Dagur


Dagur - 24.12.1946, Qupperneq 20

Dagur - 24.12.1946, Qupperneq 20
Það eru nú full 16i/£ :*r Hðin, síðan Páll Jónsson Árdal, skáld og kennari, andaðist á Akureyri 73 ára að aldri. Þó að ekki sé lengra liðið frá dauða lians, finnst mér sem of miklum fölskva hafi slegið yfir minningu lians, einkuni meðal ungu kynslóðarinnar. En þar sem hér er að mínu viti og sjálfsagt margra annarra um aðræða einn hinn merk- asta rnann þessa bæjarfélags og jafnvel alls Norðlendingafjórðungs um áratuga skeið, þykir mér rétt að fara nokkrum orðum urn þenna sveitunga minn, samstarfsmann og vin lúnn síðari hluta æfi lians. skapariðju. En hvað sem um skáldskapar- gildi sögunnar má segja, mun þó einsdæmi á þeim tíma, að heimaalinn unglingur um tvítugt léti frá sér fara að minnsta kosti vel læsilega skáldsögu, sem hún óneitanlega er. Eittlivað óvenjulegt hlaut að búa í þeim ungling. O Ö Scigunni fylgdu tvö eða þrjú kvæði eftir Pál. Eitt þeirra á meðal var kvæðið Fossinn og eikin, sem mun hafa verið lært og sung- ið víða um land. Það þótti snilldarvel kveð- ið af vel dómbærum mönnum. Fyrir það var höfundur þess þegar viðurkenndur sem gott ljóðskáld á unga aldri. —o— Páll Árdal var fæddur 1. febrúar 1857 á Helgastöðum í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði. 18 Foreldrar hans voru Jón Pálsson og Kristín Tómasdóttir, búandi hjón þar. Jón var nrað- ur vel greindur, en talinn fremur sérvitur. Kristín var orðlögð gæðakona. Páll var einkásonur þeirra, en auk þess áttu þau nokkrar dætur: Aðallijörgu, gifta Siggeir Sigurpállssyni, vel skáldmælta, þó að hún léti lítið á því bera; Guðrúnu, gifta Sig- fúsi Hanssyni, þeirra dcíttir er Kristín skáld- kona; Sigríði, gifta Jósep Jónassyni; þeirra sonur er Pálmi kennari í Reykjavík; og Rannveigu, gifta Ingimar Friðfinnssyni. Páll ólst upp með foreldrum sínum á Helgastöðum til fullorðins aldurs. Þegar Möðru val laskól inn var stofnaður, sótti hann þegar um inngöngu í hann. Þaðan út- skrifaðist hann 1882 með góðri fyrstu eink- ttnn. Hann hefir sjálfsagt verið vel undir námið búinn, bæði vegna ancllegs og lík- amlegs þroska og af lestri bóka í uppvext- inum, því að snemma var hann bókhneigð- ur og færði sér vel í nyt þann bókakost, sem þá var lyrir hendi. Fyrst gerðist hann barna- kennari í Fljótsdalshéraði og síðan kennari við barnaskóla Aknreyrar í 43 ár, frá 1883 til 1926, af þeim tíma var hann skólastjóri 17 ár. Jafnframt var hann um skeið tíma- kennari við gagnfræðaskólann á Akureyri. Um niörg sumur stundaði hann vegaverk- stjórn úti í sveitum og var eftir það bæjar- •verkstjóri á Akureyri í nokkur ár. Um 6 ára tíma rak hann smáverzlun á Akureyri. Frá 1886—1889 gaf hann út hálfsmánaðar- blað, er hann nefndi Norðurljósið, og rit- stjóri blaðsins Stefnir var hann 1893—1897. Náttúrufræði var jafnan uppáhalds- fræðigrein hans. Hann samdi Ágrip af nátt- úrusögu handa alþýðu er út kom á Akur- eyri 1884 og var lengi notuð sem skólabók. Páll Árdal var fríður maður sýnum, dökk- ur á brún og brá, feitlaginn og nokkuð þyngslalegur í gangi