Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1994, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1994, Síða 15
LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1994 15 Á miðunum við Svalbarða. Norskir ráðherrar berjast ekki aðeins gegn hagsmunum íslendinga með fallbyssukúlum, sprengjuklippum og skyndilegum lagabreytingum. Þvert á móti sækja þeir gegn „frændum" sínum á öllum vígstöðvum. Frændur frændum verstir? Líklega telja þeir sem mest hafa efast um gildi samstarfs Norður- landaþjóða að vart sé hægt að fá rækilegri sönnun þess að norræn samvinna sé fyrst og síðast mark- laust hátíðahjal en framferði norskra ráðamanna í garð íslensku „bræðraþjóðarinnar" nú að und- anfömu. Norskir ráðherrar hafa látið skammimar dynja á íslendingum. Forsætisráðherra Noregs, Gro Harlem Brundtland, og utanríkis- ráðherrann, Björn Tore Godal, hafa haft forystu um að svívirða íslendinga opinberlega sem þjófa og glæpamenn fyrir það eitt að afla sér björg í bú á alþjóðlegu haf- svæði. Samtímis hafa norsk stjórnvöld ofsótt íslensk fiskiskip, breytt norskum lögum sérstaklega til að reyna aö ná sér niðri á íslendingum og hafnað öllum tfllögum um við- ræður tfl aö leysa málið á friðsam- legan hátt. Það er eins og norskir ráöherrar hafi allt í einu fundið sér alvöru- fjandmann sem þeir telja sig hafa í fullu tré við. Það kemur þeim sem lagt hafa trúnað á hátíðahjalið um náin tengsl, vináttu og bræðrabönd þjóðanna, nú síöast á lýðveldisaf- mælinu í sumar, í opna skjöldu að íslendingar séu allt í einu orðnir erkifjendur Norðmanna. Ofstopi og yfirgangur Aðrir segja reyndar að þetta komi ekkert á óvart. Sögufróðir íslend- ingar vitna tfl hins fomkveðna að frændur séu frændum verstir. Og vísa svo í Landnámu og íslendinga- sögur því til sönnunar að norskir stórbokkar hafi ávallt verið með ofstopa og yfirgang gagnvart ís- lendingum. Og rétt er það að margir land- námsmenn, en alls ekki allir, hröktust frá Noregi af slíkum sök- um. Jón Sigurðsson forseti komst svo að orði aö íslensku landnem- amir heföu sýnt aðdáunarverðan kjark með því „að láta ekki kúgast af ræningjanum Haraldi hinum hárfagra". Það heitir víst svo á hátíðastund- um að Haraldur hárfagri væri með ofbeldi sínu að sameina Noreg í eitt ríki. Hið sanna í málinu er auö- vitað að hann var að leggja land margra smákonunga og sjálf- stæðra hænda í Noregi undir sjálf- an sig og ættmenn sína með vopna- valdi. Honum gekk ekkert annað né göfugra til, frekar en öðram herkóngum þess tíma. í fótspor hins hárfagra En Haraldur hárfagri er allur - er ekki svo? Dauður er hann, kallinn, svo mikið er víst. En þeir sem nú ráða fyrir norsku ríkisstjóminni virðast hafa erft lundemi þessa vopnglaða „ræningja". Brundtland og ráðherrar hennar era líka að feta í fótspor Harálds hárfagra aö öðru leyti en því að sýna íslendingum yfirgang. Þau era að reyna að sameina Noreg á ný, en að þessu sinni um þá stefnu að landið skuli ganga inn í Evrópu- sambandið. Og tfl að ná því markmiði era öll brögð leyfileg. Til að tryggja meirihluta fyrir inngöngu Noregs í Evrópusam- bandið verður norska ríkisstjórnin að sannfæra sjómenn og aðra þá sem hagsmuni hafa af sjávarút- vegi, einkum í Norður-Noregi. Brundtland og aðrir norskir krata- leiðtogar telja sýnflega að besta leiðin til að ná í þau atkvæði sé að sýna íslendingum hörku, gera þá að skúrkum í augun norskra sjó- manna. Þannig megi fá norska sjó- menn tfl að gleyma því sem þjóðar- atkvæðagreiðslan í haust snýst í raun og vera um að því er þá varð- ar. En það er að eftir stuttan aðlög- unartíma mun sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins í Brussel ráða ferðinni á norskum fiskimiðum. „Norskum fiskimiðum?" Já, það má enn nota þaö lýsingar- orð, en eftir nokkur ár verða þessi fiskimið ekki lengur norsk heldur Laugardags- pistiU Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri evrópsk. Um þetta vilja norskir ráðherrar að sjómenn og aðrir þeir kjósendur í Noregi, sem byggja lífsafkomu