Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1994, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 20. ÁGUST 1994
Var á Woodstock-hátíðinni fyrir 25 árum:
Með „peace"merkið á lofti
Júlía Andersen innanhússarkitekt upplifði ógleymanlega hippastemninguna
Júlía, tvítug i Ameríku, í kögurvesti
og með hippaband um ennið.
„Við bjuggum í New York og fólk
sem við þekktum talaði mjög mikið
um Woodstock og ætlaði sér að fara.
Það varð til þess aö við fórum líka.
Við fengum far með nágrönnum okk-
ar sem voru mjög furðuleg hjón;
hann var litill feitur ítali sem setti á
sig hárkollu til að stinga ekki mjög
í stúf við alla síðhærðu hippana,"
segir Júlía Andersen innanhússarki-
tekt sem var á Woodstock-hátíðinni
fyrir 25 árum ásamt vinkonu sinni
E\m Benjamíns. Þær vinkonur unnu
á veitingahúsi í New York á þessum
tíma en Júlía hafði farið út í fyrst-
unni sem au-pair.
„Ég man eftir því að við skemmtum
okkur ágætlega á leiðinni. ítalinn
gantaðist nefnilega talsvert með hár-
kolluna sína. Annars var mjög mikil
umferð, við lentum í mikilh umferð-
arteppu og urðum að híða í röðinni
í marga klukkutíma. Fólk tók það
þó ekki nærri sér heldur settist fyrir
utan bílana og skemmti sér enda var
mikið fjör þarna. Það var ótrúlegur
fjöldi manna og kvenna samankom-
inn á einum stað og við störðum
steinhissa á allt þetta fólk,“ segir
Júlía enn fremur þegar hún rifjar
upp þessa skemmtilegu helgi í sept-
ember 1969 en þá var hún tvitug.
„Það var mjög einkennandi fyrir
hátíðina hversu allir voru ljúfir og
almennilegir, „peace“merkið var
alltaf á lofti, enda sannur hippaandi
á hátíðinni. Við vorum ekki með neitt
tjald en fólk var að kalla til okkar
og bjóða okkur í mat hvar sem var.“
Júlía segir að þær Eva hafi verið
eins og litlar sveitastúlkur í öllu
mannhafinu á Woodstock og þær
höfðu aldrei fyrr séð hljómsveitir á
borð viö þær sem þarna skemmtu.
„Mig minnir að það hafi verið um
morgun sem Jimi Hendrix kom niður
á svæðið í þyrlu. Það var stórkost-
legt. Allan sólarhringinn var eitt-
hvað um að vera og þótt maður kæm-
ist ekki upp að sviðinu þá skipti þaö
ekki máli. Fólk plantaði sér fyrir
framan sviðið og hreyfði sig ekki
þaðan. Fæstir voru með tjöld, menn
sváfu bara úti undir berum himni.
Það rigndi í upphafi helgarinnar og
svæðið var orðiö ansi mikið drullu-
svað.“
Rétta stemningin
Júlía segir að eftir að Woodstock-
myndin var sýnd á íslandi á sínum
Júlia Andersen innanhússarkitekt var hippi fyrir 25 árum og einn örfárra
íslendinga sem upplifðu Woodstock-hátíðina þar sem „peace“merkin voru
ætið á lofti. DV-mynd ÞÖK
Var á Woodstock-hátíðinni um síðustu helgi:
Sumir komu í
gamla hippagallanum
- segir Laufey Dís Ragnarsdóttir, tvítug au-pair stúlka
Laufey Dis Ragnarsdóttir er au-pair i New Jersey í Bandaríkjunum og
skellti sér á Woodstock-hátíðina meö vinkonum sínum. Þessi mynd var
tekin af henni í sumar áður en hún fór út.
„Við fórum fjórar vinkonur á
Woodstock, þrjár frá íslandi og ein
frá Noregi, en við erum allar au-pair
stúlkur hér í Bandaríkjunum,“ sagði
Laufey Dís Ragnarsdóttir sem upp-
lifði Woodstock-hátíðina um síðustu
helgi þar sem rúmlega þrjú hundruð
þúsund manns endurtóku hina raun-
verulegu hátíð sem haldin var fyrir
25 árum.
Vinkonur hennar heita Svava
Kristinsdóttir, Harpa Baldvinsdóttir
og Tuna frá Noregi.
„Ég hafði heyrt um það áður en ég
kom hingað út í júní að til stæði aö
endurtaka Woodstock-hátíðina. Hins
vegar hafði ég ekki hugmynd um
hvar hún yrði. Þegar við heyrðum
að hátíðin yröi í New York fylki
ákváðum við að skella okkur. Síð-
ustu vikuna fyrir hátíðina var mjög
mikil umfjöllun um hana í blöðum
og margir þættir í sjónvarpinu frá
gamla Woodstock og þetta kveikti
áhugann," segir Laufey, sem er tvít-
ug og því ekki fædd þegar hátíðin var
haldin í fyrra skiptið.
