Dagur - 24.12.1946, Síða 22

Dagur - 24.12.1946, Síða 22
Sjórinn var sléttur eins og spegill. Báran, sem kveður svo oft hrikalega við unnarstein, svaf og hafði sofið í marga daga. Friður og heilög ró virtist hvíla yfir öllu. Það var yndislegt vorkvöld. Eg sat í mjög þægilegri bifreið, sem rann fram veginn á 30—40 km. hraða, á móti vorblænum, hlýjum og hressandi. Fuglarnir sungu alls staðar vorljóðin sín. Þessir söngelsku vinir, sem nýlega voru komnir um óravegu liafs og landa, sam- stilltu nú söngva sína um ástina og vorið. Áin, þessi gullfagra elfa, sem ber af öllum systrum sínum, sem til sjávar falla, söng líka um dásemdir lífsins, þegar móðir vornátt- úra skartar fegurst um íslenzka vornótt. Og á ýmsum stöðum kastaði hún silfurgljáandi perlum sínum á blómskrúð það, sem vafið hafði sig upp eftir bökkum hennar og skreytt hafði jafnvel ískaldan steininn hin- um fegurstu rósum. Ofurlítill lækur kom syngjandi ofan heið- ina. Hann söng við blómin, sem fest höfðu rætur á bökkum hans og sem breiddu nú úr blómkrónum sínum á móti þessu skapandi vori. Skógurinn, þessi yndislegi, íslenzki gróð- ur, sem í aldaraðir hefir barizt fyrir tilveru sinni, við ill lífsskilyrði og margar ráns- Jiendur, bar nú þess Jjósan vott, að nú var vor — gróandi vor. Gulrauður bylgjaði hann si<> um hæðir og holt í sumnanandvaran- um, og í skjóli hans og við rætur hans mátti sjá litfagurt blómaskraut, hinn minnsta gróður jarðar. Jafnvel kolsvartir hraun: klettarnir virtust svo hlýlegir og vinalegir í geislaflóði kvöldsólarinnar. Vorgyðjan var alls staðar setzt að völdum og skartaði nú hinum fegursta skrúða og beindi öllum gróðri jarðar upp á móti Iiækkandi sól og fram á móti komandi sumri. Inn um opinn gluggann á ltifreiðinni kom liinn mildi og lilýji vorblær og klapp- aði mér svo undurþýtt á vangann og með honum barst mér til eyrna söngur árinnar, sem eg þekkti svo vel frá æsku. Þegar eg vaknaði við strengjaspil hennar að morgni og sofnaði út frá því að kvöldi. Austur á árbakkanum var blettur, sem Eftir HELGA KRISTJÁNSSON bar af öðrum. Þarna gamalt býli, en í eyði síðan 1784, þegar hin geigvænlega móða dauðans lá yfir öllu íslandi, svo svört og þung, að ekki sá til sólar vorlangan daginn. Eg kvaddi samferðafólkið og gekk austur á árbakkann. Eg settist á hólinn, þar sem bærinn hafði staðið. Nú voru þar rústir ein- ar, næstum því jafnaðar við jörðu. Nóttin var liljóð og hlý. Áin var það eina, sem rauf þögnina. Hún rennur þarna austan við hól- inn og hefir runnið þar í aldaraðir. Hún ein getur sungið þar um löngu liðna atburði, hún ein hefir sungið þar skírnar og útfarar- sálma margra kynslóða. Eg hallaði mér út af, þar sem nýgræðing- urinn var mestur, hann var kominn vel af stað í áttina til sólar. Eg hlustaði á söng ár- innar, horfði á leik fuglanna, fann ilminn af ungum gróðri. Mér fannst eg vera að hlusta þarna á fag- urt kvæði, eða glæsilegt sönglag, sem fyllti sál mína þeim unaði, að eg mundi bara að- eins eitt, að það getur stundum verið dá- samlegt að vera til. Eg fór að hugsa um það, hvað margir þeii mundu nú vera, sem staðið hefðu þarna á hólnum á umliðnum árum og öldum og horft undrandi á slíka fegurð, þegar dagar suðrænna landa og íslenzkrar vornætur fall- ast í faðma yfir fjöllum og vogum, fossum og ám. Þetta var mér allt saman eins og nýr heimur, en mörgum kynslóðum gamall, langt aftur í grárri gleymsku. Sagt er, að sagan sé andlegur spegill nátt- úrunnar, og sé það rétt, þá hefir þarna gerzt saga. Saga þeirra, sem sóttu allan sinn þrótt, allar sínar fegurstu hugsjónir til hinnar skapandi orku, sem bezt opinberar sig í ís- lenzkri vornótt á hverju gróandi vori. Hugsjónir þær, sem mynduðust í svona umhverfi, þróuðust við slík skilyrði, voru þess megnugar, að kveikja á þeim arni, sem yljaði kaldrifjaðri samtíð. Tendra þá kyndla, sem lýstu eins og vitar í hinu kol- svarta næturmyrkri miðaldanna og langt fram til hinna óbornu kynslóða. Og enn í dag lýsa þessir kyndlar, sem kviknaði á, inn í löngu föllnum moldarkofum, þessari kyn- slóð, og vermir hana þangað til hún lítur sólina í síðasta sinn, síga bak við fjöllin. T illögur um jólagjajir Svuntur geta verið laglegar jólagjafir. — Þessi er úr olíubornu silki (oilskin). S'kræp- ótt og skozk léreft eru engút síðri. í hanzkapokann er notað: 2 herðatré (slá- laus) og mislitur silkistúfur eða annað efni. Efnið á að vera 60 cm. á lengd eða ca. U/o lengd herðatrésins. — Efnið er smáfellt og l'est við trén með smánöglum eða teikniból- um. Hliðarnar eru dregnar saman með teygju. Það kemur sér vel að geta látið dúkunum líða sem bezt. Rúlluna þá arna er auðvelt að gera úr pappa. Dúkurinn er einnig „heimagerður". JÓLABLAÐ DAGS 20

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.