Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994
Fréttir
Þjóðhagsstofnun með drög að nýrri þjóðhagsspá:
Ef nahagslíf ið réttir úr kútnum
- endimörk kreppunnar, segir Davíð Oddsson forsætisráðherra
„Það bendir flest til þess að við
séum komnir að endimörkum krepp-
unnar. Það eru engin tákn um að hún
eigi eftir að dýpka. Þvert á móti eru
tákn um að hún fari að slakna. Menn
þurfa hins vegar að gæta aö sér,“
segir Davíð Oddsson forsætisráð-
herra um efnahagshörfurnar.
Þjóðhagsstofnun hefur látið frá sér
fara minnisblað til undirbúnings
þjóðhagsáætlun og gerö fjárlaga-
frumvarps. í stað samdráttar í lands-
framleiðslu á þessu ári upp á 1,1 pró-
sent er nú gert ráð fyrir að lands-
framleiðslan standi í staö og hág-
vöxtur taki síðan við. A næsta ári er
gert ráð fyrir 1 prósent hagvexti en
að síðan verði vöxturinn 2 til 2,5 pró-
sent á ári.
Þjóðartekjur eru taldar aukast
meira en landsframleiðsla á næsta
ári eða um 1,6 prósent vegna batn-
andi viðskiptakjara. Af sömu ástæðu
aukast þjóðartekjur lítillega á þessu
ári. Batnandi viðskiptakjör eru rakin
til betri tíöar í efnahagsmálum í
heiminum. Gert er ráð fyrir að við-.
skiptin við útlönd verði jákvæð um
3 milljarða á yfirstandandi ári.
í drögum að þjóðhagsspá fyrir
næsta ár er gert ráð fyrir að atvinnu-
leysið verði 5,3 prósent í stað 5,2 pró-
senta í ár. Samkvæmt spánni eykst
verðbólgan úr 1,7 prósentum í ár í 2
prósent á því næsta. í ár er gert ráð
fyrir að kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna skerðist um 2 prósent en sam-
kvæmt spánni verður 0,5 prósent
kaupmáttaraukning á næsta ári. Þá
er í spá Þjóðhagsstofnunar gert ráð
fyrir að erlendar skuldir þjóðarinnar
minnki á næsta ári, bæði aö raun-
gildi og sem hlutfaíl af þjóðarkök-
unni.
í minnispunktum Þjóðhagsstofn-
unar er gerð grein fyrir þróun efna-
hagsmála í umheiminum og spá
Efnahags- og framfarastofnunar
Evrópu (OECD) um framhaldið.
Samkvæmt úttekt OECD er ísland
eina landið sem ekki nær hagvexti í
ár og verður á næsta ári með minnsta
vöxtinn. Verðbólga og atvinnuleysi
er hins vegar óvíða minna en hér á
landi. Hvað varðar afkomu ríkissjóðs
kemur í ljós að hún er í meðallagi
miðaö við önnur OECD-ríki.
Elín Hirst sagði Eggert Skúlasyni upp störfum á Stöð 2:
Ekki á mála hjá neinum
- segir Elín. Vill tryggja sjálfstæði fréttastofunnar
Eggert Skúlasyni fréttamanni var
í gær sagt upp störfum á fréttastofu
Stöðvar 2 með þriggja mánuða upp-
sagnarfresti. Eggert tók sl. laugardag
sæti Jóhanns Óla Guðmundssonar,
forstjóra Securitas, í sljórn íslenska
útvarpsfélagsins fyrir hönd starfs-
manna.
Elín Hirst fréttastjóri telur að seta
fréttamanns í stjórn Stöðvar 2 ógni
sjálfstæði fréttastofunnar. Elín fór
því þess á leit viö Eggert aö hann
segði sig úr stjóminni en hann varð
ekki við því í gær og var honum þá
sagt upp störfum.
„Ég vil ekki að fréttamenn Stöðvar
2 séu í stjóm íslenska útvarpsfélags-
ins. Ég vil halda okkur fyrir utan til
að tryggja áframhaldandi sjálfstæði
fréttastofunnar. Þetta var mín ósk til
Eggerts. Hann sá hins vegar ekki
ástæðu til að segja sig úr stjórn og
sagði að ég yrði þá að segja sér upp
störfum sem ég síöan neyddist til að
gera,“ segir Elín Hirst fréttastjóri.
Hún segist finna að á bak við þessa
Eggert Skúlason á stjórnarfundi Stöövar 2 i gær. Með honum á myndinni eru Jafet S. Ólafsson, nýráðinn útvarps-
stjóri, og Jóhann J. Ólafsson.
„prinsipp“afstöðu sína sé mikill
stuðningur meðal fréttamanna en
mönnum sé auðvitað mikil eftirsjá í
Eggert.
„Ég er ekki á mála hjá minni- eða
meirihluta eða fyrrverandi minni-
eða meirihluta. Ég vinn samkvæmt
minni eigin sannfæringu og hef alltaf
gert það,“ sagði Elín aðspurð hvort
hún hefði fengið tilmæh frá meiri-
hluta stjómar félagsins um að segja
Eggert upp störfum.