„Ég hafði heyrt um gömlu hátíðina
en þó ekkert mikið, aðaUega um
blómabörnin og hippana sem virtist
mjög spennandi tímabil."
Laufey sagði að rútur hefðu fariö
frá flestum borgum og þær vinkon-
umar tóku eina þeirra. Þær fóru með
tjaldbúnað meö sér og fengu gott
tjaldstæði. „Þegar viö komum á stað-
tíma hafi fólki þótt mjög merkilegt
að þær skyldu hafa verið þar. „Það
var eiginlega fyrst þá sem fólk áttaði
sig á hversu stórkostlegt þetta var.“
Þrátt fyrir alla umferðina á Wood-
stock vildi svo sérkennilega til aö
Júlía sá stúlku úr Vestmannaeyjum,
sem hún kannaðist við, bregða fyrir
á hátíðinni. „Mér fannst mjög skrítið
að sjá andlit sem ég kannaðist við í
allri þessari þvögu. Það sem kom
mér þó mest á óvart var hversu fólk
var allt ljúft og opið.“
- Hvað er þér minnisstæðast frá
þessari helgi ef þú hugsar aftur í tím-
ann?
„Stemningin öll í loftinu er mjög
minnisstæð þótt erfitt sé aö lýsa rétta
andrúmsloftinu."
- Voru margir sem vildu láta taka
eftir sér, t.d. meö sérkennilegum
búningum?
„Það var talsvert af fólki sem vildi
skera sig úr, t.d. var talsvert um aö
karlmenn gengju um naktir. Ein-
hveijir voru með lömb með sér og
það má segja að þama hafi verið fullt
af furðulegu fólki."
Júlía segir aö þær Eva hafi verið
hippar á þessum tíma og hún minn-
ist þess að hún var klædd í gallabux-
ur, sem höfðu verið klórþvegnar, og
áþrykktan bol á hátíðinni. Að sjálf-
sögðu var hún líka með leðurband
um ennið eins og þá tíðkaðist. Júlía
hefur aðeins séð Woodstock-mynd-
ina einu sinni en segist geta hugsað
sér að sjá hana aftur. Minningin um
þessa sögufrægu hátíð mun þó aldrei
líða úr huga hennar.
f||| ^ ii
siajj*, % .WA ■ vl'- É,
. 8
- *. *mUm tí , * 1
Á Woodstock-hátíðinni fyrr og nú voru naktir karlmenn áberandi á svæð-
inu; einhverjir sem sannarlega vildu láta taka ettir sér. Þessi mynd var
tekin á Woodstock-hátíðinni um síðustu helgi.
inn var mikil umferðarörtröð að
svæðinu en við vorum mjög heppnar
með tjaldstæði," segir Laufey.
Vélti sér
upp úr drullunni
Þótt fólksíjöldinn á Woodstock hafi
verið meiri en á öllu íslandi þótti
stelpunum sem stemningin á hátíð-
inni gæti minnt á góöa verslunar-
mannahelgi á íslandi. „Það var
dembandi rigning eins og er svo oft
um verslunarmannahelgi heima,
svæöið varð einn forarpyttur og fólk
velti sér upp úr drullunni. Það var
þó ekki mikið hægt að sjá vín á fólki
en því meira var af fíkniefnum. Mað-
ur hefði getað valið um hvað sem var
hefðum við haft áhuga á því. Tónlist-
in á svæðinu var alveg frábær og
stuðið á fólkinu meiriháttar. Þama
vora margar hljómsveitir sem mann
hefur lengi langað til aö sjá og allar
á einum stað. Þetta var algjör ævin-
týrahelgi fyrir okkur og við munum
minnast hennar lengi. Við kynnt-
umst mörgum krökkum og allir voru
mjög almennilegir.
Það sem kom okkur mest á óvart
var hversu margt fólk var þarna og
einnig hversu margir gengu um
svæðið allsberir. Það vora margir
skrýtnir sem vildu láta taka eftir sér.
Það vakti líka athygh okkar að svo
virtist sem ofbeldi þekktist ekki á
svæðinu. Við sáum engin slagsmál
eða læti og fólk rýmdi til ef maður
vildi komast áfram.
Það var talsvert af eldra fólki sem
hafði verið á Woodstock fyrir 25
áram og var að koma aftur til að
endurlifa gamla daga. Sumir voru
meira að segja búnir að draga upp
gamla hippagallann og troða sér í
hann.“
Laufey og vinkonur hennar kom-
ust heilu og höldnu heim aftur. Engu
var stohö frá þeim og þær munu lifa
á þessum skemmtilegu minningum
næstu 25 árin að minnsta kosti. „Ég
myndi ekki hika viö að fara aftur á
svona hátíö,“ sagði Laufey í símtah
frá Bandaríkjunum.