Dagur - 24.12.1945, Page 27

Dagur - 24.12.1945, Page 27
ar upp undir tindana á sumrin. En liún hverfur aldrei. Fólkið þar var sagt óvingjarnlegt í garð hermann- anna, en eðlilegt væri, að það væri kaldara í viðmóti en Akureyringar, fjöllin og umhverfið eru skýring á því. Þegar vetur nálgaðist voru norður- ljósin um allan himin, stundum eins og dauf silfurrák í órafjarlægð um þvert hvolfið; oftar þó bjartari og glæstari, með gáskafullu geislaflugi og sýndust þá koma miklu nær, ljálaga hogar í grænum og rósrauðum litum, eða fellingatjald, sem rís frá fjallatind- um til himinhæða. Við fengum ofsaveður eftir að við l’órum lrá Seyðisfirði og í tvo sólar- hringa gekk sjórinn yfir skipið og sóp- aði öllu lauslegu með sér. En við náð- um Hvalfirði, og daginn eftir liélt ég til Reykjavíkur í litlum strandferða- bát flotans. Sjórinn var ennþá ókyrr og ég tók með stöðu við hlið stýri- mannsins á upphækkuðum stjórnpalli, og dáðist að dýrðlegri fegurð lofts og lagar. Dagarnir styttust óðum, en himin- inn logaði, eins og kynt væri undir. Skýin báru mjúka liti um ftádegisbil. En kuldinn og ntyrkrið varð mér ekki þungbært. Islenzkir vinir mínir sáu um það. Ég naut vináttu og gestrisni á fjölda íslenzkra heimila í höfuðborg- inni. Á meðal vina minna þar er land- lagsmálarinn Kjarval, hinn mikli meistari íslenzkrar myndlistar. Hann var fyrstur til þess að skilja myndfeg- urð hraunbreiðanna og hins eldbrotna lands. Ég hitti hann fyrst á Þingvöll- um, í hraungjánni, þar sem hið fyrsta þing kom saman á sumrum, fyrr á öldum. Seinna fór hann með mig á heimili' margra auðugra borgarbúa, sem höfðu salnað verkum hans. Sum- ar myndir hans voru mikilúðlegar og stórbrotnar, aðrar sýndu nærri því kvenlegt ímyndunarafl og fínleika. Daginn sem ég átti að fara var stormur í aðsigi. Það var í desember. og dagurinn var ekki mikið lengri en þrjár stundir. Grár kollurinn á Esj- unni reis úr móðunni, en var stund- um hulinn hríðarmekki. Hríðin var líkust hagléli, en vindurinn feykti kornum eins og fjöðrum og þau fest- ust varla á jörðunni Á einni bryggj- unni var kynnt bál, svo að þegar við skildum við ísland var það ósvikin biblíumynd af eldi, myrkri og hagli, sem síðast hvarf í hafið. En þar búa spámenn og englar. (Lausl. þýtt. Stytt.) —-----------------1 Þarflegasta \ ■ r I ■ .. f * jolagjofin er högg- og vatns j: held armbandsúr jj Mjög gott úrval af kven- og karlmannsúrum fyr- j: irliggjandi. Ábyrgðarskírteini j: frá úrsmíðameist- jj ara fylgir hverju ij úri. BRYNJÓLFUR SVEINSSON H.F. j Andlitsvötn Ilmvötn Hárvötn — gamalla blóma angan — jj eru menningaraukandi hreinlætislyf. eru kærkomnar jóla og tækifærisgjafir | Fást víða í verzlunum. Fást víða í verzlunum. : j: Einkarétt til framleiðslu Einkarétt til framleiðslu j j og innflutnings hefir og innflutnings hefir j Aíengisverzlun Ríkisins Aíengisverzlun Ríkisins \ JÖLABLAÐ DAGS 25

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.