A fundi starfsmannafélags ís-
lenska útvarpsfélagsins, sem haldinn
var í gærmorgun, komu fram skiptar
skoðanir um setu Eggerts og Maríu
Maríusdóttur yfirþýðanda í stjóm og
varastjóm íslenska útvarpsfélags-
ins. Deilurnar snerust aðaUega um
réttmæti þess að Eggert og María
sitji í umboði Jóhanns Óla Guð-
mundssonar. Að sögn Maríu Maríus-
dóttur var ákveðið að gefa umhugs-
unarfrest og halda annan fund í dag.
Þá á að greiða atkvæði um máhð.
Ekkert lát á átökum á Stöð 2:
Stuttar fréttir
Vilja kæra alla
gömlu stjórnina
imkvæmt öruggum heimildum
er mikill viiji fyrir því innan
i meirihiutans í íslenska útvarps-
pnu að óska eftir hluthafafundi
a 13. júlí nk. þar sem óskað veröi
1 heimild fundarins til að höfða
saka- og skaðabótamál gegn Ingi-
mundi Sigfússyni, Ásgeiri Bolla
Kristinssyni, Jóhanni Óla Guð-
mundssyni og Stefáni Gunnarssyni
en þeir sátu allir í gömlu stjóminni.
Málið yrði höfðað vegna starfsloka-
samnings Páls Magnússonar, fráfar-
andi sjónvarpsstjóra, og sölu á hluta-
bréfum Stöðvar 2 í Sýn. Þetta mun
hafa verið rætt á fyrsta stjómarfundi
nýju stjórnarinnar sem haldinn var
í gær.
Páll Magnússon, fyrrverandi sjón-
varpsstjóri og núverandi stjórnar-
maður í Stöð 2, ræðir við Ingimund
Sigfússon. DV-myndir S
Skiptar skoöanir eru meðal starfsmanna íslenska útvarpsfélagsins um setu
fulltrúa starfsmanna í stjórn fyrirtækisins. Fundur var haldinn í þeirra röðum
í gær og annar verður í dag þar sem á að greiða atkvæði um málið.
Jóhanna á varðbergi
í stjórnarráöinu hefur verið
rætt um að felia niður ríkis-
ábyigð á húsbréfum og færa
umsýsluna til banka og spari-
sjóða. Jóhanna Siguröardóttir
spyr sig í Morgunblaöinu hvort:
verið sé að grafa undan húsbréfa-
kerfmu.
Rannsóknir sýna að peningum
til kaupa á próteindrykkjum til
vöðvauppbyggingar er kastað á
glæ. Að sögn Tímans er kjöt, fisk-
ur, egg og ostur ódýrari kostur
og árangursrikari.
MeðhjóláHeklu
Tveír hjólreiðamenn ldifu
Heklu um síðustu helgi og hjól-
uðu síðan niður. Mbl. greind frá
þessu.
Skyggt gler var sett í glerskál-
ann við Iðnó þrátt fyrir að Hús-
friðunarnefhd sé ósátt við skyggt
gler. Skv. Mbl. vill nefndin aö
skipt veröi um gler.
Kaupfélagssijórí hesttir
lagsstjóri hjáKÁá Selfossi, hefur
sagt stax-fi sínu Iausu. Tíminn
greindi frá þessu.
Varaðviðíshjömum
Suðvestlægir vindar hafa fært
hafls aö Vestfjörðum og er ísjað-
arinn nú 16 mílur fr á landi. Vegna
þessa telur Veðurstofa íslands
hættu á því að isbirnir séu á ferö
um Hornstrandir.
Steypustöðin á Blönduósi átti
lægsta tilboð í Norðurlandsveg
um Giijá. Tilboðið hjóðaöi upp á
1,2 milijónir eöa 49,5% af kostn-
aðaráætlun. Pimm önnur tilboð
bárust Vegageröinni, það hæsta
upp á 3,9 milljónir.
Breyting á rekstri Kristnesspít-
ala í öldrunarspítala myndi fjölga
störfum þar um 40. Samkvæmt
Mbl. yrði kostnaðurhm 170 til 250
milljónir. Akvörðunar er að
vænta á næstu vikura.
EggertSkúlason:
hpwet if skw
uru VCIR
á Elínu
„Ég hef það á tilfinningunni aö
það hafi verið þrýst á Elínu. Mér
finnst þotta sérstaklega loiðinlogt
fyrir hana vegna þess að við höf-
um alltaf verið vinir og ég óttast
að þetta muni skaða fréttastofuna
verulega," segir Eggert Skúlason
fréttamaður en honum var sagt
upp störfum á fréttastofu Stöðvar
2 í gær.
„Þaö var uppi mikiil ágreining-
ur milli mín og Elínar um hvort
það skaðaöi fréttastofuna að ég
sæti í stjórn fyrirtekisins. Ég er
þeirrar skoðunar að svo sé ekki
en hún telur að svo sé. Ég stend
á sannfæringu minni í þessu
máli,“ segir Eggert.
Eggert segir að Sigurður G.
Guöjónsson, stjórnarformaður
íslenska útvarpsfélagsins, hafi
einnig lýst þvi yfir á starfs-
mannafundi i gær að meirihlut-
inn vildi helst ekki hafa fulltrúa
í sljórninni sem væri jafnáber-
andi og Eggert. Sigurður hafi sagt
að það væri í lagi að dagskrár-
geröarmenn eða tæknimenn
sætu í sijórn.
Eggert segist gefa kost á sér til
áframhaldandi stjórnai*setu út
uppsagnartímann. Hann ætlar að
vinna út uppsagnarfrestinn en
segir alls óák veðið hvað við taki.