Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Blaðsíða 22
22
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994
Sérstæð sakamál
Drykkfelldi
kráareigandinn
Audrey Woodley.
Fólk kom langar leiðir til þess
að fá sér ölglas í kránni Lysley
Arms í Pewsham á Suður-Eng-
landi. Ástæðan var þó hvorki sú
aö maturinn þar væri betri en
gengur og gerist né það sem borið
var fram í glösunum. Hún var sú
að allar líkur voru á því að veiting-
arnar yrðu bornar fram af eigin-
konu mannsins sem rak krána.
Audrey Woodley hét hún og var
þrjátíu og sjö ára. Þótti fegurð
hennar viðbrugðiö. Maður hennar
var Robert Woodley, íjörutíu og
fjögurra ára, almennt talinn ró-
lyndur og kurteis maður. Þótti
gestunum sem þau væru fyrir-
myndarhjón. En ekki er allt sem
sýnist.
Skuggahliðar
einkalífsins
Þegar kránni var lokað á kvöldin
varö mikil umbreyting á Robert
Woodley. Þá tók hann að drekka
ótæpilega og þegar drykkjan hafði
staðið um hríð tók hann að gagn-
rýna konu sína fyrir allflest það
sem honum kom til hugar. Gagn-
rýnin varð svo gjarnan aö skömm-
um og skammirnar stundum aö
barsmíðum. Robert gætti þess þó
ætíð að slá konu sína þannig aö föt
hennar hyldu marið eða áverkann.
Þannig vissi enginn um þessa
dökku hlið heimilislífsins nema
þau hjón.
Kvöld eitt kom erlendur gestur í
Lysley Arms. Hann hét Erik
Grimm og var frá Neuchatel í Sviss.
Grimm var matsveinn og vann á
gistihúsi skammt frá kránni.
Framkoma hans féll Audrey vel og
brátt urðu þau málkunnug. Sá
kunningsskapur breyttist síðar í
ástarsamband.
Dag einn tilkynnti Robert Audrey
að hann hygðist fara á ráöstefnu
forstöðumanna kráa. Þegar Grimm
frétti hvað til stóð bauð hann
Audrey að koma meö sér í vikuferð
til Neuchatel, enda yrði hún komin
aftur í krána áður en Robert sneri
heim. Féllst hún á það og fékk vina-
fólk til að annast reksturinn meðan
hún væri í burtu.
Hvíta duftið
í tvö ár stóð samband þeirra
Audrey og Eriks án þess að Robert
virtist hafa hugmynd um þaö. Sú
tilgáta kom hins vegar síðar fram
að hann hefði látið sér fátt um það
finnast.
Bæði Audrey og Erik töldu sig
vita hver væri ástæðan til hins
mikla grimmlyndis Roberts. Það
væri drykkjuskapurinn og tækist
að fá hann til að hætta áfengjs-
neyslu myndi hann verða annar
og betri maður. Dag einn kom Erik
til Audrey og sagði henni að líklega
væri hann búinn aö finna ráð til
að venja Robert af drykkjunni.
Hann hefði fengið lyf frá vini sínum
og væri því blandaö saman við mat
sem Robert borðaði fyndist honum
áfengi andstyggilegt. Það gæti aftur
orðið til þess að hann sneri baki
við flöskunni.
Þannig sögöu þau Audrey og Erik
síðar frá og bættu við að þau hefðu
orðið sammála um að gefa Robert
skammt af lyfmu, hvítu dufti. Lag-
aði Erik svissneskan ostarétt og
blandaði því í hann. Var hann síðar
borinn fyrir Robert. Með réttinum
var borið fram borðvín.
Eitur
Þegar Robert hafði bragðað á
ostaréttinum setti hann upp skrít-
inn svip og eftir smástund ýtti hann
frá sér vínglasinu. Svo sagði hann
að það hlyti eitthvað aö vera að
ostaréttinum því vínið kannaðist
hann við og að því væri ekkert.
Síðla nætur vaknaði Robert og
kvartaði um miklar kvahr í magan-
um, enda var hann nú með hljóö-
um. Var hann fluttur á sjúkrahús
í skyndi, en hann lést fyrir dögun.
Rannsókn leiddi í ljós að hann hafði
látist af eitrun.
Þegar Audrey hafði skýrt frá til-
rauninni kvöldið áður til að venja
Robert af drykkjuskap var hvíta
duftið tekið til athugunar. Efna-
fræðingar skýröu skömmu síðar
frá því að um væri að ræða mjög
sterkt flúórsamband, af þeirri teg-
und sem sett væri í drykkjarvatn
til vamar tannskemmdum, en þá
auðvitað í allt öðru magni hlutfalls-
lega en gert hafði verið kvöldið
áður þegar ostarétturinn var lagað-
ur. Þótti ljóst að það magn sem
Grimm hafði undir höndum dygði
til að drepa mörg þúsund manns.
Var hann beöinn aö visa á vininn
sem hefði látið hann fá það en þá
vafðist honum tunga um tönn.
Eftir langvarandi yfirheyrslur,
þar sem Grimm neitaði því að hafa
ætlað sér að myrða Robert, var
hann settur í varðhald, og nokkru
síðar tók embætti saksóknara um
það ákvörðun að ákæra hann.
Dómur sem
vakti athygli
Morðákæran vakti mikla athygli.
Fóru blöð að kanna feril fólksins
sem við sögu kom og var þá dregið
fram í dagsljósið hvernig gengið
hafði til á heimili Woodleys-hjón-
anna. Olli það aftur því að fram
komu grunsemdir vissra aðila um
að Erik Grimm hefði ætlaö sér að
myrða Robert til þess að geta geng-
ið að eiga Audrey. Jafnframt kom-
ust sumir á þá skoðun að Audrey
væri ekki eins saklaus og hún hefði
látist vera.
