Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994 Hún er tvisvar sinnum tvöfaldur f slands- og bikarmeistari 1994: Kvennaboltinn er á uppleið - segir Olga Færseth, markadrottning Breiðabliks „Þegar ég var átta ára fékk vin- kona mín mig til að byrja í fótbolta en viö bjuggum þá í Keflavík. Það má segja að áhuginn hafi vaknað strax enda hefur boltinn átt hug minn allan síðan," segir Olga Fær- seth, bráðum 19 ára, sem er tvöfaldur íslands- og bikarmeistari í fótbolta og körfubolta. Olga hefur vakið mikla athygli fyrir frábæran leik í báðum greinum enda hafa fjölmörg lið sóst eftir kröftum hennar. Olga hefur leikið með Breiðabliki í fótbolt- anum undanfarin fjögur ár og hefur nýlega einnig gengið til liös viö körfuboltadeild Breiöbliks en áður lék hún með Keflvíkingum. Þegar Olga byrjaði í fótboltanum fyrir rúmum tíu árum voru ekki mjög margar stúlkur sem höfðu áhuga á tuðrusparkinu. Handboltinn var mun vinsælli. Olga segir að þetta hafi breyst gífurlega mikið á undan- fórnum árum og nú sé mjög öflugt starf hjá yngri flokkum kvenna í fót- bolta og mikið um að vera. Sá áhugi sem hefur skapast fyrir kvennabolt- anum hefur gjörbreytt stöðu stelpn- anna og félögin gera nú mun meira fyrir þær en áður. „Á mínum yngri árum var Breiöa- blik helsti andstæðingurinn í boltan- um og stelpurnar unnu okkur alltaf. Þegar við höfðum æft í fjögur ár fór- um við síðan að vinna þær og þá var miklum áfanga náð,“ segir Olga sem undanfarin fjögur ár hefur leikið með draumaliðinu, Breiöabliki. „Allt frá því ég byijaði í fótboltanum var ég með sömu stelpunum í Keflavík. Við héldum hópinn allt upp í annan flokk en þá fóru margar að snúa sér aö öðru,“ segir hún. í körfu þrettán ára Þegar Olga var þrettán ára byrjaði hún að spila körfubolta og' það var líka fyrir tilstuölan vinkonu. „Ætli ég sé ekki áhrifagjörn, að minnsta kosti lét ég teyma mig í þetta. Körfu- boltinn hefur alltaf verið vinsæll í Keflavík og reyndar enn meira núna en þegar ég byrjaði. Samkeppnin er orðin gríðarlega mikil milli bæjanna á Suðurnesjum," segir Olga. Þrátt fyrir að Olga hafi spilaö körfubolta með heimaliöi sínu und- anfarin ár tók hún þá ákvörðun að breyta til núna og færa sig í Kópavog- inn þar sem hún hefur spilað fótbolt- ann. Það hefur án efa verið áfall fyr- ir Keflvíkingana. Olga er lágvaxin og því var hún spurö hvort það væri ekki slæmt í körfunni. „Nei, það Olga Færseth er ötlugur fotbolta- og körtuboltaspilari og margfaldur meistari i þeim greinum. DV-myndir Brynjar Gauti ið eftir urðum við íslandsmeistarar. Hins vegar var það árið þar á eftir sem við urðum bæði íslands- og bik- armeistarar og við héldum því á þessu ári,“ segir Olga. í fótboltanum hefur hún átt sömu velgengni að fagna því fyrir þremur árum varð Breiðablik íslands- og bikarmeistari. Þá urðu stelpurnar íslandsmeistarar fyrir tveimur árum en í fyrra töpuðu þær. í ár eru þær síðan aftur orðnar bæði íslands- og bikarmeistarar. Olga er því tvisvar sinnum tvöfaldur meistari þetta árið og geri aðrir bet- ur. Hún vill þó ekki meina að þessi sigurganga sé henni að þakka og nánast hneyksluð yfir spurningunni. „Þetta er hópíþrótt," segir hún. Hins vegar getur Olga ekki þrætt fyrir að hún sé markadrottning tímabilsins þrátt fyrir að enn sé einn leikur