Dagur - 23.12.1959, Blaðsíða 8

Dagur - 23.12.1959, Blaðsíða 8
8 JÓLABLAÐ DAGS HOLMGEIRÞORSTEINSSON: Fyrsta hreppsnefnd Saurbæjarhrepps Um 1874 varð sú breyting á s'kip- an sveitarstjórnar á landi hér, að kjósa skyldi menn í hreppsnelnd, 3 eða 5 eða 7 í liverjum hreppi eftir stærð þeirra. 1 Saurbæjarhreppi var ákveðið að 7 menn skyldu kosnir í hrcpps- nefnd. Aður Jiölðu tveir hreppstjór- ar með höndum öll málefni sveitar- innar. En með hinni nýju skipan skyldi cinn hreppstjóri vera í hvcrj- um lirep])i, skipaður af sýslumanni, og var ákveðin verkaskipting milli 'hreppstjóra og lireppsneíndar. Fyrsti hreppstjóri í Saurbæjar- hreppi, eftir hinni nýju skipan, mun ha£a verið Þorsteinn Thorlac- ius í Öxnafelli. Breyting þessi vakti allmikla at- iiygli í lirejipunum og var ýmislcgt um hana rætt, — í gamni og alvöru. Um þetta leyti bjó á litlum parti úr iHvassafelli, 1854 til 1874, bóndi sá, er Sveinn hét Jónsson. Kona hans hét Helga Jóhannsdóttir. Frá tíð þeirra í Hvassafelli má enn sjá stekkjarbrot sunnan og ofan við bæinn í Hvassafelli. Heitir þar enn í dag „Sveinsstekkur". Sveinn Jónsson cr fæddur um 180G. Hann var sonur Jóns bóndi á Þonnóðsstöðum og konu hans Mar- grétar Símonardóttur. Jón á l>or- móðsstöðum var sonur Ólafs á Ongulsstöðum Sigfússonar og ikonu hans Þóru Jónsdóttur bónda í Holtsscli Hallssonar. ‘Sveinn Jónsson í Hvassafelli var nokkuð hagmæltur og gamansam- ur, cn haíði dálítið sérkennilegt málfæri. Síðasta árið, sem Sveinn bjó í Hvassafelli, mun í fyrsta sinni hafa verið kosin hreppsnefnd í Saurbæj- arhneppi. Ifreppsnefndina skipuðu sjö menn sem áður segir. Um jiessa nýbreytni orti Sveinn Jónsson: Enginn skyldi orðaklúr út í þvílíkt blaðra, sjö eru húfur silki úr set.tar hver á aðra. Og svo koma nöfnin á „silkihúf- unum“: .Vitur Ketill, Vigfús, Jón —- vart ég nokkurn skensi, — er Hallgrímur ekkert flón, Austmann, Páll og Bensi. Hreppsnelndina skipuðu þessir bændur, ásamt prestinum í Saurbæ, allt allvel megandi menn, greindir og gegnir: 1. Ketill Sigurðsson, bóndi í Mikla- garði. 2. Vigfús Gíslason, bóndi í Sam- koinugerði. 3. Jón Jónsson, bóndi á Æsustöð- um. 4. Hallgrímur Thorlacius, bóndi á Hálsi. 5. Séra Jón Austmann, prestur og bóndi í Saurbæ. G. Páll Steinsson, bóndi á Tjörnum. 7. Benedikt Jóhannesson, bóndi í Hvassafelli. í ritinu „Amma“ II., Reykjavík 1938, er fyrri vísa Sveins Jónssonar tilfærð, og þar talin vera eftir Svein Sveinsson — (Sigltivíkur Svein). — Þetta mnn ekki vera rétt, og skal nánar að jiví vikið. Jón Tómasson, bóndi á Arnar- stöðum í Saurbæjahhreppi, greind- ur maður og minnugur, var sam- tímamaður þessa atburða. Hann mundi Svein í Hvassafelli mjög vel. Jón Tómasson bjó á Arnarstöðnm 1874, og hefur eflaust verið einn af kjósendum fyrstu hreppsnefndar- innar í Saurbæjarhreppi. Hanti fullyrti að vísurnar um hrepps- nefndina væru eftir Svein Jónsson í 1 Ivassafelli. Vísur þessar munu aldrei hafa verið fleiri en þær, sem hér eru til- lærðar. \ I ungdæmi .mínu heyrði ég eitt sinn gamlan mann — Sigurð Jóns- son söðlasmið í Árgerði — fara með vísur þessar, sem hann sagði vera eftir Svein í Hvassafelli, og hertndi eftir honum, ]ní að eins og áður segir, hafði hann dálítið sérkenni- legt málfæri. Eg tel því öruggt að vísurnar unt fyrstu hreppsnefndina í Saurbæjar- hreppi séu eftir Svein Jónsson í Hv.assafelli. Aftur á móti hef ég heyrt vísu um sama efni, en lnin er svona: í staðinn fyrir stýri tvö, sem stjómuðu sveitarleppnum, cru nú húfur silki sjö settar upp í hrcppnum. 1 leíur mér verið sagt að Jaessi vísa væri eftir Svein Svcinsson — Sigluvíknr Svcin, — en ekki veit ég um sönnur á því. Má þó vel vera að satt sé. Væri mér þökk á, ef einhvcr vissi betur og léti mig vita.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.