Dagur - 20.02.1993, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Laugardagur 20. febrúar 1993'
DÝRARÍKI ÍSLANDS
Fuglar 17. þáttur
TEISTA
(Cepphus grylle)
Sr. Sigurður Ægisson
Teistan er af ættbálki fjörunga
(strandfugla), og tilheyrir ætt
svartfugla. Hún er þó bæði í útliti
og háttum mjög ólík þeim frænk-
um sínum, er hér búa, þ.e. lang-
víu, stuttnefju og álku, að ekki sé
minnst á lunda eða haftyrðil.
Hún er fremur lítil, eða um 30
sm á lengd, um 400 g á þyngd, og
með um 55 sm vænghaf.
Fuglar í varpbúningi eru svart-
ir, með rauða fætur, og stór, hvítur
vængreitur (spegill) er greinilegur,
bæði þegar hún syndir og flýgur.
Vetrarbúningurinn er hins veg-
ar mjög ljós; fuglinn þá hvítur að
neðan, grár um höfuð, en bak og
vængir næstum eins og að sumri.
Rýtingslaga goggurinn er svart-
ur, en tunga, gin og fætur rauð.
Augu brúnleit.
Teistan hefur útbreiðslu um ís-
hafið, Grænland, Labrador,
Skandinavíu, Bretlandseyjar og
víðar.
Hún er ágætur sundfugl og kaf-
ari; hefur náðst á 20-30 m dýpi, en
athafnar sig þó yfirleitt miklu
grynnra. Hún á líka auðvelt með
gang.
Síðla febrúar koma teistur
venjulega upp að landinu í hóp-
um.
En varptíminn hefst þó ekki
fyrr en í maí. Hjúskapurinn er ein-
kvæni, og tryggð bæði við maka
og hreiðurstað.
Teistan er ekki bjargfugl og
frekar ófélagslynd, miðað við aðra
svartfugla, og varpbyggðir hennar
því tiltölulega smáar og gisnar.
Oft eru ekki nema fáein pör sam-
an, eða jafnvel bara eitt útaf fyrir
sig.
Hér verpir teistan með strönd-
um fram allt í kringum land, mest
í stórgrýtisurðum eða glufum
lágra kletta, annesja, hólma og
eyja, en jafnvel líka í stein-
hleðslum. Fátítt er að hún verpi á
syllum, nema þá inni í hellum.
Teistan ver litla hreiðurhelgi,
stundum með nokkrum látum.
Karlfuglinn er árásargjamari.
Ólíkt öðrum svartfuglum verpir
kvenfuglinn svo 2 eggjum, hvít-
um, brúnleitum, eða ljósblágræn-
um, með svörtum, rauðbrúnum og
gráum yrjum. Um hreiðurgerð er
varla að ræða; eggin hvíla á beru
grjóti, skeljabrotum eða möl.
Oftast eru þau svo vel falin, að
þau annað hvort sjást alls ekki,
eða þá að rétt grillir í þau inni í
dimmunni. Þar af leiðir, að
ómögulegt er venjulegast að ná til
þeirra, nema með tilfæringum.
Útungunartíminn er 3-4 vikur,
og sjá báðir foreldrar um ásetuna
og að afla ungunum fæðu. Ung-
amir yfirgefa hreiðrið ófleygir,
svo að munar viku, og skilja eftir
það leiðir.
Teistan leitar sér fæðu á grynn-
ingum og í þara, tekur skerjastein-
bít, marhnút, sandsfli, og krabba-
dýr, en þó einkum sprettfisk. Utan
varptíma lifir hún auk þess á smá-
átu við ísröndina, eins og haftyrð-
ill.
Hljóð teistunnar eru sérkenni-
leg. A meðan aðrir svartfuglar
hvæsa og garga á varptíma, kemur
frá henni blíðlegt tíst. En nafn
hennar er einmitt talið lúta að því.