eftir í deildinni. Hún segir að ekki skipti minnstu máli frábær þjálfari liðsins, Vanda Sigurgeirsdóttir. „Vanda er ofboðslega hæfileikarík." Olga lék aðeins eitt tímabil með meistaraflokki í fótboltanum í Kefla- vík en þá streymdu til hennar tilboð- in frá öðrum félögum. Ekkert tilboð hefur þó komið frá útlöndum en Olga segir að hún myndi slá til ef slíkt boð kæmi. Það er ekki algengt að íslensk- ar stúlkur fái tilboð um atvinnu- mennsku en það hefur þó gerst. Unn- ur Skúladóttir í Stjörnunni er nýfar- in utan til að spila með dönsku liöi. „Kvennaknattspyrnan er orðin miklu betri hér á landi en áður fyrr og framfarirnar eru mjög miklar. Auk þess hefur áhuginn aukist, t.d. hjá fjölmiðlum, þannig að meira ber á okkur,“ segir Olga. „Kvennakörfu- bolti hefur hins vegar átt frekar erf- itt uppdráttar og enn sem komiö er eru fáar konur sem spila körfubolta. Þó koma margir áhorfendur á bikar- leiki," heldur hún áfram. „Ég býst við að deildin í vetur verði jafnari en hún hefur veriö á undanfórnum árum.“ Olga segir að það sé mikil sam- keppni og metnaður milli liða í kvennaknattspyrnunni og mun meiri en t.d. í körfuboltanum. En stelpurnar standa vel saman í liðun- um og eru góðar vinkonur. Olga sjálf hefur ekki lengur tölu á verðlaunapeningum og bikurum sem hún hefur fengið í gegnum tíðina. - En er kvennaboltinn eitthvaö öðruvísi en karla? „Ég held að kvennaboltinn sé miklu skemmtilegri en karlaboltinn. Það er miklu meira um gróf brot í karlaboltanum. Knattspyrnan er líka nettari hjá okkur,“ segir marka- drottningin Olga Færseth. „Það er mikill munur á kvennaknatt- spyrnu nú eða áður,“ segir Olga og telur kvennaboltann miklu skemmti- legri en karlaboltann. skiptir engu máli. Það er mikill mis- skilningur að maður þurfi að vera risi til að spila körfu. Raunar er betra að sumir séu litlir," segir hún. íþróttirnar hafa átt hug hennar og lítill tími hefur geflst fyrir annað á undanfórnum árum. Olga segir að svo mikið félagslíf sé í kringum íþróttirnar að óþarft sé að bæta fleiri h áhugamálum við. Stelpurnar halda vel hópinn og skemmta sér vel sam- an, sérstaklega eftir unna leiki. „Ég hef verið í fótboltanuni á sumr- in en körfunni á vetrum og þetta hefur gengið mjög vel upp,“ segir hún. „Líklegast myndi maður þó ná betri árangri ef maður héldi sig við eina grein.“ Margfaldir meistarar Olga Færseth er fædd og uppalin í Keflavík, yngst sjö systkina. Hún er sú eina í systkinahópnum sem hefur lagt íþróttirnar fyrir sig. Olga býr nú hjá systur sinni í Hafnarfirði og stundar nám í Flensborg á íþrótta- braut. Og þegar hún er spurð um framtíðaráformin stendur ekki á svari því Olga ætlar sér í íþrótta- kennaraskóla Islands á Laugarvatni. „Mig langar til aö verða íþróttakenn- ari og þjálfari í framtíðinni," segir hún. Það er ekki mjög algengt að sömu stelpurnar séu bæði í körfubolta og fótbolta, þó tíðkaðist það í Keflavík. „Þegar ég kom í Kópavoginn breytt- ist þetta mikiö. Það eru allt aðrar stelpur í fótboltanum en körfunni." Fyrsta árið sem Olga spilaði körfu- bolta meö meistaraflokknum urðu nokkurs konar kynslóðaskipti í liö- inu. „Við töpuðum þá bæöi bikarn- um og íslandsmeistaratitilinum. Ár- Olga í „aksjón" á vellinum. DV-mynd GS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.