Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1994, Síða 27
LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1994
35
Blóð-
nasir
„Hvað á að gera við Rögga rot og allar þær blóðnasir sem hann fær
og veldur öðrum?“
Rögnvaldur Kjagan (öðru nafni
Röggi rot) pípulagningameistari og
hestamaður kom á Slysadeild fyrir
nokkrum vikum. Hann hafði
meiðst lítillega þegar hann missti
hnefa í andlitið á félaga sínum í
einkasamkvæmi á vegum kristi-
legra stangaveiðimanna. Þeir
komu saman hálfvolandi þessa
nótt. Röggi hélt um hönd sína og
nuddaði hnúana en félagi hans
greipaði nefið. Tilefni þessara
átaka var löngu gleymt en þeir
sameinuðust í reiði og hneykslun
yfir því að þurfa að bíða djöfull
lengi. Báðir létu þeir ófriðlega,
bölvuðu og rögnuðu og gáfu hvor
öðrum að drekka sénever blandað-
an í límonaði. Eftir langa mæðu
tókst að róa þá og þreytuleg græn-
klædd stúlka gerði að andlegum og
líkamlegum meinunum. Þeir
gengu út í faðmlögum og sungu
saman svo að undir tók í Smá-
íbúðahverfmu: „Gætum við fengið
að heyra eitthvað íslenskt, eitthvað
gamalt og gott etc. etc.“
Röggi hittir
Nökkva
Nokkru síðar kom Röggi til
Nökkva laeknis. Hann var í bláum
gallabuxum með breiðu belti,
támjóum rauðbrúnum stígvélum
og rauðleitum bol sem á stóð:
„Photographers do it in the dark“.
Um hálsinn bar hann eftirlíkingu
af þýskum járnkrossi í leðurreim.
Á upphandlegginn hafði einhver
tattóverað ljótt og skakkt rautt
hjarta sem í stóð: Mamma/mother.
„Ég er alltaf að fá blóönasir," sagði
hann, „mamma sagði að ég ætti að
fara til læknis og láta brenna að
innan á mér nefið.“ „ Já,“ sagði
Nökkvi spekingslega, „en ertu ekki
alltaf að slást.“ „Jú, að vísu,“ svar-
aði Röggi og glotti sjálfumglöðu,
tannfáu brosi. Hann var bólginn
og marinn á nefinu. „Láttu mig
kíkja á þetta,“ sagði Nökkvi föður-
lega. Röggi var svo aumur í nefinu
að senda varð hann í myndatöku
vegna gruns um brot. Svo reyndist
ekki vera. Nökkvi hreinsaði nefið
að innan. Hann sá blæðingarstað í
miðsnesinu, brenndi fyrir og tróð
grisju í nefið. „Svo verðurðu að
hætta að slást,“ sagði Nökkvi. „Já,“
sagði Röggi og vaggaði út með sér-
kennilegu göngulagi íslenskra
slagsmálamanna. Hann kom ekki
aftur en seinna fréttist af Rögga rot
í Smugunni. „Nú fá helvítis Norð-
mennimir fyrir ferðina," hugsaði
Nökkvi með sér.
Algengur
kvilli
Algengt er að ungt fólk fái blóð-
nasir. Hjá ungum bömum er yfir-
leitt um að ræða endurteknar sýk-
ingar sem valda því að slím harðn-
ar og safnast fyrir. Böm eiga erfitt
meö að snýta þessu út og reyna því
að losa um með fingmm sem kem-
ur blæðingu af stað. Kvef og endur-
teknar sýkingar í efri loftvegum
veikja slímhimnur svo að hættara
er við blóönösum. Hjá táningum
og yngra fólki eru blóðnasir tíðar
vegna slysa. Fólk fær högg á nefið
í íþróttum, bílslysum eða í áflogum.
í Gísla sögu Súrssonar er fræg frá-
sögn um blóðnasir eftir átök. Gísh
skelltí. Þorgrími svo fast niður á ís
að blóð stökk úr nösunum, skinnið
gekk af hnúum og kjöt af hnjánum.
Hjá rosknu fólki eru orsakir blóð-
nasa oft háþrýstingur og æðakölk-
un sem gerir æðar mjög viðkvæm-
ar. Hjá yngri kynslóðinni er al-
gengast að blóðnasir eigi upptök
sín í fremri og neðri hluta miðsnes-
is. Hjá eldra fólki er blæðingin oft
aftar í nefinu og því erfiðari við-
fangs og getur í versta falli oröið
lífshættuleg. í Sturlungu segir frá
Á lækravaktinm
Einari nokkrum Skemmingi sem
þótti hinn röskasti maður. Hann
er sagður hafa dáið úr nefdreyra
eða blóðnösum en tildrögin ekki
skýrð nánar. Ath Húnakonungur
er talinn hafa látíst úr blóðnösum.
Hann hafði sofnað drukkinn á bak-
inu, fékk þá nefblæðingu og er tal-
innhafakafnað.