sína á fiskveiðum, hugsi sem allra minnst. Sókn á öllum vígstöðvum Auðvitað er hægt að segja sem svo að það sé aðeins pólitísk tæki- færismennska sem ráði ferðinni hjá norsku ríkisstjóminni og því ástæðulaust að taka skítkast þess- ara ráðherra sérlega alvarlega. Af- staða þeirra muni breytast þegar þjóðaratkvæðagreiðslan sé um garð gengin. Vafalaust eiga norskir ráðherrar hægara um vik að sýna skynsemi í deflunni þegar EBS-máhð er af- greitt. En það er vafasamt að treysta á slíkt af tveimur ástæðum. Annars vegar ber að hafa 1 huga að yfirlýsingar ráðherranna lýsa slíkum fjandskap og hroka gagn- vart íslendingum að það getur ekki boðað neitt gott fyrir frekara sam- starf þjóðanna. Hins vegar bera fréttir það með sér að norskir ráöherrar era ekki aðeins að beijast gegn hagsmunum íslendinga með fallbyssukúlum, sprengjuklippum og skyndilegum lagabreytingum. Þvert á móti sækja þeir gegn „frændum" sínum á öllum vígstöðvum. Þannig reyndu norskir ráða- menn nýverið að fá rússneska út- gerðarmenn til að banna löndun á fiski úr rússneskum toguram í ís- lenskum höfnum. Þótt fyrsta atlaga í því efni hafi ekki borið tflætlaðan árangur er augljóst að Norðmenn munu halda áfram að egna Rússa á móti íslendingum. Þá berast fréttir af því að norskir ráðamenn fari hamförum gegn ís- lendingum á alþjóðlegri ráðstefnu um úthafsveiðar sem nú stendur yfir í New York. Norðmenn hreykja sér af því opinberlega að hafa fengið Kanadamenn og jafnvel Bandaríkjamenn í hö með sér gegn hinum vondu íslendingum, og ætla að reyna að fá Evrópusambandið inn í slíka blokk. Hvort sem árang- ur þeirra í þessu efni er orðum aukinn eða ekki fer ekkert á mihi mála að norsk stjómvöld vinna skipulega aö því að rægja málstað íslendinga. Hér er því ekki um neitt skyndi- upphlaup eða sumarbólu að ræða sem hjaðnar af sjálfu sér eftir nokkrar vikur eða mánuði. Þvert á móti virðast norskir ráðherrar vinna skipulega gegn hagsmunum íslendinga á alþjóðavettvangi. Bresta böndin? Mörgum finnst aö íslensk stjóm- völd hafi læðst með veggjum í þess- um deflum við Norðmenn. Auðvitað ber að virða það við ís- lenska ráðherra aö þeir hafa ekki látið norska kollega sína æsa sig tfl að svara svívirðingum í sömu mynt. Stóryrði norskra ráðherra í garð íslendinga era reyndar maka- lausari einmitt fyrir þá sök að ís- lendingar hafa ekki svarað með sama hætti. Hins vegar mætti að ósekju vera mun meiri kraftur í málefnalegri vörn stjórnvalda. Hafa ber í huga að endanleg niðurstaða um stjóm- un fiskveiöa á alþjóðlegu hafsvæði ræðst af samningum þjóða í milh. Þvi-er mikið í húfi að árásum Norð- manna á alþjóðavettvangi sé mætt af festu og með rökum. Ella kann Norðmönnum að takast að skaða hagsmuni lands og þjóðar tfl fram- búðar. Hvaöa áhrif mun þessi fjandskapur nánustu frændþjóðar íslendinga svo hafa á samstarfið við Norð- menn í framtíðinni? Og áht þjóðar- innar á gildi norrænnar samvinnu yfirleitt? Rétt er að gera sér ljósa grein fyrir því að eitt eru norskir krata- ráðherrar og annað norska þjóðin. Vissulega hefur stjómmála- mönnunum tekist að æsa norska sjómenn og aðra hagsmunaðfla í sjávarútvegi upp á móti íslending- um. Það kann aö lifa lengi í þeim glæðum. En hið ánægjulega er að ábyrgir aðflar í Noregi hafa snúist gegn þessari fjandskaparstefnu norsku ríkisstjómarinnar og hvatt til samninga við íslendinga um kvóta á Svalbarðasvæðinu og stjómun fiskveiða í norðurhöfum. Þetta hef- ur skýrt komið fram í forystugrein- um margra helstu dagblaða Nor- egs. Og Islandsvinir á borð við þá tvo Norðmenn sem gegndu hér um árabfl starfi forstöðumanns Nor- ræna hússins hafa látið tfl sín heyra. Þessi skrif sýna að það era enn sterkar taugar á milli þjóðanna. Mikilvægt er því að láta ekki tæki- færissinnaða stjómmálamenn skera á þau sterku bönd frændsemi og sögu sem eiga að tengja þjóðim- ar saman óijúfanlegum böndum. Það væri miídð slys og norskum stjórnvöldum tfl ævarandi skamm- ar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.