Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1994, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1994
Spumingin
Ertu fréttaf íkill?
Margrét Jóhannsdóttir: Þaö má nú
eiginlega segja þaö.
Oddgeir ísaksson: Ég er algjör frétta-
fikill.
Eva Óskarsdóttir: Stundum, já.
örn S. Jónsson og Jón örn: Svona
sæmilega.
Hallbjörg Bjarnadóttir: Ég er þaö og
vil fylgjast vel með.
Arnbjörn Jóhannsson: Já, svo sann-
arlega.
Lesendur dv
Hugleiðingar um haustkosningar:
Sjálftaeðisf lokkur í þumal-
skrúf u Alþýðuf lokks?
Magnús Kristjánsson skrifar:
Þar sem talsvert er rætt um hugs-
anlegar alþingiskosningar í haust
langar mig til að senda DV stutt inn-
legg frá mínu sjónarhorni um það
mál. - Þaö er ekki nema von aö for-
ystumenn stjórnmálaflokkanna
hugsi sig vel um einmitt nú. Mat
þeirra á kosningum nú í haust hlýtur
aö byggjast á því hvort þeir telja sinn
flokk koma betur út í kosningum
fljótlega eða ekki fyrr en næsta vor.
Sjálfum finnst mér líkurnar ótvírætt
benda til þess aö beinlínis sé nauð-
synlegt að kosningar fari fram fyrr
en síðar. Ekki síst meö tilliti til þeirra
aögerða í efnahagsmálum sem hljóta
aö verða framkvæmdar í tengslum
viö fjárlög, og einnig aö nýkjörin
stjóm hafi tímann fyrir sér þegar
kemur aö Evrópumálunum, á hvern
veg sem þau svo fara.
Mér sýnist raunar aö flestir for-
ystumenn stjórnmálaflokkanna séu
Ólöf Björnsdóttir skrifar:
Aumingja maðurinn. - Þaö er
greinilegt aö þú hefur ekki mikla
kvenhylli. Það er kannski útlitið. En
persónulega held ég að þaö sé per-
sónuleikinn.
Hvað gefur þér rétt til aö lýsa því
svona yfir í fjölmiðlum að allar ís-
lenskar konur séu lagstar í hórdóm?
Ragnar skrifar:
Umræðan um bankana í landinu
hefur oftar en ekki verið neikvæö.
Þetta stafar af landlægum erjum um
vexti og dýrtið og einnig verðbólgu
en þetta þrennt hefur brennt marga
landsmenn illa gegnum tiðina. -
Auðvitað er ekkert af þessu bönkun-
um að kenna. Allir vita að ríkis-
stjórnir hér leggja meira og minna
línurnar í fjármálum og vaxtamál
eru ekki alfarið í höndum banka-
stjórna eða bankastjóranna.
Hvað sem líður umtali um banka-
stofnanir hér á landi virðast lands-
menn skipta sér bróðurlega niður á
helstu bankana með viöskipti sín.
Sumir hafa haldið tryggð við sinn
banka frá barnæsku þegar þeim
áskotnaðist fé á bók sem geymd var
þar til viðkomandi var orðinn fjár-
ráða. Og hvers vegna átti þá að fara
að skipta um banka? Flestir eru líka
fastheldnir þegar bankaviðskipti eru
annars vegar.
Ég hef skipt við ýmsa banka og hef
ekkert undan þeim að kvarta. Mér
finnst þó, eins og að ofan greinir,
vera mikið áhorfsmál að hætta við-
skiptum við þann banka sem geymdi
aurana (eða krónurnar) manns frá
bemsku. Ég hef því haldið mig við
Landsbankann allar götur síðan.
