Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994
25
íslenskur fluguhnýtingamaður slær í gegn:
Hlaut verðlaun
fyrir tvær veiðiflugur
Fyrir þennan krabba fékk Sigurjón
5. verðlaun.
- stunda veiði sama og ekki neitt, segir Sigurjón Ólafsson
„Það var alger tiMljun að ég fór
í þessa keppni, Mustad Scandina-
vian Open. Ég var staddur í Litlu
flugunni hjá Kristjáni Kristjáns-
syni, einu sinni sem oftar, og við
vorum að rabba saman um heima
og geima eins og gengur. Þá sagði
KK mér frá þessari keppni í flugu-
hnýtingum og hvatti mig til að taka
þátt í henni. Ég bar mig aumlega,
sagðist ekkert kæra mig um það.
Þar að auki taldi ég að tíminn væri
orðinn of naumur. í því að við vor-
um að ræða þetta mál kom Þórður
Þórðarson úr Hafnarfirði inn.
Hann er mikill Mustad maður.
Hann kom inn í umræðuna, æddi
svo út í bílinn sinn og sótti þangað
upplýsingabækling ásamt tveimur
önglum og sagði mér að nota þá.
Þar með varð ekki aftur snúið,“
sagði Sigurjón Ólafsson, einn fæ-
rasti fluguhnýtari landsins, en
hann vann til verðlauna á Mustad
Scandinavian Open fluguhnýtinga-
keppninni í Noregi í vor.
Kepptvið
atvinnumenn
Á annað hundrað hnýtarar víðs
vegar úr heiminum tóku þátt í
keppninni. Hún er háð í 8 flokkum
eftir flugugerðum. Veitt eru verð-
laun fyrir 10 bestu flugurnar í
hverjum flokki. Sigurjón sendi
flugur í alla flokkana og náði 5.
sæti í opnum flokki. Þar er um að
ræða það sem ekki telst beint fluga
og hnýtti Sigurjón krabba fyrir
þennan flokk. Síðan náði hann 7.
sæti í Nymfu-flokki. Það skal tekið
fram að hér er verið að verðlauna
fyrir útlit og handbragð.
„Ég stóð alltaf í þeirri meiningu
að hér væri um keppni innan Norð-
urlandanna að ræða en ekki al-
heimskeppni. Hefði ég vitað það
hefði ég ekki tekið þátt enda er
maður þá farinn að keppa við at-
vinnumenn. Sú var líka raunin á
að þessu sinni. Fjöldi atvinnu-
manna, sem maður kannast við
nöfnin á, var meðal þátttakenda.
Setið við heila nótt
Ég var líka orðinn mjög seinn
fyrir. Síöustu forvöð til að skila
Fyrir þessa maíflugu, nymfu, hlauf Sigurjón 7. verðlaun í nymfuflokki á
Mustad scandinavian open.
Silungs- og laxaflugur eftir Sigurjón. Veiðiflugur verða vart betur hnýttar
en þessar. DV-myndir BG
Listavel gerðar klassiskar enskar laxaflugur eftir Sigurjón. Svo mikið
verk er að hnýta svona flugur og þær svo dýrar að mjög lítið er gert að
því nú orðið nema sem sýningargripi.
Sigurjón Olafsson við fluguhnýtingar. Hann er sagður einn allra snjall-
asti fluguhnýtari landsins.
flugum í keppnina voru 30. mars.
Það var komið vel yfir þann 20.
Þegar ég byrjaði að hnýta. Enda
var það svo að ég varð að sitja við
heila nótt og daginn eftir fór konan
mín með þetta í póst. Ég er því
ánægður með árangurinn og tel
mig mega vel við una,“ sagði Sigur-
jón.
Hefur hnýtt í 5 ár
- En hvað ertu búinn að fást
lengi við fluguhnýtingar?
„Það eru komin um það bil 5 ár
síðan ég byijaði á þessu, þá rúm-
lega þrítugur. Síðan hefur þetta
verið mitt aðaltómstundagaman og
ég er bara áhugamaður. Ég hef
stöku sinnum hnýtt fyrir Kristján
Kristjánsson í Litlu flugunni ef
hann hefur vantað eitthvað sérs-
takt. Svo hafa vinir og kunningjar
beðið mig um flugur en ég er hvergi
með mínar flugur til sölu.“
- Hefurðu hnýtt einhveijar flugur
frá sjálfum þér sem hafa náð frægð
fyrir veiði?
„Það er nú ekki mikið. Ég hnýtti
að vísu einhvern tímann straum-
flugu sem gaf vel og gerir enn í
Laxá í Þingeyjarsýslu. Ég nefndi
hana Gullintanna. Ég hygg að það
sé mín frægasta fluga."
Stundar lítið veiðar
- Veiðir þú mikið sjálfur?
„Nei, sama og ekki neitt. Ég fer
nánast aldrei til veiða. Ég fer aö
vísu á hverju ári á urriðasvæðið í
Laxá í Þingeyjarsýslu. Mér finnst
ekkert sumar vera nema ég komi
við hjá Hólmfríði enda tekur hún
svo vel á móti manni. Þar gengur
mér alltaf mjög vel enda heitir þaö
að mér gangi vel ef ég mæti á stað-
inn. Fyrir utan þetta veiði ég ekki
neitt. Ég stundaði Elliðavatnið dá-
lítið þegar ég var ungur en þangað
hef ég ekki komið í 10 ár.“
- Hvernig vildi þaö þá til að þú
byijaðir að hnýta?
„Þaö var hrein tilviljun. Þannig
var að sem krakki eignaðist ég lít-
inn kassa með hnýtingadóti fyrir
byijendur. Ég opnaði hann aldrei
þá. Það hðu svo yfir 20 ár frá því
ég eignaðist kassann og þar til
hann fannst niðri í geymslu. Bróöir
minn, sem einhvemtíma haföi lært
að hnýta flugur, var viðstaddur
þegar kassinn fannst. Hann vildi
endilega prófa dótið. Við sátum og
fiktuðum við þetta í eina klukku-
stund og ég heillaðist svo af flugu-
hnýtingunum að ekki varð aftur
snúið,“ sagði Siguijón Ólafsson.
Ódýr, vel búin 486 tölva sem hentar
einstaklingum og meðalstórum fyrirtækjum
486 SX-25 eða DX2-50 örgjörvar
4 MB minni
170 / 210 / 270 MB harðir diskar
14" SVGA litaskjár
Cirrus Local Bus skjátengi
512 KB eða 1 MB skjáminni
Tulip öryggiskerfi
MS DOS 6.2
^ E R Ð E n
FRA KR:
98.500
Tullp Computers leggur mlklo |a.IT~T, ."7^
áherslu á gæðl og hefur fengið
1509001 vottun fyrlr þróun,
framleíðslu og þjónustu.
10-16
Tulúp computers|
SKAFTAHLIO 24 - SÍMI 69 77 OO
Alltaf skreft á undan
Gæðamerkið frá Hollandi