Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994
41
Trimm
Ánægðir með allt
nema umferðina
- Sigurður P. Sigmundsson gerir upp Reykjavíkurmaraþonið
Að mati aðstandenda nýafstaðins Reykjavíkurmaraþons er nauðsynlegt að losna við umferðina á næsta ári.
Margir í
Brúar-
hlaupi
UMFá
Selfossi
Mjög góð þátttaka var í Brúar-
hlanpi UMF á Selfossi um síðustu
helgi. 900 manns hlupu og hjól-
uðu í skikkanlegu veðri. Meðal
hlaupara er lokið lofsorði á fram-
kvæmd hlaupsins og allan að-
búnað og viðurgjörning. Áfram
Selfoss.
Sprettur í Grafarvogi
Nú fer almenningshlaupum
mjög fækkandi en viö viljum
samt minna á Grafarvogshlaup
Fjölnis sem fer fram 17. septemb-
er og hefst kl. 14 við Stórhöfða
17. Aðeins ein vegalengd er í boði,
3,5 kílómetrar.
C-vítamin vemdar vöðvana
Nýlegar breskar rannsóknir sýna
að C-vítamín er líkamanum
nauðsynlegt við að byggja upp
vöðva að nýju eftir mikið álag.
Það bæði styttir tímann sem það
tekur líkamann að jafna sig og
dregur úr harðsperrum. C-vítam-
ín virðist einnig draga úr slæm-
um áhrifum mikillar loftmeng-
unar á lungu hlaupara. C-vítamín
er einkum aö íinna í sítrusávöxt-
um eins og appelsínum og sítrón-
um.
Tröppuþrek í staðinn fyrir hiaup
Bandarísk rannsókn sýnir fram
á að rösklegt tröppuþrek getur
vel komið í staðinn fyrir gott
hlaup. Með því að stíga upp og
niður á tröppuna að minnsta
kosti 32 sinnum á mínútu í hálf-
tíma samfleytt jaíhgildir þaö 7
kílómetra hlaupi á þéttingshraða.
Hugsið um þetta í vetur þegar
snjórinn hylur allt.
Nú eru verktakar að leggja síðustu
hönd á langþráðan göngustíg sem
hggur úr Skerjafirði í sveig fyrir
enda flugvallarins og inn í Nauthóls-
vík. Stígurinn beygir af Skeljanesi
rétt norðan við olíustöðina og endar
við hús sportkafara í Nauthólsvík.
Upphaflega átti stígurinn að vera til-
búinn 1. september en verktakinn
hefur fengið frest til 15. sept. Stígur-
inn verður malbikaður og há girðing
meðfram honum sem skilur að alla
umferð gangandi fólks og flugbraut-
ina. Með þessum stíg, sem trimmarar
hafa beðið eftir með öndina í hálsin-
um, opnast leiðin úr Skerjafirði og
að Öskjuhhð. Sæmilegur göngustíg-
„Umferðin hefur alltaf verið vanda-
mál en að þessu sinni keyrði um
þverbak," sagði Sigurður P. Sig-
mundsson, framkvæmdastjóri
Reykjavíkurmaraþons, í samtah við
Trimmsíðuna. „Það virtust óvenju-
margir koma til að fylgjast með og
það er ánægjulegt í sjálfu sér að
kynning á hlaupinu hefur tekist vel.
En við heyröum kvartanir um meng-
un frá kyrrstæðum bílum í gangi.“
Erlendis er víða hlaupið maraþon-
hlaup í stórborgum og á mörgum
stöðum er lokað fyrir alla umferð á
meðan. Þetta er t.d. gert í New York,
London og Berlín en er engin algild
regla. Víðast hvar tíðkast að loka
Umsjón
Páll Ásgeir Ásgeirsson
hluta götunnar af fyrir hlauparana.
„Við höfum lengi barist fyrir því að
fá að loka fyrir umferðina að hluta
eða öhu leyti. Okkur finnst ahs ekki
til of mikils mælst að fá lokun í fjóra
klukkutíma einu sinni á ári. í ár og
í fyrra var ræst kl. 11 í stað 12 áður,
gagngert til þess að losna við hádeg-
isumferðina.
Það eina sem lögreglan fæst til þess
að gera er að líta eftir og stjóma
umferðinni á stærstu gatnamótun-
ur hggur áfram inn með Fossvogin-
um en ágætt kerfi göngustíga er um
alla Öskjuhhð. Frá hinum endanum
liggur afbragðsstígur meðfram sjón-
um í Skeijafirði og út alla Ægisíðu
út að Skjólum. Betri leið getur vart
til þess að anda að sér sjávarlofti og
virða fyrir sér fuglalíf. Nú vantar
aðeins herslumuninn til þess að
tengja þennan stíg viö stígana í Foss-
voginum sem síðan ná áfram upp í
Elhðaárdal og þaðan upp í Heiðmörk.
Breiðholt og Árbær tengjast Elliða-
árdalnum svo sjá má að þessi stúfur,
sem nú verður senn tekinn í notkun,
er mjög mikilvægur.
um. Nokkrir hlauparar lentu í vand-
ræðum vegna bíla sem óku í veg fyr-
ir þá og einn hlaupari tábrotnaði eft-
ir samstuð við bíl. Við megum þakka
fyrir að óhöppin urðu ekki fleiri og
alvarlegri. Það er ekki forsvaranlegt
að menn séu í slysahættu og það er
forgangsatriði fyrir næsta ár að
kippa þessu í lag,“ sagði Sigurður.
