Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1994, Síða 23
LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1994
23
Kvikmyndir
Emil (Kári Gunnarsson) og Skundi á leiðinni norður til afa.
Skýjahöllin frumsýnd 29. september:
Ævintýri Emils
og Skunda
Ný íslensk kvikmynd verður frum-
sýnd á næstunni. Er það Skýjahöllin
sem Þorsteinn Jónsson leikstýrir.
Myndin, sem nú er á lokastigi í fram-
leiöslu, verður frumsýnd í Sam-
bíóunum fimmtudaginn 29. septemb-
er. Skýjahöllin er gerð eftir hinni
þekktu verðlaunasögu Guðmundar
Olafssonar, Emil og Skunda, en áður
hefur verið gerð sjónvarpsmynd eftir
sögunni.
Skýjahölhn íjallar um átta ára
strák sem á þann draum heitastan
að eignast hund. Þegar honum býðst
að kaupa hvolp fær hann leyfi til
þess hjá foreldrum sínum en skilyrð-
iö er að hann afli peninga sjálfur.
Emil brettir því upp ermarnar og
aflar þess fjár sem vantar, meðal
annars með því að selja DV og hand-
langa hjá gömlum smið. Foreldrar
og leikinni mynd á sama máta og
gert var með góðum árangri í Who
Framed Roger Rabbit. Teiknimynd-
irnar voru hannaðar í Þýskalandi.
Þær þykja vel gerðar og minna um
margt á teiknimyndir sem koma frá
Disney.
Kári Guimarsson heitir drengur-
inn sem leikur Emil og er þetta frum-
raun hans í kvikmyndaleik. Reyndir
og þekktir leikarar eru í öllum öðr-
um helstu hlutverkum. Mömmu
hans leikur Guðrún Gísladóttir og
pabba hans leikur Hjalti Rögnvalds-
son. Aðrir eru Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir, sem leikur Ingu, Sigurður Sig-
urjónsson, sem leikur Áif fylhbyttu,
Steindór Hjörleifsson, sem leikur af-
ann, og Gísh Halldórsson leikur Jósa
smið. Auk þess koma fram margir
leikarar í minni hlutverkum.
SkýjahöUin er framleidd af fyrir-
tæki Þorsteins Jónssonar; Kvik-
mynd. Eins og flestar íslenskar kvik-
myndir nú til dags er Skýjahöllin
gerð með aðstoð erlendra aðUa. Hún
hlaut á sínum tíma styrk úr Kvik-
myndasjóði íslands og síðar úr kvik-
myndasjóði Evrópuráðsins, Euri-
magen. Meðal annarra styrktaraðUa
myndarinnar eru Det danske FUm-
institute og BerUner FUmforderung.
Þorsteinn Jónsson, sem bæði leik-
stýrir myndinni og skrifar handritið,
er meðal okkar reyndustu kvik-
myndagerðarmanna. Hann útskrif-
aðist frá kvikmyndaakademíunni í
Prag 1971 og hefur síðan unnið við
kvikmyndir á mörgum sviðum. Þor-
steinn hefur gert nokkrar stuttar
myndir sem hafa vakið athygU. Má
þar nefna Höfnina (1966), Hopp (1968)
og heimildarmyndina Bónda sem
vann tU 1. verðlauna á kvikmynda-
hátíðinni í Reykjavík 1978. Þorsteinn
hefur einnig gert margar kvikmynd-
ir fyrir sjónvarp. Má þar nefna Fisk
undir steini (1974) sem vakti mikla
athygh og umtal á sínum tíma.
Þorsteinn hefur gert tvær leiknar
kvikmyndir í fullri lengd. 1981 gerði
hann Punktur, punktur, komma,
strik sem gerð var eftir skáldsögu
Pétin-s Gunnarssonar. Önnur kvik-
mynd hans er Atómstöðin eftir
skáldsögu HaUdórs Laxness. Var hún
vaUn tíl sýningar í Cannes 1984. Tíu
ár eru nú Uðin frá því að Þorsteinn
gerði Atómstöðina og var kominn
tími tU að hann kæmi með kvik-
mynd. í miUitíðinni starfaði hann
meðal annars sem framkvæmda-
stjóri Kvikmyndasjóðs íslands í
nokkur ár.
Þorsteinn Jónsson fyrir miðri mynd
viö tökur á Skýjahöllinni.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
hans eru þó ekki hrifnir af hundinum
og hafa í raun aldrei gert ráð fyrir
að EmU geti unnið fyrir honum og
þegar tíl kemur vUja þau ekkert með
hundinn hafa. í stað þess að láta
hundinn frá sér ákveður EmU að fara
norður til afa sína með hann og hefst
þar mikU ævintýraferð.
SkýjahöUin var Uókin í vinnslu þar
sem hún er að hluta teiknimynd.
EmU býr sér til draumaveröld og
teiknimyndir sýna þá veröld. í einu
tUviki er blandað saman teiknimynd
99 18 30
39,90 mín.
Forþjöppur, varahlutir
og viðgerðarþjónusta.
Höfum á lager flestar tegundir af
varahlutum í allar gerðir forþjappa.
Einnig: Loftpressur,
hitablásara,
miðstöðvar,
stýrisenda,
togstangir,
spíssadýsur,
kúpplingsdiska,
kúpplingspressur,
fjaðrir
o.m.fl.
Pöntum allar tegundir varahluta
í. ERUNGSSON HF.
Sérhæfð þjónusta fyrir rútur, vörubíla og vinnuvélar
Skemmuvegi 22, Kópavogi
Sími: 670699 Sfmboði: 984-53299
VetrariMmlr, náttúmlegir Ittlr sem
fegra en breyta ekkl útlltí þínu.