Dagur - 23.12.1959, Page 3

Dagur - 23.12.1959, Page 3
JÓLABLAÐ DAGS 3 frelsari sem oss mönnunum er fæddur, er máttugur, voldugur og sterkur. Hann er kominn í sérstök- um erindum til allra. Ekki þó í hóp, lieldur til livers og cins um sig. Hann er korninn til þess að leiða þig, liver sem þú ert, ef ]>ti að- eins vilt leiðsögn hans þiggja. Hann er kominn til að leiða þig heim, — heim til þess Guðs, sem skóp þig, — heim til 'þess Guðs, sem er l'aðir þinn og elskar þig og vill ekki að þú glatist eða farist á leiðinni. — heldur hafir eilíft líf. Ifann er kominn lil þess, að bera sáttarorð milíi þín, sem sekur ert, og föður ins, sem þú hefur brotið gegn. Hverja skoðun, sem vér kunnum að hafa á eðli mannsins, þá breytir það ekki þeirri staðreynd, að öll crum vér meira og minna sek — og flest meira — og það svo mjög, að raunverulega höfum vér fyrirgert Guðsbarnarétti vonwn og ættum að fá sektardóm. En frelsarinn er kom- inn til þess að segja oss, að annað sé til en dómurinn. Hann er kom- inn til að segja oss, að til sé fyrir- gefandi kærleikur og náð, sem oss sé óhætt að leita til og trúa á. Hann er kominn til að telja liinum villu- ráfandi syni hughvarf. Til að fá hann til að snúa aftur og bæta ráð sitt. Og hann er kominn til að gefa syninum, sent eytt hefur arfi sínum, hlutdeild í gnægð sinni. Hann er ekki eins og eldri sonurinn í dæmi- sögunni, sem fylltist gremju og mis- þykkju í garð yngra bróður síns, sem var vegvilltur og l'ann sig ckki verðan þess, að kallast lengur son- ur. Nei, — hann er einmitt kominn til að Jeita Itins týnda og leiða hann heim og fullvissa Iiann um, að heirna bíði hans opinn kærleiks- ríkur föðurfaðmur. Og hann þarf ekki einu sinni að komast alla leið heim, — því að, þegar faðirinn sér hann álengdar, sntiinn heim á leið, þá kemur hann til rnóts við hann. Það er aðeins þetta eina, sent hinn vegvillti sonur þarf að gjöra: að snúa við, — snúa heim á leið. Til ’þessa er frelsarinn kominn í heim- inn, og hann vill hjálpa þér að snúa við. Hann vill taka byrði þína sér á herðar. Ef þii ert veikur, vill hann hjálpa þér, Ef þú ert vondaufur, gefur hann þér kjark. Ef þii ert magnþrota, sendir hann þér styrk. Hann er eldri bróðir, sem vill hjálpa yngri bróður sínum og veita honum hlutdeild í hinum mikla arfi, setn hann á ósnertan og hefur ekki eytt. Frá honum streymir ást og kærleikur. ;Það veitir hjarta þínu hvíld og frið á heilögum jólum og endranær. „í dag er yður frelsari fæddur.“ — Hann er kominn til að flyr ji þér „gleðilcgan boðskap“. Veita þér ldutdeild í ríki sínu. Hann kont ekki aðeins til að flytja þig til Guðsríkisins, Iheldur einnig að flytja Guðsríkið til þín, — og þann- ig er þá Guðsríkið ekki óljóst fyrir- heit í ómælisfjarlægð, heldur er það eins og hann sjálfur sagði: „liið innra með yður“. Þegar þú því nýt- ur jólabelginnar, þá eru Jrað ékki broslegar bernskuminningar, held- ur er ]>að nálægð Guðsríkisins í þínu eigin hjarta, sent þú finnur. Reyndtt þá að láta ekki annriki hversdagslífsins ' kæfa jólagleðina, og útrýma jétlaboðskapnum úr hjarta þínu. Láttu ekki heldur sektarmeðvitund þína eyða voninni um fyrirgefninguna. Minnstu Jtess, að þér er „í dag frelsari fæddur“. Hann er ekki aðeins frelsari Jtinn og bróðir á jólunum, heldur eilíf- lega. Þökkum af hjarta gleðiboð- skapinn: „Yður er í dag frelsari fæddur.“ „Guðsríki er hið innra aneð yður.“ GLEÐILEG JÓL! A nt e n . KIRKJAN VIÐ ENGLAVÍK Strandarkirkja er nafnkenndasta kirkja landsins og er talin verða betur við áheitum en aðrar stofnanir og hafa henni því borizt miklir fjármunir á ári hverju. Kirkja þessi er því auðug á okkar mælikvarða, og er orðin öflug lánastofnun. Meðal annars lánar hún til kirkjubygginga víðs vegar. Það voru islenzkir menn, sem endur fyrir löngu komu fi’á Noregi, lentu í ofsa veðri, svo að þeir vissu ekki hvar þeir voru, og gerðu það heit að byggja kirkju þar sem þá bæri að landi, ef þeir kæm- ust lífs af. Þá opnaðist hlið í löðrandi bi’imgarðinn og þeir sáu hvít- klædda veru, sem benti þeim á lendingarstað — og þeir náðu landi og efndu heit sitt. Kii’kjan var byggð upp af Englavík og enn stendur hún þar ein á ströndinni. í kringum hana er örfoka land, sem nú er byi’jað að gi’æða. Iiulinn verndarkraftur hvílir yfir Strandarkii’kju við Englavík í Selvogi.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.