Mér finnst einnig annað og fastara
meðmæltir haustkosningum, nema
Alþýðuflokkurinn sem á viö ýmis
innri vandamál að etja. Það getur þó
engan veginn orðið til þess að eyði-
leggja ferli fjögurra annarra stjórn-
málaflokka í landinu. - Hagsmunir
þjóðarinnar verða að vera í fyrir-
rúmi. Allir flokkarnir, utan Alþýðu-
fiokkurinn, virðast vera tilbúnir,
jafnvel með prófkjöri og tilheyrandi
vinnu í kringum þær.
Sem kjósandi Sjálfstæðisflokksins
gegnum tíðina þykir mér illt ef flokk-
urinn grípur ekki tækifærið og krefst
kosninga í haust. Næsta vor verða
án efa allt aðrar aðstæður hér og þá
gæti svo farið að Sjálfstæðisflokkur-
inn yrði fyrir vemlegu áfalli og það
yrði ekki skemmtilegt eftir áfallið í
borgarstjórnarkosningunum. For-
sætisráðherra getur því ekki annað
en nýtt sér þingrofsrétt sinn ein-
hvern tíma í næsta mánuði. - Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur engar þær
Er nú svo komiö að íslenskar konur
mega ekki klæða sig í stutt pils án
þess að almenningsálitið telji að þær
séu að bjóða sig? - Hvað með karl-
menn? Em þeir að bjóða sig þegar
þeir klæða sig í jakkaföt?
Megum við konurnar þá taka það
sem sjálfgefið, ef við mætum manni
á balM, að hann sé þar í þeim eina
form yfir þeim banka en öðrum
bankastofnunum hér á landi. Af-
greiðslufólkið hefur verið með ein-
dæmum þægilegt og bankinn hefur
verið heppinn með yfirmenn, allt upp
í bankastjórana sem eru, án undan-
tekningar, traustir og réttsýnir.
skyldur við Alþýðuflokkinn að hann
taki hvaða áhættu sem er. Síst af öllu
þegar kosningar eru í deiglunni.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið
flatt á því að draga kosningar þegar
mikið lá við. Það gerðist t.d. í tíð
Viðreisnarstjórnarinnar, þegar Al-
þýðuflokkurinn kom í veg fyrir þing-
rof, og svo aftur í forsætisráðherratíð
Geirs Hallgrímssonar sem vildi ekki
kosningar árið 1977 og flokkurinn
galt afliorð í kosningunum árið eftir.
Síöan hafa verið hér vinstri stjórnir
nánast óslitið, þar til nú. - Haust-
kosningar nú munu hins vegar
þrengja möguleika á endurnýjun
þingmanna flokkanna en veruleg
þörf er á henni í öllum flokkum.
Fyrir vorkosningar yrði endurskoð-
un þingmannaliðsins óhjákæmileg,
og ekki síður hjá Sjálfstæðisflokkn-
um en öðrum flokkum, t.d. í Reykja-
vík og á Reykjanesi.
tilgangi að gefa plastdömunni, sem
honum þykir svo vænt um, hvíld í
eina nótt?
Er ekki bara ástæðan fyrir þessum
skrifum þínum sú að þú þjáist af
minnimáttarkennd í garð fallegs
kvenfólks, sem getur klætt sig kven-
lega, og í garð þeirra karlmanna sem
njóta kvenhylli lifandi kvenna?
Þetta er mitt álit á þessum stærsta
banka þjóðarinnar sem hefur staðið
fyrir og lagt grundvöll að ótal fram-
kvæmdum eða aðstoðað við að koma
þeim á laggimar. Megi Landsbank-
inn halda áfram að dafna með sínu
trausta starfsfólki.
Kerlingarogfjöl-
midlar ábyrgir
Siguijón skrifar:
Hver hefur ekki heyrt ein-
hveija kerlinguna segja sera svo
að nú væri gott að fá vætu fyrir
gróðurinn? Og á þessu er klifað
þar til þeim verður aö ósk sinni
og vætutíðin dembist yfir okkur.
Eða þá íjölmiðlarnir? Þeir ham-
ast yfir fimm daga sólarglennu
og ljósmynda fólkið sem fækkar
fótum um leið og sést til sólar.