„Eg veit ekki hvort vald lögreglu-
stjóra er algjört í þessum efnum en
borgin hlýtur að hafa eitthvað að
segja. Þetta tefur umferðina ekki
meira en malbikunarframkvæmdir."
Stjórn Reykjavíkurmaraþons settist
á rökstóla fljótlega eftir hlaupið og
þá krufðu menn það sem þeim þótti
að betur mætti fara. Sigurður sagði
að fyrir utan smávægileg mistök við
tímatöku í 10 kílómetra hlaupi, sem
var kippt í liðinn á síðustu stundu,
hefðu engin vandamál komið upp við
framkvæmdina.
700 skráðu sig of seint
„Við þurfum hins vegar að laga
tímamörk skráningar. Við höfum
gefið eftir í því til þess að koma til
móts við fólk en það gengur á lagið.
Það voru 700 manns sem skráðu sig
á laugardeginum. Þá átti skráningu
að vera löngu lokið. Þetta varð gífur-
legt álagt á starfsfólkið, aö okkar
mati óþarfa álag. Sá sem ætiar í hálft
eða heilt maraþon gerir það ekki
óundirbúinn og þarf ekki að draga
fram á síðustu stundu aö skrá sig.
Hugmyndir okkar lúta að því að
næsta ár verði þeim veitt einhver
umbun sem skrá sig meö góðum fyr-
irvara."
Ætti að breyta
leiðinni?
Stundum hafa þær raddir heyrst
að hlaupaleiðin sem farin þegar
Reykjavíkurmaraþon fer fram sé
ekki alls kostar heppileg. Sú gagn-
rýnin kemur einkum frá þeim sem
hlaupa heilt maraþon og finnst sál-
fræðilega erfitt að fara tvo hringi.
Eru uppi hugmyndir um að breyta
hlaupaleiðinni?
„Okkur hefur fundist það kostur
að hlauparar sem fara heilt maraþon
hafa félagsskap af hinum sem fara
hálft. Það er ekkert sérstakt kapps-
mál að hafa maraþoniö einn heilan
hring og erfitt að koma því við hér í
Reykjavík án þess að meiri brekkur
yrðu í hringnum en nú eru. Þó höfum
við látið okkur detta í hug breytingar
sem tengjast því þegar búið verður
að gera góðan göngustíg gegnum
Fossvog, meðfram Óskjuhlíð út í
Skerjafjörð. Þá, hvort sem það verð-
ur 1996 eða síðar, opnast ýmsir
möguleikar sem vert er að skoða,“
segir Sigurður.
Fleiri útlendingar
Hefur þátttaka í Reykjavíkurmara-
þoni náð hámarki að þínu mati eða
mun hlaupurum áfram fjölga? „Ég á
varla von á miklum sveiflum í þátt-
töku. Erlendum keppendum íjölgar
hægt og rólega og margir þeirra sögð-
ust í blöðum eftir hlaupið vera mjög
hrifnir af því. Alls tóku 250 útlend-
ingar þátt í ár en voru 200 í fyrra.
Stöðugt fleiri ferðaskrifstofur, sem
leggja áherslu á íþróttaferðir, aug-
lýsa Reykjavíkurmaraþon og við höf-
um fengið góða kynningu erlendis
að undanförnu. Við verðum enn fyrr
á ferðinni með erlenda skráning-
arbæklinginn okkar en í fyrra, hann
kemur út nú fyrir áramót. Þátttaka
íslendinga verður vonandi áfram
jafn góð og vaxandi en ég býst ekki
við mikilli aukningu nema áhugi á
hlaupum og skokki aukist enn í sam-
félaginu. En við erum farnir að huga
að næsta hlaupi og stefnum að því
það verði enn skemmtilegra en þaö
siðasta. Það eru ýmsar hugmyndir í
gangi um að leggja meiri áherslu á
skemmtiþáttinn í hlaupinu, veita
fleiri verðlaun fyrir ýmsa þætti sem
myndu laða almenning til meiri þátt-
töku. Þaö kemur í ljós að ári.“
KAUPBEIÐNI
Nafn:
Kennit:
Heimilisfang: Slmi:
CU EuroD Visa.nr: Gildistími: O Póstkrafa:
I IStór-Revkiavlkursvæöiö I 1 - I 1 rv O Akureyri
>ú fyllir út kaupbeiðni/r og velur hvort þú viljir sjá leikina á Akureyri eöa Stór-Reykjavíkursvæðinu. í
slembimiðapottinum veróa 5000 miðar og því er ekki öruggt að þú fáir miða. Slembimiöinn gildir á eitt leikkvöld
sem eru 2 eða 3 leikir. í pottinum verða 250 miðar á útsláttarkeppnina og eru þeir mun verðmeiri. Ef heppnin er
með þér getur þú fengið miða á úrslitaleikinn fyrir aðeins 2500 kr.! Þeir aðilar sem verða dregnir út fá skriflegt
svar fyrir I október og greiða þeir 2500 kr. fyrir slembimiðann.
____ unairsKnn:
W RA? VÍS
ICEltND
1 »995 1 Pósthólf 170,602 Akureyri.
einkasöluaðili S: 96*12999, 96-12800, 91-641522
Hinn lang-
þráði stígiu'