Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994 Hún er fædd á Kúbu en kennir nú líkamsrækt á íslandi: ísland er rosa- lega amerískt - segir Deborah Blyden sem flutti til íslands fyrir átta árum Deborah Blyden ásamt eiginmanni sínum, Baldvini Þór Þorsteinssyni, og börnum sinum þremur. Sóley Marief og Helena Ósk Hansdætur, 8 og 6 ára, eru börn Deborah með fyrri eiginmanni hennar. í fangi Deborah er Þor- steinn Sindri Baldvinsson, 18 mánaða. Haustpúliö er hafið og Deborah Dagbjört Blyden líkamsræktarkona hrífur alla meö sér, stælta unglinga, roskna ístrubelgi og konur á miöjum aldri meö lafandi upphandleggi, dú- andi læri og slappa bossa. „Mér þykir meira gaman þegar ég sé aö þátttakendum þykir gaman og þá reyni ég að stuðla aö því,“ segir Deborah sem undanfarin ár hefur vakið athygli vegna mikillar starfs- gleði á ýmsum líkamsræktarstöðv- um í höfuðborginni. Hún hefur líka vakiö forvitni því að hún er blökkukona búsett hér á landi. „Ég hef bara mætt forvitni, aldrei fordómum," segir Deborah sem er fædd á Kúbu þar sem hún ólst upp til fimm ára aldurs. Frá Kúbu flutti hún með móður sinni og bróður til Bandaríkjanna. Kynntist íslendingi í Kaliforníu Deborah var um tvítugt þegar hún kynntist íslendingi sem var við nám í Kaliforníu. „Ég vissi nú ekki einu sinni hvar ísland var. Ég vissi bara að það var einhver lítil eyja, svipuð Kúbu að stærð. Viö komum hingað 1983 til þess að gifta okkur. Þetta var í janúar og viö ílugum í gegnum New York. Þar var nístandi kalt og ég sagði að ef það væri jafn kalt á ís- landi yrði ég ekki lengi þar. En veðr- ið reyndist miklu mildara þegar hingað var komið. Tveimur árum seinna fluttum við til íslands en það tók mig talsvert langan tíma að venj- ast skammdeginu og snjónum," greinir Deborah frá. Hún hafði starfað hjá risasímafyr- irtækinu AT&T í Bandaríkjunum áður en hún fluttist til íslands. Fyrstu sex árin á íslandi var hún heimavinnandi húsmóðir með tvær dætur en fór að leita sér að vinnu utan heimilis þegar hún og fyrrver- andi maöur hennar skildu 1991. „At- vinnuleitin var erfið áður en ég fékk íslenskan ríkisborgararétt því þá skrifaði ég náttúrlega bara mitt út- lenska nafn á umsóknirnar. En um leið og fékk íslenskan ríkisborgara- rétt gat ég bætt nafninu Dagbjört við og þá fékk ég svör. Ég fékk fyrst starf viö framreiöslu og svo skrifstofu- starf.“ Boðinn styrkur til háskólanáms Líkamsrækt hafði lengi verið áhugamál hennar og sérstaklega eft- ir að hún hætti í frjálsum íþróttum meðan hún bjó enn í Bandaríkjun- um. „Ég þótti nokkuð góð í sprett- hlaupum og var búin að fá tilboð frá háskóla í Los Angeles um styrk. Ég skaddaðist hins vegar við fall og þurfti að fara í aðgerð. Ég ákvað þá að hvíla mig smátíma en þá var styrkveitingin dregin til baka. Ef ég ætlaöi mér ekki aö hlaupa fengi ég ekkert. Mér var sagt að ég gæti þjálf- aö mig upp aftur í minni skóla og haft samband aftur eftir tvö ár. Þetta þótti mér ömurlegt og ég brást þann- ig við að ég ákvað aö hlaupa ekki meir.