Og samanlagt kallar þetta á rign-
ingu. Hættum nú aö hamast yfir
þeirrí gulu, sjáist hún yfirleitt
aftur hér á höfuðborgarsvæðinu.
Ekkert atvinnuleysi
Sigurbjön skrifar:
Eg er yfir mig undrandi á þvi
fjasi sem átt hefur sér stað um
atvinnuleysi í landinu. Ég er líka
undrandi á því að stjómmála-
menn og ráöamenn í atvinnumál-
um skuli fást til að blása það upp
þótt tölur um atvinnuleysi náist
í um 4% þegar búið er aö skrá
allar fiskvinnslukonur og aðra
sem hafa unnið íhlaupavinnu
með heimilinu, kannski hluta úr
degi, þegar maðurinn er í fastri
vinnu annars staðar. - Þetta er
ekkert til að tala um. Hér hafa
það allir meira en gott og engin
ástæða til að kvarta. Hið opinbera
sér vel fyrir þeim sem ekki
stunda stöðuga vinnu sökum
sjúkleika.
Myglaðarkartöflur
íumferð
Guðbjörg hringdi:
Ég hef nýlega orðið þess vör að
kartöflur hafa lyktað af myglu
eftir að heim er komið. Þær hafa
þó ekki veríð myglaðar sýnilega
en jaðrað viö það, af lyktinni að
dæma. Þetta voru kartöflur sem
keyptar voru bæöi í Bónusi og
Hagkaupi. - Ég hef einnig orðiö
vör við, þegar íslenskar nýjar
kartöflur koma á markað, að þær
hafa ekki veriö fríar við myglu.
Stundum orðnar henni að bráð.
Það er þess vegna áríðandi aö
verslanir séu á varðbergi og
gangi vel frá kartöfium i pokun-
um og kanni ástand þeirra áður
en þær eru settar í hiilur verslan-
anna
Lítiðsagði Jafet
Halli hringdi:
í helgarblaði DV sl. laugardag
birtist forsíðumynd af Jafet S.
Ólafssyni, nýráðnum útvarps-
stjóra Stöðvar 2 og Bylgjunnar. í
upþslættinum á forsíðu sagði,
undirtitilfyrirsögninni „Tilbúinn
í slaginn", „ ... skefur ekki utan
af hlutunum". - Ég brá hratt við,
fletti blaöinu og hugöist berja
augum hið óskafna. En viti menn,
allt var þama vandlega skafið.
Jafet sagði nánast ekkert bita-
stætt, utan hvað hann sagðist
vera Valsmaöur og hafa verið
góður drengur í Hagaskóla og
Versló, og svona... Vildi hins
vegar sem minnst ræða hluthafa-
máhn, sem þó var og er enn heit-
asta fréttaefnið frá íslenska út-
varpsfélaginu!
BirgðastöðiníJað-
arseli
Ingibjörg hringdi:
Mig langar til að þakka birgða-
stöðinni viö Jaðarsel í Breiðholti
fyrir alla þá aöstoð sem þeir S
stöðinni hafa veitt ibúunum
gegnum árin. Þetta er aðstoð sem
t.d. er framkvæmd eftir ábend-
ingum íbúanna, ekki persóntfieg
aöstoð, til að lagfæra þaö sem lag-
færa þarf á vegum borgarinnar;
kannski viö ræsin, gróður sem
hefur veriö eyðilagöur o.fi., o.fl. -
Starfsmenn þarna eru viðbragðs-
fljótir og alúölegir í samskiptum
og þetta kann fólk vel að meta.
Innilegar þakkir til þeirra allra.
oa>
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki þær skyldur við Alþýðuflokkinn aö hann taki hvaða áhættu sem er,“ segir m.a.
í bréfinu.
Ólöf svarar Einari Ingva:
Minnimáttarkennd?
Landsbankinn hef ur yf irburði
Já, er ekki Landsbankinn banki allra landsmanna?