Eru sagnir til um það, að sjó-
menn megi ráða af kvaki hennar,
að þeir séu komnir nálægt landi
og hafi þannig bjargað sér frá að
lenda í brimskafli, í þoku og
vondu skyggni.
Teistunni er skipt í nokkrar
undirtegundir, sem enn er þó deilt
um. Munurinn felst í stærð (eink-
um nefs og vængja), hve ljós vetr-
arbúningurinn er, og hvemig ljósu
og dökku er komið fyrir á væng-
fjöðrum.
Áður fyrr var talið, að íslenskar
teistur væru algerir staðfuglar, en
eftir að merkingar hófust að ein-
hverju ráði, á síðustu árum, hefur
komið í Ijós, að 1/3 hluti stofnsins
fer til Grænlands á vetuma, og eru
ókynþroska fuglar þar í meiri-
hluta.
Hvað snertir fullorðnar teistur
(kynþroska), halda menn frekar,
að þær dveljist aldrei langt frá
varpstöðvunum. Lítið er þó vitað
um samskipti hjóna á vetmm.
Þá hefur einnig komið í ljós, að
teistur af öðrum stofnum og norð-
lægari (frá Svalbarða og N-Noregi
t.d.) dveljast hér við íslands-
strendur á vetuma í töluverðum
mæli, og jafnvel ríkari en menn
hefur grunað fram að þessu.
Lítið er vitað um hinar ýmsu
stofnstærðir teistu í heiminum, en
giskað hefur verið á, að um 50
þúsund pör verpi á íslandi.
Teistan er algjör sjófugl, nema
Fullorðin teista í sumarbúningi.
(The Hamlyn photographic guide to birds
of the world. London 1991).
um varptímann, og heldur sig
miklu nær landi en aðrir svartfugl-
ar, og er talin meiri staðfugl.
Ungar teistur sækja mikið á
heimaslóðir á öðru og þriðja ári,
og velja sér þá gjaman hreiður-
stæði og verja það í hvívetna. Þær
byrja samt ekki að verpa fyrr en
þær hafa náð 4 ára aldri.
Olíuslys, sem og mengun af
völdum þungmálma og klórsam-
banda, fara illa með teistur, eins
og aðra sjófugla. Einnig geta
fiskinet verið þeim afar hættuleg.
Sem dæmi má nefna, að á grá-
sleppuvertíð árið 1977 (þ.e. á
tveimur mánuðum) drápust um
100 fullorðnar teistur í netum við
Flatey á Breiðafirði, sem þá reikn-
aðist að vera 1,3% af varpstofnin-
um í Flatey.
Teistan var fyrr á tíð nýtt, eins
og annar fugl. Yfirleitt þó bara
unginn, teistukofan, grádóninn.
Kjötið var saltað, reykt, eða vind-
þurrkað. Mest var kofan tekin í
Breiðafirði, einkarlega í eyjum.
Hún var magrari en lundakofa, og
þótti betri. Þá voru eggin talin
góð.
Víðast taldist ólánsmerki að
drepa fullorðna teistu; þó ekki fyr-
ir norðan land (t.d. í Eyjafirði).
Elsta teista, sem menn vita um,
náði því að verða 20 ára; hún var
með breskt merki.
Matarkrókurinn
Fljótlegt og gómsætt frá
frj álsíþróttakonunni Rögnu
Að þessu sinni er matarkrók-
ur vikunnar Ragna Erlings-
dóttir sem búsett er á Sval-
barðseyri. Ragna er e. t. v. bet-
ur þekkt af íþróttavellinum,
en hún er fjölhæf frjálsíþrótta-
kona. Nú er hún í fóstrunámi
og vinnur á Krógabóli á
Akureyri. Hún tók áskorun
Arndísar Heiðu Magnúsdótt-
ur fóstru og býður lesendum
Dags upp á uppskriftir að'
þremur gómsœtum réttum.