Meðferð
blóðnasa
Meðferð blóönasa er yfirleitt ein-
fold. Þar sem blæðingin kemur oft-
ast frá fremri og neðri hlutum
miðsnesis er nóg að þrýsta þétt-
ingsfast um nefið frá hhðunum í
3-5 mín. Gott er að láta sjúklinginn
sitja með svamp eða tusku gegn-
vætta í köldu vatni og halda að
nefi og enni til að minnka blóð-
streymið. Ef þetta dugar ekki þarf
að troða í nefið. Best er að deyfa
slímhimnur en síðan er grisju, sem
búið er að maka í bakteríudrepandi
og mýkjandi smyrsh, troðið upp í
nefið. Ef þessar aðgerðir stöðva
ekki blæðinguna og sjúklingnum
finnst blæða aftur í kok kemur
blæðingin sennilega úr aftari hluta
nefsins og þá þarf sérstakar aðferð-
ir til. Best er að slíkt sé framkvæmt
af háls-, nef- og eymalækni því oft
getur reynst vandasamt að stöðva
slíka blæðingu sérlega í þeim sem
hafa lélegar æðar. Gæta þarf að
blóðþrýstingi og sjá til þess að hann
sé ekki of hár. Einar Skemmingur
hefur sennilega haft blæðingu frá
aftari hlutum nefsins og samtíma-
menn hafa ekki ráðið við hana
vegna tækjaskorts og kunnáttu-
leysis. Sama máli gegnir um Atla
Húnakonung þó að þýskar hetju-
sagnir haldi því fram að Guðrún
Gjúkadóttir hafi drepið hann til að
hefna bræöra sinna. Hættulegar
blóðnasir geta komið hjá fólki sem
af einhverjum ástæðum hefur
minnkaða storkuhæfni í blóði
vegna sjúkdóms eða lyfja en þá
blæðir yfirleitt víðar en úr nefinu.
En hvað á að gera við Rögga rot
og ahar þær blóðnasir sem hann
fær og veldur ööram? Skásti kost-
urinn er auðvitað sá að hann fari
í áfengismeðferð og hætti að stunda
böll og fljúgast á en fram að þeim
sinnaskiptum þarf að lappa upp á
hann eftir bestu getu, stöðva blæð-
ingar, brenna fyrir æðar og gera
við nef ef það brotnar. Á þessum
síðustu og verstu tímum norrænn-
ar samvinnu er auðvitað best að
Röggi rot verði sem lengst í Smug-
unni.
Húsnæði óskast
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík leitar
eftir kaupum á 450-500 m2 iðnaðar- eða verslunarhús-
næði í Reykjavík.
Nauðsynlegt er að húsnæðið sé á jarðhæð og allt að-
gengi í góðu lagi með tilliti til fatlaðra.
Tilboð er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og
-efni, brunabóta- og fasteignamat, afhendingartíma og
söluverð sendist eignadeild íjármálaráðuneytis, Arnar-
hvoli, 150 Reykjavík, fyrir 1. september 1994.
Fjármálaráðuneytið, 18. ágúst 1994
GERIÐ GÓÐ KAUP
Seljum í dag og næstu daga eftirtalda hluti, lítið
notaða og í góðu ástandi:
Háþrýstidælur, nokkrar gerðir, bensín og rafmagn.
Vinnupalla, fótstignar lyftur með lyftihæð 7,5 m,
vinnuhæð 9 m.
Notaða vörugáma, ýmsar stærðir og gerðir, þurr-
gáma, frystigáma, 20 og 40 feta.
Opið í dag, laugardag, frá kl. 10-16.
HAFNARBAKKI
Suðurhöfninni, Hafnarfirði
Sími 65 27 33. Fax: 65 27 33
INNANHÚSS- ioo
ARKITEKTÚR
í frítíma yðar með bréfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til
þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti,
lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll,
blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir,, vegg-
klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús-
gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl.
Ég óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Nafn .........................
Heimilisfang .......................
Akademisk Brevskole
Jyllandsvej 15 • Postboks 234
2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39-108 Reykjavík ■ Sími 888 500 ■ Fax: 686 270
Félagsráðgjafar
Óskum eftir að ráða félagsráðgjafa í 100% stöðu í
meðferðarhóp á hverfaskrifstofu fjölskyldudeildar í
Síðumúla 39. Umsækjendur þurfa að hafa reynslu
af meðferðarstarfi og geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarney Kristjáns-
dóttir yfirfélagsráðgjafi í síma 888500.
Umsóknarfrestur er til 10, september nk.
Hreyfiþjálfun aldraðra
Starfsmann með íþróttakennaramenntun vantar í
hlutastörf í eftirtaldar félagsmiðstöðvar aldraðra:
Nánari upplýsingar gefa forstöðumenn.
Aflagrandi 40, s. 622571
Furugerði 1, s. 36040
Langahlíð 3, s. 24161
Norðurbrún 1, s. 686960
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást.