitakeppni 10 sveita fór
fram 30. mars-2. apríl á Hótel Loft-
leiðum.
Úrslitakeppnin var æsispennandi
allt fram í síðustu umferð keppninn-
ar og fyrir lokaumferðina áttu þijár
sveitir möguleika á titlinum. Það var
sveit Landsbréfa sem var með 149
stig, VÍB sem var með 143,5 og Trygg-
ingamiðstöðin sem var með 141,5
stig. Sveitir Landsbréfa og VÍB áttust
við í innbyrðis leik í lokaumferðinni.
Sá leikur varð óvænt einstefna, spil-
arar í sveit VÍB sáu aldrei til sólar
og töpuðu 0-25. Tryggingamiðstöðin
skoraði einnig 25 stig og sveit DV
skaust upp fyrir sveit VIB með þvi
að fá 25 stig í lokaumferðinni.
Sveit Landsbréfa er skipuð þeim
Jóni Baldurssyni, Sævari Þorbjöms-
syni, Guðmundi Páli Arnarsyni, Þor-
láki Jónssyni og Sverri Ármanns-
syni. Keppnisstjóri á mótinu var
Kristján Hauksson sem jafnframt
reiknaöi út Butler-árangur einstakra
para.
Guömundur Páll og Þorlákur náðu
besta árangrinum, 17,61 stigi að með-
altali í 18 hálfleikjum, Jón og Sævar
næstbesta árangrinum með 17,17 í 9
hálfleikjum og Jón Þorvarðarson og
Haukur Lngason úr sveit Metró 16,95
úr 11 hálfleikjum. Lokastaðan í mót-
inu varð þannig:
1. Landsbréf 174
2. Tryggingamiðstöðin 166,5
3. DV 149,5
4. VÍB 143,5
5. Metró 139
6. Bíóbarinn 133
7. S. Ármann Magnússon 111,5
8. Magnús Magnúson 108
9. Hjólbarðahöllin 107,5
10. Sparisjóður Siglufjarðar 99,5 -ÍS
Manchester:
íslendingur
skorinn í andlit
Ungur íslendingur var skorinn
í andlit með rakvélarblaðí eftir
knattspymuleik Manchester Un-
ited og Liverpool á miðvikudags-
kvöld. Maðurinn, sem ekki bar
merki neins knattspymuliðs, var
í hópi samlanda sinna sem allir
vom auðkenndir Manchester
United. Hópurinn var á leið frá
Old Trafford-leikvanginum að
hóteli sínu þegar maður kom
skyndilega hlaupandi aö þeim og
sló í andlit mannsins. Hann
horíði fomða á eftir hlaupandi
manninum og fann síðan að
fossblæddi úr djúpum skurði á
kinninni. Þurftí aö sauma 8 spor
á slysavarðstofu.
Þrír Englendingar urðu fyrir
sams konar árás þetta kvöld.
Samkvæmt upplýsingum DV er
talið að stuðningsmaöur Liverpo-
ol-Iiðsins hafi verið á ferö og vilj-
að hefna fyrir tap sinna manna.
-hlh
Jeppivaltí
Langadal
Jeppi valt á þjóöveginum við
Geitaskarð í Langadal um hádeg-
isbil annan dag páska. Tvær kon-
ur voru í bílnum og skrámaðist
önnur þeirra á hendi. Var þetta
önnur bilveltan á þessum slóðum
umpáskana. -hlh
Snjóf lóö í Óshiíð
Nokkur snjófióð féllu á Óshlíð-
arveginn í fyrrinótt og í gær-
morgun og lokuðu honum aiveg
fyrir umferö. Reynt var að ryöja
veginn undir hádegi í gær en
ruöningstæki urðu frá að hverfa.
Björgunarbáturinn Daníel Sig-
mundsson sá um aö ferja fólk
milli ísafjaröarog Bolungarvíkur
í allan gærdag og gekk vel. -hlh
Harðurárekstur
Harður árekstur tveggja fólks-
bíla varð á Hvolsvelli í gærmorg-
un. Blint var og mikil hálka og
varð árekstri því ekki afstýrt.
Engin slys urðu á mönnum en
bílarnirskemmdustnokkuö. -hlh
í dag mælir Dagfari_____________
Fermmgarbörnin græða
Það er vesöld í landi. Tiu þúsund
manns ganga um atvinnulaus og
fyrirtækin hrynja niður hvert af
öðru. Þorskkvótinn er uppurinn og
loðnuvertíðinni lokið. Þaö er hart
í heimi og launin duga vart til hnífs
og skeiðar.
