Dagur - 23.12.1959, Blaðsíða 22

Dagur - 23.12.1959, Blaðsíða 22
22 JÓLABLAÐ DAGS un til að komast í Hafnarháskóla þá um sumarið, en skorti farareyri. Hann segir í Hiéfi til kunningja síns, að hann hafi leitað til Jóns Sigurðssonar ríka á liöggvissöðum um 50—60 specía lán og hefði karl- inn tekið vel í það, ef kona sín dæi ekki fljótlega. En kerlingaranginn t<ík upp á því að deyja og þá komu eignirnar til ski]3ta, og þar með var sú fjárvon útilokuð. Líklegt má telja að Jónas hali sent ástmey sinni afrit af hugijúfa kvæðinu, sem hann orti urn skilnað þeirra á Steinsstöðum, og serii nann nefnir: Ástin mín. En seinna nefnir hann kvæðið: Ferðalok. Eða a. m. k. þessar einkarfögru ljóðlínur: Greiddi ég þér lokka við Galtará (V.el og vandlega. Brosa blómvarir, blika sjón stjörnur, roðnar heitur lilýr. Hélt ég þér á hesti í hörðum straumi og fann til fullnustu, að blómknapp þann gæti ég 'borið og varið öll yfir æviskeið. Skrifari hjá landfógeta. Um jiessar mundir stóð Jónasi til boða skrifaraembætti hjá landfó- geta. 'hað var virðingarstaða og vel borguð, — og téik Jónas við því sumarið 1829. Við ]>að starfaði hann 3 ár. Var hann í miklu áliti hjá húsbónda sínum og nokkrum sinnum settur verjandi í sakamál- um. Jónas té>k virkan þátt í skemmtanalífi bæjarbúa. Orti mörg kvæði af dtinsku bergi brotin. Um ]>að lcyti kornst hann í kynni við unga og fríða stúfku af dönskum ættum. En ekki er vitað, hvað því hefur valdið að þau giftust ekki, en líklegt er að Jónas hafi ekki viljað binda sig hjúskapafböndum sökum þess að hann hafði sterka löngun til að komast á Hafnarháskóla. Enda leið nú að því. Til Hafnar. Sumarið 1832 tók hann sér far til Kaupmannahafnar, fékk vist á Garði og inntöku í háskólann. Lagði hann fyrst fyrir sig lögfræði, en hvarf síðar að náttúrufræði. Tók hann próf í þeirri grein með ágæt- um vitnisburði sumarið 1838. Sem kunnugt er starfaði hann svo nokk- ur ár hér heima á Islandi við nátt- úrufræðirannsóknir, þ. á. m. hér um Eyjafjörð, Hörgárdal og Oxna- dal. Eitt sinn kom Jónas lieim að Steinsstöðum um tniðja nótt, þegar sólin var að koma upp, en hún kemur mjög sncmma upp í Öxna- dalntim fyrri part sumars, og skín þá beint inn í clalinn. Urðu Jónasi þá af vörum eftirfarandi Ijóðlínur: Þar sem liáir hólar hálfan dalinn fylla, þar sem hamrahilla hlær við skini sólar, árla, fyrir óttu, ennþá meðan nóttu grundin góða ber, græn, í faðmi sér. Jónas fluttist alfarinn til Kaup- mannahafnar haustið 1843. Hann var í Sórey um veturinn og leið þar prýðilega hjá Steenstrup, vini sín- um, náttúrufræðingi. Þeir höfðu unnið saman að náttéirufræðirann- sóknum a. m. k. eitt sumar hér heima á íslandi. Vorið 1844 var Steenstrup kallaður til fylgdar við Danaprins um Norðurállu og flutti þá Jónas til Kaupmannahafnar. Svo sem kunnugt er var Alþingi endurhcimt sumarið 1845. Voru þá mikil lundahöld meðal Islendinga í Höfn og bænaskrár samdar viðvíkj- andi verzlunarfrelsi og fleiri mál- um, sém leggjast áttu fyrir Alþingi, og mun Jé>nas lrafa vet ið einn ötul- asti maðúrinn við það starf. Slysið, sem leiddi Jónas til bana. iÞann 20; maí kom Jónas seint að kvöldi lneim, en þegar Itann var.að fara uj>]> stiga til herbergis síns, hrasaði hann svo hastarlega að liann sló hægra l'æti í stigaröðina og hrukku báöir lotleggirnir sundur rétt ofan við.öklann. Jónas var afar liarðgér maður og mun ha'fa stigið eitthvað í fótinn og í rúrnið kómst hann hjálparla-ust. Þegar læknir kom um morguninn til að gera við fótirin, stóðu brotin rit úr höí'undinu. Var Jónas síðan fluttur í sjúkralnis og leíð hontun þar vel cl'tir ástæðum. IÞegar' læknir kom að kvöldi 25. sama mánaðar, að skij>ta um á fætinum, sá hann að drep var komið í sárið og ekki um annað að gera en taka fótinn af, en hugðist draga það til næsta morguns. En þá var það um seinan, því að Jónas dó áður en læknirinn kom, og er 26. maí dánardagur Jónasar. Aldrei hafði verið gerð mynd af Jóriasi meðan hann lifði, en Helgi Sigurðsson Irá Jöhfa, síðar prestur á Sethergi, þá á Iláfnarháskóla og einn af vinnm Jónasar, teiknaði myndir af Jónasi látnum, sem síðar hafa verið birtar ljósmyndir af, og er honum að þakka að til eru myndir af Jónasi Hallgrímssýni. Jérnás var til gralar borinn 31. maí og voru allir íslendingar, sem þá vorú í Höfn við jarðarför háris. ÍÞessi æviatriði Jónasar Hall- grímssonar áttu að komast á fram- færi í fyrrasumar. Þá var haldin hátíðleg minning ]>ess að liðin voru 150 ár frá því að Jónas fluttist ineð foreldrum sínum að Steinsstöðum (sjö mánaða gamall).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.