Alþýðublaðið - 24.12.1960, Síða 9

Alþýðublaðið - 24.12.1960, Síða 9
Hér segir frá einsiöku flugafreki úr síðustu heimsstyrjöld 4 með okkur í gegnum frum- skóginn.“ Annar sagði: „Ég vil heldur vita af konu minni í flugvél- inni hjá Hó, heldur en að hún verði hér kyrr og lendi í hönd- um Japana.“ Mennirnir í kringum Hó tóku undir þetta einum rómi. Síðan sagði einhver, að karl- mennirnir gætu fyllt í holurn- ar á flugbrautinni meðan kon- urnar reyndu að bæta verstu götin á vélinni. Hvort hann gæti þá flogið vélinni? Hó Fun yppti öxlum og sagðist aðeins hafa eitt líf. Verra væri það með konurn- ar. Þær væru margar. Síðan var ákveðið í skyndi að reyna að gera víð vélina. Nokkrar konur þustu til bæj- arins eftir dúk til að festa yfir götin og mennirnir unnu sem óðir væru að því að laga aðra flugbrautina. Þeir sem voru vopnaðir stóðu vörð. Það gekk greiðlega að bæta vængina, og þegar geymar vél- arinnar höfðu verið fylltir af benzíni, setti Hó Fun hreyfl- ana í gang. Númer eitt fór í gang á slaginu, en númer tvö ekki fyrr en að hálftíma liðn- um, eftir ítrekaðar tilraunir. Hann haíði drepið á númer eitt, meðan hann var að at- huga hinn hreyfilinn, en skömmu áður en drunurnar frá þeim báðum yfirgnæfðu allan hávaða, heyrði fólkið skothríð í fjarska, sem fyrsta vott þess að Japanir væru komnir ískyggilega nærri. Klukkan var nú orðin þrjú síðdegis og fyrstu brezku her- mennirnir, sem töfðu undan- haldið, komu inn í bæinn hjá flugvellinum. Þeir höfðu þá særðu með sér, en þeir dauðu höfðu orðið eftir. Þeir fluttu þær fréttir að Japanir væru nú aðeins í fimm kílómetra fjarlægð. Hó Fun ók vélinni fyrir brautarendann og virti braut- ina fyrir sér. Fyrir aftan hann unnu menn að því að týna allt ónauðsyniegt dót úr vélinni. Þetta hafði verið vöruflutn- ingavél og því var ekki miklu að henda. Innan klukkustund- ar var vélin tilbúin undir flug- tak. Við hlið hennar stóðu hundrað og fimmtíu menn, konur og börn. Konurnar voru orðnar sextíu og sjö, allar brezkar utan kona bandarísks trúboða og dóttir hennar. Þama voru níu böm, en aldur þeirra var frá nokkurra mán- aða til tíu ára. Hó Fun hafði ekki hug- mynd um, hvað Douglasvélin var gefin upp fyrir að bera. Hann hafði einu sinni séð tutt- ugu manns fara upp í álíka vél, en það var kínverskt fólk sem var mikið léttara en þetta. Hann sagðist kannski geta tekiðþrjátíu og bað þrjátíu konur að stíga um borð í vél- ina. Enn var nóg rými í vél- inni og Hó sagði að börnin skyldu stíga um borð. Næst voru tíu konur til viðbótar valdar úr og sagt að fara um borð. Pláss var fyrir fleiri og enn bættust tíu í hópinn. Og enn aðrar tíu, og þegar Hó lok- aði dyrunum, voru allar kon- urnar, sextíu að tölu, komnar um borð og börnin níu. Hó sagði að þetta þýddi raunar ekki, þar sem vélin næði sér aldrei til flugs með þessum þunga. Þrjátíu konur yrðu að verða eftir. Mennirn- ir neituðu þessu og spurðu hvort hann kynni ekki ein- hver ráð. Hó sagði þeim að hann gæti reynt að láta hreyflana vinna til hins ýtr- asta og síðan þeyta vélinni af stað. Gallinn væri bara sá, að hemlarnir héldu ekki vélinni, ef hann ætti að fara þannig að. Mennirnir buðust til að halda vélinni kyrri, en Hó sagði þeim að þeir hefðu ekki afl til þess. Enski liðsforing- inn gaf sig nú fram í annað sinn