“ Gefandi að sjá fólki líða betur Deborah gerðist leiðbeinandi í lík- amsræktarstöð á íslandi fyrir þrem- ur árum og kveðst hafa haft mikla ánægju af starfinu sem hún stundar með framreiðslustarfi á Holiday Inn. „Ég held að mér þyki mest gaman aö einkaþjálfun í líkamsrækt. Þá nálgast maður betur þann sem er að æfa og það er hægt að fylgjast betur með viðkomandi. Það er mjög gef- andi. Þaö er viss hamingja fólgin í því að sjá þegar fólki fer að líða bet- ur. Til dæmis hefur verið hjá mér rúmlega fimmtug kona sem þurfti „Ég vil hafa stuð í kringum mig. Mér þykir meira gaman þegar þátt- takendum þykir gaman." að hvíla sig eftir tveggja til þriggja mínútna skokk þegar hún byrjaði. Hún hafði aldrei hreyft sig neitt. Eft- ir um það bii einn og hálfan mánuð var hún farin að geta skokkað í hálf- tíma í einu. Henni hafði aldrei dottið í hug að hún ætti eftir að geta þetta. Þetta þykir mér skemmtilegt.1' Stelpur í anorexíuhættu Það sem Deborah þykir hins vegar erfiðast við starfið er þegar ungar, horaðar stúlkur koma til hennar og vilja grenna sig. „Sumar vilja líta út eins og einhver tískudrottning. Aðr- ar eru að fara að taka þátt í ein- hverri fegurðarsamkeppni. Þær borða ekkert og eru eins og beina- grindur. Þær toga í þaö sem þær halda að sé fita en er í raun bara húð og spyrja hvernig þær eigi að brenna burt fituna. Ég sest niöur með þess- um stelpum og bendi þeim á að slíkt leiði auðveldlega til anorexíu. Það er allt í lagi að fá smálínur á líkamann en það má ekki fara út i öfgar.“ Sjálf er Deborah aö velta fyrir sér að taka þátt í keppninni „Miss Fit- ness“ sem haldin verður á íslandi í október. „Slík keppni hefur aldrei verið haldin hér áður en úti hefur svona keppni verið haldin í mörg ár. Þetta er ekki beint vaxtarræktar- keppni heldur er dæmt um líkams- byggingu og framkomu. Þátttakend- ur eiga að koma fram í síöum kjólum og tala aðeins jafnframt því sem þeir eiga að koma fram í æfingafötum og gera einhverjar æfingar." Þriðja sterkasta kona íslands Síðastliðið sumar varð Deborah í þriðja sæti í keppninni Sterkasta kona íslands. „Það voru flestir hissa á að ég skyldi geta þetta því hinar voru 7 til 13 kílóum þyngri en ég. Ég var líka elst og sú eina sem var búin að eignast börn en ég vildi vita hvort ég gæti þetta. Það er svo sem ekki kvenlegt að vera að draga bíla og þunga sekki en ég naut góðs stuðn- ings frá eiginmanninum. Þetta var svo gaman að ég ætla að taka þátt aftur. Það var líka gaman að sjá hvernig krakkar, sem'horfðu á þetta, smituðust af áhuganum. Svona keppni leiðir kannski til þess að krakkarnir fari að hreyfa sig.“ Innfluttur lífsstíll Þeir sem fylla tækjasali líkams- ræktarstöðvanna á hverjum degi eru að minnsta kosti frelsaöir. Þar eru tæki fyrir alla vöðva, alla slappa bossa og alla lafandi upphandleggi. Fólk sem situr við vinnu allan daginn er farið að gera sér grein fyrir að það þarf að gera eitthvað fyrir líkamann. Og líkaminn á aö vera stinnur. Það er hugsað um hvern vöðva í tækja- sölunum þar sem skapaðar eru ákveðnar línur. Þeir sem hafa frels- ast segja að þeim líði ekki bara betur líkamlega heldur einnig andlega. Líkamsrækt er ekki lengur bara tóm- stundagaman heldur lífsstíll. Þetta er