Eftir blaðaskrif og almenna um-
fjöllun var boðiö til réttarhalda og
var margt um manninn í réttar-
salnum. Flykktist fólk að til að sjá
laglegu konuna sem hafði afgreitt
í Lysley Arms en kynni að vera
þátttakandi í morðsamsæri. Hafði
þó engin ákæra verið gefin út á
hendur henni.
Þegar saksóknari og verjandi
Eriks Grimm höfðu gert grein fyrir
málavöxtum drógu kviödómendur
sig í hlé en þegar þeir komu aftur
í réttarsalinn tilkynnti formaður
kviðdómsins að Erik Grimm teldist
saklaus af morðákæru. Hann teld-
ist hins vegar sekur um manndráp
af gáleysi þar eð honum hefði borið
að kanna betur hvaða efni það var
sem hann hefði haft undir höndum
svo hann hefði getað stillt skammt-
inum í hóf. Fékk Grimm tveggja
ára fangelsisdóm, en áður hafði
dómarinn gagnrýnt framferði
hans, einkum það aö hann hefði
ekki gert neina tilraun til að kanna
hvaöa efni hann hefði haft undir
höndum. Lengra gekk hann ekki í
gagnrýni sinni, enda ósannað talið
að Grimm hefði ætlað sér að ráða
Robert Woodley af dögum.
Fögnuður
Þótti ýmsum sem með réttarhöld-
unum fylgdust að ekki hefði verið
rétt að málatilbúnaði staðið, ekki
Robert Woodley.
Audrey þegar hún gekk frá Lysley
Arms í síðasta sinn.
síst með tilliti til þess að Grimm
hefði aldrei getað sýnt fram á hver
hann var þessi vinur hans sem
hefði látið hann fá duftið, sem hafði
að auki reynst vera allt annað en
lyf til að venja fólk af drykkjuskap.
Engu aö síður þótti stórum hópi
fastagesta Lysley Arms sem konan
sem þeir höfðu ætíð haft í svo mikl-
um hávegum hefði unnið mikinn
sigur. Flykktust þeir að Audrey
Woodley þegar hún gekk út úr rétt-
arsalnum og fylgdu henni eftir til
krárinnar. Var málalokum þar
fagnað fram eftir kvöldi.
Nokkru eftir þetta fékk Audrey
greitt líftryggingarfé manns síns
en það var allhá upphæö. Þegar það
spurðist fór aftur að bera á gagn-
rýni á réttarhöldin og þótti sumum
nú óhætt að setja fram þá kenningu
£if festu að Audrey heföi tekið þátt
í því með Erik Grimm aö gefa
manni sínum eitur. Hefðu þau síð-
an ætlað aö gifta sig og njóta trygg-
ingarfjárins saman. En Grimm
varð ekki ákærður fyrir sama
glæpinn öðru sinni og ekki þótti
embætti saksóknara ástæða til að
gefa út ákæru á hendur Audrey.
Almenningsálitið
Um hríð gekk allt vel í Lysley
Arms. Umtal fólks varð Audrey
hins vegar æ meir í óhag og fór
þeim stöðugt fjölgandi sem töldu
að hún og Erik Grimm heföu staðið
að samsæri. Þar kom að einhverjir
fóru á fund eiganda Lysley Arms,
en kráin var eign stórrar brugg-
húsakeðju. Var því haldið fram við
forsvarsmenn hennar að ekki
kæmi til greina að krá, sem væri
ætlað að vera athvarf fólks sem
mæti fjölskyldulíf mikils, yrði
framvegis undir stjórn konu sem
svo margir teldu hafa staðið að
morðsamsæri.
Um hríð aðhöföust eigendur
krárinnar ekkert, en þar kom að
þeir sáu sér ekki annað fært en að
taka tillit til almenningsálitsins.
Boðuðu þeir Audrey Woodley á
sinn fund og tjáðu henni að nú yrði
hún að víkja.
Ekki fer neinum sögum af fund-
inum með Audrey, að ööru leyti en
því að hún varð við tilmælunum.
Hún bar sig þó vel, tók saman fögg-
ur sínar og fór eftir að hafa kvatt
nokkra nánustu vini sína. Ekki
sagði hún neinum hvert hún hygð-
ist fara og er ekki vitað um dvalar-
staö hennar nú.
Til matseldar
Erik Grimm tók út sinn dóm.
Ekki tóku þau Audrey upp fyrra
samband. Hann hélt til heima-
landsins, Sviss, og setti upp veit-
ingahús þar. Fréttamaður, sem
komst að því hvar hann haföi sest
að, fór þangað og sagði á eftir að
Grimm gengi reksturinn vel, en
bætti því síðan við í spaugi að allt
seldist þar vel... nema ostaréttur-
inn.
Það vakti nokkra athygli þegar
fastagestir Lysley Arms fréttu aö
Audrey haföi ekki tekið saman við
Erik Grimm þegar hann fékk frels-
ið og hann haldið einn síns liðs til
Sviss. Var nú sem sumum fyndist
að ef til vill heföi Audrey verið
höfð fyrir rangri sök. Óvíst hlyti
aö teljast hvort hún hefði tekið
þátt í samsæri um að ryðja Robert,
manni sínum, úr vegi, og jafnvel
þótt Erik Grimm heföi ætlað sér
að myrða Robert með flúórblönd-
unni væri ekki hægt aö fullyrða að
Audrey heföi nokkuð um það vitað.
En almannarómur hafði haft sín
áhrif. Audrey Woodley var á bak
og burt og myndi ekki snúa aftur.