Alþýðublaðið - 24.12.1960, Síða 28

Alþýðublaðið - 24.12.1960, Síða 28
fiennan dag. „Sajn“, sagði ég skyndilega, og rauf frásögix haus untí eitthvað sera hann hafði mikinn áhuga fyrir, — „við verðum að hætta að hitt- ast.. Mér finnst ég koma svo illa. fram.‘f „Hvers vegna í ó- sköpunum?" sagði hann. „Ætlarðu nú að byrja á þessu aftur? Geturðu ekki bara far- ið til Maríu og sagt henni að þú sért með mér?“ „Nei, til þess þykir mér of vænt um Maríu og ég vil ekki verða óvinur hennar. Eg er ekki að hugsa um vinnuna, því hún myadi aldrei segja mér upp vegna þessa, en María er bezta vinkona, sem ég hef nokkru sinni átt„‘ sagði ég. „En Lása, heldur þú virkilega að henni muni falla þetta svona illa? Mér finnst ég vera eins og hver annar eðjót í þessu hlutverki sem einhver ómót- stæðilegur Don Juan,“ sagði harm. ,,Eg veit svei mér ekki,“ sagði ég. „Eg veit hreint ekki. Þú hefur þekkt har.a í fjögur ár. Hvað heldur þú?“ ,Eg?“, sagði hann, „ja, ég veit svei mér ekki.“ Hann fékk sér stóran vatnsslurk og kwikti í sígarettu. „Ja, ég hýzt ekki við, að hún verði yfir sig ánægð.“ — „Þú varst ástfanginn af henni, varstu það ekki?“ — „Jú, til að byrja með. En hún neitaði mér. Eg var tveim árum yngri en hún. Hún hafði verið ekkja í hálft annað ár, þegar þetta var, og var enn ekki búin að jafna sig eftir það. Eg lét mig hafa það og hélt áfram að hitta hana sem oftast. Eg held, að þetta hafi næstum verið orð- inn vani fyrir okkur hæði. Hún sagði mér frá mannin- um sínum, einhvern varð hún að hafa til að tala við. Það var víst bráðmyndarlegur ná- ungi og það var talsvert áfall fyrir hana, er hann dó.“ — „Hún er allavega ást-. fangin af þér nú,“ sagði ég. — „í>að er ég ekki viss um. Sá tími var, að ég hélt hún væri það, en nú er ég ekki viss um það lengur. Mér þyk- ir vænt um hana nú á sama veg og þér þykir vænt um hana. Annað ekki. Við sjá- umst af og til f mestu vin- semd.“ — „Hvernig kynntist þú henni? Það hef ég aldrei heyrt um.“ — „Hún vann hjá mér áð- ur en hún byrjaði upp á eig- in spýtur.“ Sam hafði ég hitt um jóla- leytið. Einhver hafði ' sent Maríu glæsilegan, digran matarböggul. „Þetta get ég ekki klárag sjálf,“ sagði hún. „Taktu vin þinn með þér og við' skulum halda smáveizlu.“ Strax og ég kom síðar inn í íbúðina hennar tók ég eftir Sajn. Hann var £ meðallagi hár, vel vaxinn, og dökk- hærður. Eg gizkaði á að hann væri þrjátíu og tveggja ára, fimm til sex árum eldri en ég — og ég vonaði að hann væri ekki kvæntur neinni þeirra, sem þarna var. Svo kom í ljós, að hann var Sam hennar Maríu, og þar með var aðgangur að honum bannað- ur, rétt eins og öllum kvænt- um mönnum. Samt sem áður kom hann oft til að spjalla við mig þetta kvöld, og það reyndist mér mjög erfitt að vera afundin við hann. Eg kvaðst verða að fara snemma og fór ásamt þeim er ég hafði tekið með mér. Daginn eftir hringdi síminn; — „Þetta er Sam Stephen- sen. Þakka þér fyrir síðast.“ Hann spurði hvort ég vildi koma út með sér og borða eftir vinnutíma og ég svaraði því til, að þetta væri vel boð- ið, en ég væri upptekin. — ltEn á morgun eða hinn daginn?“ — „Því miður,“ sagði ég. — „Allt í lagi. Eg skil. Mér þykir það leiðinlegt,“ sagði hann,- Mér þótti það líka leiðin- legt, því að mér hafði fallið betur við hann en ég vildi viðurkenna, en María var mín bezta vinkona og ég vissi hvemig ég átti að haga rnér. Nokkrum dögum síðar var ég svo að rápa um göturnar, þegar einhver tók í handlegg- inn á mér og sagði: — „Hvað ætlarðu að gera á Gamlárskvöld?“ Eg snérist í hring og vissi að þetta var Sam. — „Sam! Nei, heyrðu nú, haltu nú áfram þína leið.“ — „Komdu með og fáðu þér bolla af kaffi með mér. Eg þarf að tala við þig.“ — „Finndu þér aðra að tala við,“ sagði ég. „Mér þykir vænt um Maríu. 'Vertu ekki svona ágengur, Sam.“ ,.Lísa!“ Hann leit særður á mig. „Eg er ekki ágengur. Eg get bara ekki að þessu gert. Mig langar mest til áð taka þig í faðm mér og kyssa þig og kyssa þar til öllu lýk- nr “ Hann hringdi á skrifstof- una og ég lagði símann á. En kvöld eitt sat ég ein heima og var ósköp einmana og niðurbeygð. Þá var hringt frammi — og þama stóð Sam og þá stóðst ég þetta ekki lengur. Mér fanflst ég vera allra kvenna mest undirförul, en mig langaði svo til að' vera með honum, að hugtök eins og tryggð og vinátta misstu þýðingu sína. Við sátum og mösuðum og þegar hann fór kyssti hann mig. Þeim kossi get ég ekki lýst, en ég hafði aidrei reynt neitt þessu líkt áður. Eftir þetta vorum við sífellt saman og ég grátbað hann að vera líka með Maríu af og til. Allan dagir.n sat ég við teikniborðið mitt og gat ekkert gert meðan ég braut heilann um það, hvernig ég ætti að segja Maríu þetta. Atíi ég að segja henni allt, rétt eins og komið var, eða átti ég að hætta samvistum mínum með Sam. Endirinn varð sá, að ég forðaðist að VÉLA Getum boðið jíður flestar gerðir og stærðir af járn- og trésmíðavélum til afgreiðslu frá Póllandi. Rennibekkur TUB-32 Afréttarií AONe-7 Hafið samband við vélaumbbK v©rt, er veitir ailar nánari upplýsingar. Hverfisgötu 42 — Sími 19422 Reykjavík. 23 — Jólabók Alþýðubíaðsins 1960

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.