á efri árum. Venjulega var ltann alvarlegur á svip, jafnvel stundum þungbúinn, en gat þó brugðið fyrir sig glettni og gamanyrðum; engan mann hefi ég heyrt hlæja dárra en hann, þegar eitt- hvað skringilegt bar á góma. Hann var næm- ur á allt hjákátlegt í fari manna og hermdi oft eftir ýmsum körlum, er hann hafði kynnst í æsku. Hann átti lengstaf í vök að verjast vegna efnaskorts, en eitthvað rakn- aði úr baslinu á síðari árum lians. Sjón- depra bagaði honum mjög síðustu árin. Páll andaðist 24. maí 1930 að beimili sínu á Akureyri, og kona hans, Álfheiður Eyj- ólfsdóttir frá Hamborg í Fljótsdal, fjórum dögum síðar. Þau höfðu þá lifað í farsælu hjónabandi 45 ár. Þau áttu þrjú börn, er upp komust, einn son og tvæ-r dætur. —o— Ljóðræni strengurinn ómaði sífellt í sál Páls Árdals. Hal'ið er yfir allan efa, að það verða kvæðin hans, sem lialda nafni lians á lofti á ókomnum tímum. Þegar Páll var sextugur, kvað síra Matthías til hans afmæl- isbrag. Meðal annars segir þar; Kii ri Páll, þín kv;uðin mjúku kveða eyfirzkt lag; Hallgrímssonar harpan Ijúfa hljómar enn í clag. Ekkert gort né tízkutildur, tállaus, skrumlaus, hreinn og mildur sami til vor andar óður eins og barni móður. Hér er raunar allt sagt, sem segja þarf, um fjöldann af kvæðum Páls Árdals. Þau eru mjúk, hrein og mild og minna víða á hörpu „listaskáldsins góða“. Kært yrkisefni beggja er sólin og vorið. Páll byrjar eitt kvæða sinna á þessa leið: Kf tg væri söngvari, syngi ég ljóð um sólina, vorið og lancl mitt og jrjóð. jónas yrkir um sólina: Hníg þú lióglega i hafskautið mjúka, röðull rósfagur og rfs að morgni, frclsari, frjóvgari, ftigur guðs dagur, blessaður, blessandi blfður röðull þýður Páll kveður um sama efni: Ó. dýrð sé þér, dagsljarnan bjartal Dalanna gyllir Jrú lilíð, þú neyðir burt náttskuggann svarta, nú lifnar blómrósin fríð: allt vermir Jiín vórblíðan blý, allt vaknar ti ný. Nú bljómar frá sérhverju bjarta: Dýrð þér, dýrð þér, dýrð þér, ó, dýrð sé þér, dagstjarnan bjarla. JÓLABLAÐ DAGS PÁLL J. ARDAL, SKÁLD Eftir INGIMAR EYDAL Þegar ég var barn að aldri í Skriðu í Saurbæjarhreppi, var gefin út á Akureyri skáldsaga, er nefndist Skin og Skuggi. Höf- > undur hennar var unglingspiltur þar'í nágrenninu. Eg heyrði tal- að um, að hann hefði samið sög- una að næturlagi í hjásetu yfir kvíaám uppi í fjalli, en sönnur á því veit eg ekki. Þetta sögukorn mun vera skáldskajrarfrumsmíði Páls Árdals. Mikið var Skin og skuggi lesin af almenningi hér um sveitir og þótti að þeim lestri góð dægrastytting, en ekki þótti hinum vitru mönnum sagan veigamikið skáldverk, enda var hún það ekki og mun að mestu fallin í gleynisku. Man eg, að bóndi einn í greindara lagi hafði hana eitt sinn handa á milli og las á titilbláðinu: „Skin os skuggi, lítil skemmtisaga, eftir Pál Jónsson", og bætti síðan við: „Já, það er satt, þetta er lítil skemmtisaga." En hún er samt merki þess, að snemma beygðist krókurinn til þess, sem verða vildi hjá Páli, að fást við skáld- Páll ]. Árdal

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.