Helstu kosti þessara upp-
skrifta sagði Ragna vera þá
hversu einfaldar og jafnframt
fljótlegar þær eru. Bragðið
svíkur þó engann að hennar sögn
og því ættu réttirnir að vera
kjörnir fyrir þá sem njóta vilja
góðs matar án þess að eyða
heilu og hálfu dögunum í eld-
húsinu.
Fyrsti rétturinn eru litlar
kjötbollur sem Ragna sagði
góðar til að eiga í frysti og grípa
til við ýmsar aðstæður. Þær eru
ekki endilega ætlaðar sem heil
máltíð heldur góðar með öðru
og til að narta í. Bollurnar geta
allt eins vera kaldar er þær eru
bornar fram. Einnig býður
Ragna upp á mjög svo girnileg-
an eftirrétt sem gott er að láta
malla meðan verið er að borða
aðalréttinn. Þetta eru ferskjur
sem enginn ætti að verða svik-
inn af að prófa. Að síðustu fylg-
ir fiskréttur, fljótlegur og ein-
faldur og hentar við öll tæki-
færi.
Litlar kjötbollur
1 kg nautahakk
1 pk. ritzkex
1 pk. lauksúpa (Toro)
3 egg
Þessu er öllu blandað saman í
skál og hrært vel í. Á að verða
frekar þykkt. Búnar til litlar
kjötbollur (ca. eins og krónu-
peningur í þvermál). Best er að
búa þær til allar í einu og leggja
á bökunarpappír. Olían er hit-
uð á pönnu og bollurnar því
næst steiktar. Það verður að
vera hægt að snúa bollunum á
pönnunni og því betra að setja
ekki of mikið í einu. Þá er
einnig betra að láta þær ekki
verða of brúnar. Sem fyrr segir
er ágætt að eiga bollurnar í
frysti.
Heit sósa með bollunum:
1 flaska Heinz chili-sósa
1 lítil dós bláberjahlaup
(einnig er hœgt að nota krœki-
berja- eða bláberjasultu.
Þessu tvennu er skellt í pott
og hitað. Síðan er sósan höfð
með bollunum sem geta þá eins
verið kaldar.
Hátíðarferskjur
1 dós (400 g) ferskjur
1-2 msk. smjör
3-4 msk. púðursykur
1 dl romm (sherry) má sleppa
'/2 poki möndluflögur
Best er að láta renna vel af
ferskjunum. Smjörið er brætt á
pönnunni, ferskjunum raðað á
(holan upp) og lok sett yfir.
Látið hitna vel í gegn við vægan
hita í ca. 10 mínútur. Sherry
eða rommi hellt yfir og púður-
isykri stráð yfir allt. Hitað áfram í
nokkrar mínútur. Möndluflög-
um stráð yfir ferskjurnar og þær
bornar strax fram (heitar) með
þeyttum rjóma eða ís.
Fiskur með camenbertosti
2 kg fiskur t.d. ýsa eða þorskur
1 peli rjómi
1-2 tsk. karrý
salt og pipar eftir smekk
1 stk. camenbertostur
Hálf frosinn fiskurinn er sett-
ur í eldfast mót. Rjómi og karrí
hrist saman og sett yfir fiskinn,
svo og salt og pipar. Osturinn
skorinn í sneiðar og lagður yfir.
Fiskurinn hafður í ofninum þar
til hann er orðinn stinnur og
osturinn byrjaður að bráðna. Ef
fiskurinn er settur ófrosinn þarf
hann styttri tíma og þá verður
sósan einnig þynnri. Borið fram
með kartöflum og hrásalati.
Þá er bara að vona að lesend-
ur Dags prófi þessar girnilegu
uppskriftir og njóti matarins
vel. Ragna skorar á Laufeyu
Skúladóttur sem býr í Stóru-
tjarnaskóla, að mæta í næsta
matarkrók og kynna fyrir les-
endum eitthvað af sínum upp-
skriftum. HA