stíll sem er innfluttur frá Ameríku alveg eins og hamborgararnir og pitsurnar. Amerísk áhrif orðin rosaleg Þegar Deborah flutti til íslands vissi fólk varla hvað liún átti við þegar hún var að tala um pitsur. „Nú eru pitsustaöir á hverju götuhorni. Hér eru seldir amerískir kleinu- hringir, amerískir hamborgarar og það á að fara að selja hér amerískar samlokur. Bílum hefur íjölgað hér LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994 37 mikið frá því að ég kom hingað. Maður er fastur í umferðarteppu bæði kvölds og morgna. Þetta kann- ast ég við frá Bandaríkjunum. Mér finnst ísland oröið rosalega amer- ískt. Þó að líkamsrækt sé góð þá er ekki endilega allt gott sem kemur frá Ameríku. Hér horfa menn svo mikið á amerískar bíómyndir og hjá ungl- ingunum er næstum annað hvert orð enska. Ég held að þetta sé ekki góð þróun." Utanlandsferð í afmælisgjöf Deborah kveðst þó vona að eigin- maður hennar verði ánægður með þá gjöf sem hún gefur honum nú um helgina í tilefni þrítugsafmælis hans þó að gjöfin sé „amerísk". „Það er svo mikið um það í Ameríku að koma einhverjum á óvart í sambandi við afmælisgjafir. Ég er búin að kaupa helgarferð til London handa okkur tveimur og hann veit ekkert hvað stendur til þegar ég fer til hans í vinnuna að sækja hann. Ég er búin að hafa samband við vinnuveitanda hans en maðurinn minn stendur í þeirri trú að við séum bara að fara út að borða hér heima." Langar að sjá Kúbu aftur Hún hefur ekki farið í heimsókn til Kúbu eftir að hún flutti þaðan fimm ára gömul og sá því aldrei aftur föður sinn sem varð eftir á eyjunni en hann lést fyrir nokkrum árum. Hana er farið að langa mikið til að fara til Kúbu til að heimsækja skyld- menni sem þar búa enn. Fregnirnar af ástandinu og flóttamanna- straumnum til Bandaríkjanna vekja þó óhug hjá henni. Þegar hún er spurð um afstöðu bandarískra yfir- valda til stjórnarinnar á Kúbu segir hún að það sé ekki hægt að pína alla Kúbverja vegna stjórnarfars Kast- rós. Hún nefnir að frændi sinn hafi veriö sendur í útlegö frá Kúbu og að fjölskylda hans hafi ekki mátt flytja tU hans til Bandaríkjanna. „Þó svo að Kastró fari frá er hætta á að bróðir hans taki við og ástandið batnar ekki við það. Það er þörf á algjörri breytingu á stjórnarfarinu á Kúbu. En þó að Kastró hafi mistekist ýmislegt þá má hann þó eiga það að heifbrigðiskerfið er gott. Honum hef- ur til dæmis tekist að hefta út- breiðslu eyðni á meðan sjúkdómur- inn breiðist út á flestum öðrum stöð- um. Um leið og fólk á Kúbu greinist með HlV-veiruna er það sent til dval- ar á sérstökum heilsuhælum þar sem það hefur allt til alls. Eyðnismitaðir fá aðeins stöku sinnum leyfi til að heimsækja fjölskyldur sínar.“ Líðurvel á íslandi Deborah segist kunna vel við það að eiga heima á íslandi. „Þegar ég fer í heimsókn til Bandaríkjanna verð ég rugluð eftir nokkra daga. Það er alltof mikill hraði á öllu þar. Ég er búin að fá nóg af dvölinni eftir mán- uð. Ég vildi ekki ala upp börn þar. Ef ég flytti einhvern tíma frá íslandi yrði þaö til einhverrar eyju í Karíba- hafi.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.