Dagur - 24.12.1946, Qupperneq 33
H L I Ð I Ð
(Framhald af bls. 11)
á kaf í mosann einhverja nóttina. Þá væri
gamla hliðið lians ekki lengur til. Það var
sárt að hugsa til þess, en þó ljúft um leið,
því að ef til vi 11 voru einhver beztu enda-
lokin fyrir gamalt 'hlið að hverfa hljóðlega
burt og blandast jarðvegnum, leita á náðir
moldarinnar, sem á víðastan faðminn af
öllum.
Hann jók hraðann, þegar hann sá kirkj-
una. Já, þarna komu þær, Britta og dæt-
urnar tvær. Þær veifuðu til hans á löngu
færi, og glaðar raddirnar hljómuðu til hans
með golunni.
- UNGUR VAR EG -
(Fratnhald af bls. 15)
(1883). Var það leikurinn Hallur, þýddur
og heimfærður af Tómasi Jónassyni. Þótti
hann skemmtun góð, þótt húsakynni væru
í fátæklegasta lagi. Og nokkurs umvert var
það, að þessi tilraun hratt af stað annarri
miklu umfangsmeiri (leiknum „Afturhalds-
maðurinn," eftir Ara Jónsson) sem varð
mjög til hjálpar nytsemdarfyrirtæki (fyrstu
brúnni á Þverá ytri).
Rétt fyrir 1880 var farið að hugsa um að
kenna börnum meira en áður fyrir lerm-
ingaraldur. Skriftar- og reikningskennsla
var tekin upp auk kristindómsfræðslunnar
og jress, að lestrarkunnátta þurfti mikilla
umhóta. Þessu var af vanefnum fylgt á vetr-
um, helzt með því að taka kennara heim á
heimilin fáar vikur. Vildi þá gleymast það,
er numið var á hinum margfalt lengri tíma
ársins. Þetta hafði Menntvinafélagið í huga,
er það lagði í þá framkvæmd að liafa ol'ur-
lítinn sunnudagaskóla að sumrinu með
börnum á námsaldri, einkum til viðhalds
því, sem lærðist að vetrinum. Félagið valdi
tilsagnarmenn, og lagði stund á þetta í 2
—3 sumur.
Vorið 1885 fékk Menntvinafélagið Guð-
mund Hjaltason til að hafa fyrirlestur á
sumardaginn fyrsta. Seinna vors hafði eg
annan um grasafræði, og gat þá sýnt lifandi
plöntur til skilningsauka á byggingu þeirra.
Veturinn 1885—86 kom Menntvinafé-
lagið til vegar unglingaskó 1 akenns 1 u um
nokkrar vikur. Fór hún frani á Þverá með
lýðskólasniði og álveg samá •fyrirkomulagi
sem byrjun unglingaskóla á Ljósavatni nær
20 árum síðar, en sem hefir verið talin upp-
liaf til Laugaskólans. Nemendur á Þverá
voru 14 eða 15 og kennari Sigtryggur Guð-
laugsson. Má vera, að framhald hefði orðið
á Jreirri kennslu, ef eigi hefðu nú þau at-
vik borið að höndum, sem beindu straum-
fari í aðra átt.
Þessi fáu ár mátti kalla að félagsskapurdnn
gengi vel. Færði að vísu lítið út kvíarnar,
en félagsmenn vorú trúir skuldbindingum
sínum og störfum og jafnan vinnuglaðir.
Vísir litli hélt áfram að koma út vetrarlega
og var jafnan velkominn gestur.
Haustir 1886 andaðist faðir minn tæpra
Góð tíðindi!
Nú geta landsmenn tryggt eigur sínar í
eigin tryggingafélagi.
Talið við kaupfélögin og fáið upplýsingar
um brunatryggingakjör vor.
Umboð á Akureyri:
Arnþór Þorsteinsson, Gef jun.
Samvinnutryggingar
R e y k j a v í k
JÓLABLAÐ DAG 3
31