Dagur - 23.12.1959, Blaðsíða 2
2
JÓLABLAÐ DAGS
§ STEFAN V. SNÆVARR: ifi
„Guðsríki er hið innra með yður"
★ ★ Jólalmgleiðing ★ ★
Á heilagri stundu lyftist hugur
vor upp frá fábreytileika hins
liversdagslega. I lugnr og hönd, sem
dögum og vikum saman er beitt til
hins ýtrasta við hversdags-leg við-
fangsefni, sem að vísu eru nauðsyn-
leg til að afla oss viðurværis, — fær
hvíld. Hið hversdagslega og vana-
lnindna hverfur, og vér njótum
gleði heilagrar hátíðar sem I)ezt vér
getum. — Það er að vísu á æði mis-
jafnjin hátt, sem vér leitum hátíðar-
gleðinnar, — og, því miður, stund-
um á mjög óverðugan óviðeigandi
hátt. F.n sama er um það: Allir vilja
þessa liátíð eiga og enginn af henni
missa. — F.n livernig ætli að standi
á '])ví? F.ru það aðeins gjafirnar,
fínu fötin og góði maturinn, sem
því ræður? Kgbeld ekki, því að allt
þetta getum vér öðlast á iiðrum
tíma ársins og sumir oft á ári. Um
hásumarið getum vér klæðst fín-
ustu fötum og neytt hinna góm-
sætu kræsinga og gefið góðar gjafir.
En — það verða ekki jól íyrir því.
Við getum á hvaða tíma, sem er,
búið oss verulega hátíð, sem að öll-
um ytra búningi og tilhöfn líkist
jólunum, en eigi að síður verða þó
engip jól. Þrátt fyrir allt umstangið
og ytri viðhöfnina, verðum vér
éisnortin af þeim hátíðleik og þeirri
helgi, sem gagntekur hjiirtu vor á
hverjum jólum. Hvað veldur? — F.f
til vill segir einhver, að það séu dá-
lítið brosleg áhrif frá fyrstu
bernsku vorri, á meðan vér vorum
ennþá börn og trúðum á tilveru
jé)lasveina og búálfa. Áhrif, sem
hinn þroskaði og fulhnótaði maður
hefur ekki kært sig um að losa sig
við með öllu, af ])ví að þau séu
óskaðleg og í ájálfu sér bæði nota-
leg og skemmtileg. Það getur verið,
að þetta eða eitthváð því um h'kt
sé þitt svar. F.n — ef þét svarar
þannig, þá ertu að blekkja þig. —
Þetta'er ekki rétt. iÞér finnst það
máske í svipinn vera rétt, en það
er það ekki. — Það, sem veldur, eru
ekki brosandi áhrif frá bernskudög-
unum, heldur aðeins tilefni liátíð-
arinnar: Fæðing Jesú Krists. — Ég
er ekki að væna þig uin neinn
óheiðarleik, hvorki við sjálfan þig
eða aðra, en það, sem veldur því,
að þéi getur aðeins ein jól átt og að-
eins á þessum tíma, er það, að innst
í hugskoti þínu, — innst í sálu
þinni, — að baki allrar heimshyggju
og veraldarvafsturs, — að baki al.lr-
ar vantrúar og .efasemda, felst viss-
an um heilagleika hátíðarinnar og
hin raunverulega þrá til að gríþa
fegins Iiendi gleðifregnina miklu:
að mér og þér sé frelsari fæddur. —
Þetta er innst í hugskoti þínu, en
það er. sem farg liggi á þessari
vissu, svo að hún fær ekki að njóta
sín. Ég held að það sé mcst fyrir
það, að þú þorir ekki að trúa þessu.
iÞér finnst þetta svo dýrðlegt og
mikilsvert, að þti getur ekki áttað
þig á, að það geti verið rétt. Þú ert
eins og maður, sem hefur verið í
Iiáska staddur, en sér hjálpina nálg-
ast. Hann opnar augun og lokar
þeim til skiptis, til að fullvissa sig
um, að það scm hann sér, sé raun-
veruleiki, en ckki draumur. í dag
þarftu ekki að opna og loka augum
iþínom til skiptis, til að sannfæra
þig. I>ig er ekki að dreyma. Það er
raunveruleikur, að þér og mér er
frelsari fæddur, sem er Kristur
Drottinn í borg Davíðs. — (Það er
þess vegna, sem hugur þinn og
hjarta er öðruvísi í dag en vant er.
Það er þess vegna, sem hin unaðs-
legu geðhrif mýkja, ylja og verma
h jarta þitt, það er þess vegna, að
þéi getur aðeins átt ein jól.
I dag hvílist hugur þinn og
Irönd. Hið mikla farg, sem hvers-
dagslcga þyngir sálu þinni og
hindrar trúargleði og trúarvissu
þína, er néi léttara en ella. Þess
vegna er betra að tala við þig í dag
en endranær. Ég endurtek því boð-
skap englanna: Yður öllum og þér
líka er í dág frelsari fæddur. — En
hvað þýðir það, að frelsarinn er
fæddur? I Iefur það nokkra þýðingu
fyrir mig eða þig? — Já, það hefur
úrslitaþýðingu. Vegna þess, að sá