Það er undir þessum formerkjum
sem íslendingar halda páska hátíð-
lega og geta því miður lítið annaö
gert en eyða því litla sem eftir er í
buddunni. Nokkur þúsund lands-
manna skelltu sér í sólarlanda-
reisu, hundruð fóru í skíðaferðir
til Austurríkis og svo eru þeir sem
ferðast um á vélsleðunum og fjór-
hólatrukkunum upp um allar
óbyggðir og fátæktin og eymdin
drýpur þar af hverjum bensín-
dropa.
Þetta eru auðvitað harkalegar
afleiðingar kreppunnar og ekki
nema von að Islendingar kvarti
sáran undan ástandinu meðan þeir
verða að sóa páskunum og þeim
htlu peningum sem eftir eru í utan-
lands- og óbyggðaferðir og hafa
ekki einu sinni efni á því að vera
heima hjá sér!
Sumt fólk er þó óheppnara en
annað og situr uppi með unglinga
sem eru að fermast. Annaðhvort
neyðist þetta fólk til að halda upp
á fermingu barna sinna ellegar
mæta í boðið og sannast sagna
sleppa afar fáir íslendignar við
fermingarveislur, nema þá þeir
sem flýja land um páskana til að
losna við þau peningaútlát sem
fylgja fermingunum.
En meðan foreldrar og gestir
blæða eru það fermingarbörnin
sjálf sem gleðjast mest. Ekki endi-
lega yfir fermingunni og því að
komast til endanlegtar skírnar,
heldur af hinu að það eru ferming-
arbörnin sem græða mest og eru
sennilega eini hópurinn í landinu
sem þarf ekki að kvarta undan
kreppunni.
Dagfari sótti eina slíka fermingu
um páskana og þegar hann var
oröinn úttútnaður af áti og sestur
út í horn til að fá hvíld fá erli og
hávaöa veislunnar komst hann
ekki hjá því að heyra tal tveggja
fermingarsystkina sem voru að
bera saman bækur sínar.
„Hvað fékkst þú?“
„Ég fékk hundraö og tuttugu þús-
und kall í peningum, svo fékk ég
gjafabréf á fatabúð og tvennar
stereógræjur í herbergið mitt. Svo
fékk ég skíði og allar græjur og
eyrnalokka og tölvuborð fyrir tölv-
una mína og vídeótæki og mynda-
vél og ég man bara ekki meira og
ég man ekki hverjir gáfu mér hvað.
Enda kannski ekki von því ég
þekkti ekki nærri alla gestina.
Hvað fékkst þú?“
Ég fékk hundrað og fimmtíu þús-
und í peningum. Svo fékk ég nokkr-
ar bækur, ljóðabækur, held ég, og
náttúrulýsingar."
„Oj bara,“ sagði hitt fermingar-
bamið. „Það er ekkert varið í að
fá bækur. Af hverju baðstu ekki
fólkið um að gefa þér heldur
monní?“
„Æ, þú veist hvemig þetta er.
Sumt fólk er svo gamaldags. Það
heldur að maður lesi bækur en
pabbi sagði að þetta væri allt í lagi.
Ég get farið með þær í búðina og
fengið þeim skipt fyrir geisladiska.
Svo fékk ég líka tölvu frá afa og
utanferð frá systkinum mömmu og
pabbi gaf mér hest.“
„En æðislegt," sagði hitt ferming-
arbarnið. „Eg var búinn að panta
hest og mamma sagði aö Siggi
frændi mundi örugglega gefa mér
hest af því að hann býr í sveit, en
svo kom Siggi frændi ekki i veisl-
una og það voru ekki nema áttatíu
og fjórir sem komu og þó vorum
við búin að bjóöa fullt af ööra fólki
og þess vegna græddi ég ekki eins
mikið á veislunni og ég átti von á.
Mamma var rosalega spæld og
Kiddi bróðir segist ekki ætla að
halda fermingarveislu þegar hann
verður fermdur ef ekki koma fleiri.
Og þá sagði pabbi að það væri verst
fyrir hann sjálfan því þá fengi hann
ekkert og þá væri eins gott að
sleppa því alveg að fermast. Aum-
ingja Kiddi fór þá að hágráta og þá
lofaði pabbi að hann skyldi gefa
honum snjósleða og þá hætti Kiddi
að gráta.“
Nú var Dagfari búinn að fá nóg
af því að heyra um gróða ferming-
arbarnanna, enda staurblankur
maðurinn. Hins vegar rann upp
fyrir honum þaö ljós að ef menn
vilja komast út úr kreppunni og
vesöldinni þá er ekki nema eitt ráð
við því. Það er að fermast á nýjan
leik!
Dagfari