og spurði hvort ekki væri ráðlegt að binda vélina við tré, meðan hreyflarnir væru þeytt- ii, og síðan yrði höggvið á kaðalinn eftir gefnu merki frá flugmanni. Hó féllst á þetta. Vélin stóð alveg á brautarendanum í skugga gildra trjáa. Kaðall- inn sem þeir sóttu var sá sver- asti sem þeir fundu. Öðrum endanum festu þeir aftan í vélina en hinum brugðu þeir um trjábol. Þegar þessu var lokið sagði Hó öllu kvenfólk- inu að fara út, af því hann þyrfti að raða því öðruvísi i vélina. Þetta tók enga stund og þegar allir voru komnir um borð aftur, tók presturinn og viðstaddir ofan höfuðfötin og báðu fyrir Hó og farþeg- um hans. Skothríðin nálgað- ist stöðugt. Hó gaf síðan mönnunum merki og setti hreyflana á fulla ferð. Vélin rykkti í kað- alinn, eins og hún ætlaði að rífa tréð up með rótum. Þegar hreyflarnir höfðu náð fullum snúningshraða, veifaði Hó út um gluggann og tveir menn, sem stóðu við kaðalinn með reiddar axir, létu þær ríða á kaðlinum og hjuggu hann sundur. Vélin þaut af stað, eins og henni væri skotið úr byssu og rykktist áfram eftir holóttri brautinni. Á einum stað var hún nærri farin út af, en Hó tókst að rétta h'-na við á síðustu stundu. Hún var komin á fulla ferð, en samt sýndi hún engin merki þess að hún ætlaöi að hafa sig á loft og það var ekki f'-rr en sjö- tíu metrar voru eftir að braut- arendanum að h.iólin losnuðu. Hó reyndi til h;n vfrasta að koma henni uno fvrir’' trjá- toppana. Honum tólrst þrð, en hjólin rifu efstu greinarnar með sér. Mönnunum, sem höfðu beð- ið á vellinum og horft á aðfar- irnar, létti stórum, þegar vél- in var sloppin yfir skógarjað- arinn. Hó sveigði hægt í vest- ur og tók stefnuna á Indland hundrað fetum yfir hæstum trjám. Það bogaði af honum svitinn og hann heyrði kon- urnar gráta aftur í. Nokkrar þeirra voru í nauðum, af því flugtakið hafði reynt of mikið á þær, og þær misstu fóstrin á leiðinni vestur. Hó kallaði yfir véladyninn að hann þyrfti á tveim ung- um stúlkum að halda. Þær komu strax og hann sagði þeim að manna byssurnar, þar sem Japanir væru á hverju strái. Önnur þeirra sagðist aldrei hafa snert á byssu, en hann huggaði hana með því, að þetta væri auðlært, þegar í nauðirnar ræki. Landið var hæðótt og hann átti í erfiðleikum með að koma vélinni í nóga hæð, þar sem hún var lestuð langt yfir markið. f hvert sinn sem hann gerði tilraun til að ná öruggri hæð, ofhitnuðu hreyflarnir, svo hann lét nægja að skríða yfir hverja hacðina af annarri. Sums staðar flaug hann í að- eins fjörutíu til sextíu feta hæð í misjöfnum loftstraumi. Er leið á kvöldið fékk hann mótvind og þegar um tvö hundruð mílur voru eftir, yfir Austur-Pakistan, fór hann að efast um að benzínið entist honum til Kalkútta. Ljósin í mælaborðinu voru biluð en IIó lýsti sér öðru hverju með vasaljósi, þegar hann vildi sjá lofthraða, hæð og bezínmagn. Hann þorði ekki að kalla til Kalkútta í gegnum sendistöð- ina, þótt hann nálgaðist borg- ina óðfluga. Þegar hundrað mílur voru eftir, setti hann heyrnartækin á sig. Sendingar frá flugturninum í Kalkútta heyrðust nú greinilega og hann taldi sér óhætt að hafa samband við þá. Þegar flugturninn svaraði var það til að spyrja hver hann Framhald á 11. síðu. Jólabók Alþýðublaðsins 1960 — 0

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.