Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Síða 33
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994 41 Trimm Ánægðir með allt nema umferðina - Sigurður P. Sigmundsson gerir upp Reykjavíkurmaraþonið Að mati aðstandenda nýafstaðins Reykjavíkurmaraþons er nauðsynlegt að losna við umferðina á næsta ári. Margir í Brúar- hlaupi UMFá Selfossi Mjög góð þátttaka var í Brúar- hlanpi UMF á Selfossi um síðustu helgi. 900 manns hlupu og hjól- uðu í skikkanlegu veðri. Meðal hlaupara er lokið lofsorði á fram- kvæmd hlaupsins og allan að- búnað og viðurgjörning. Áfram Selfoss. Sprettur í Grafarvogi Nú fer almenningshlaupum mjög fækkandi en viö viljum samt minna á Grafarvogshlaup Fjölnis sem fer fram 17. septemb- er og hefst kl. 14 við Stórhöfða 17. Aðeins ein vegalengd er í boði, 3,5 kílómetrar. C-vítamin vemdar vöðvana Nýlegar breskar rannsóknir sýna að C-vítamín er líkamanum nauðsynlegt við að byggja upp vöðva að nýju eftir mikið álag. Það bæði styttir tímann sem það tekur líkamann að jafna sig og dregur úr harðsperrum. C-vítam- ín virðist einnig draga úr slæm- um áhrifum mikillar loftmeng- unar á lungu hlaupara. C-vítamín er einkum aö íinna í sítrusávöxt- um eins og appelsínum og sítrón- um. Tröppuþrek í staðinn fyrir hiaup Bandarísk rannsókn sýnir fram á að rösklegt tröppuþrek getur vel komið í staðinn fyrir gott hlaup. Með því að stíga upp og niður á tröppuna að minnsta kosti 32 sinnum á mínútu í hálf- tíma samfleytt jaíhgildir þaö 7 kílómetra hlaupi á þéttingshraða. Hugsið um þetta í vetur þegar snjórinn hylur allt. Nú eru verktakar að leggja síðustu hönd á langþráðan göngustíg sem hggur úr Skerjafirði í sveig fyrir enda flugvallarins og inn í Nauthóls- vík. Stígurinn beygir af Skeljanesi rétt norðan við olíustöðina og endar við hús sportkafara í Nauthólsvík. Upphaflega átti stígurinn að vera til- búinn 1. september en verktakinn hefur fengið frest til 15. sept. Stígur- inn verður malbikaður og há girðing meðfram honum sem skilur að alla umferð gangandi fólks og flugbraut- ina. Með þessum stíg, sem trimmarar hafa beðið eftir með öndina í hálsin- um, opnast leiðin úr Skerjafirði og að Öskjuhhð. Sæmilegur göngustíg- „Umferðin hefur alltaf verið vanda- mál en að þessu sinni keyrði um þverbak," sagði Sigurður P. Sig- mundsson, framkvæmdastjóri Reykjavíkurmaraþons, í samtah við Trimmsíðuna. „Það virtust óvenju- margir koma til að fylgjast með og það er ánægjulegt í sjálfu sér að kynning á hlaupinu hefur tekist vel. En við heyröum kvartanir um meng- un frá kyrrstæðum bílum í gangi.“ Erlendis er víða hlaupið maraþon- hlaup í stórborgum og á mörgum stöðum er lokað fyrir alla umferð á meðan. Þetta er t.d. gert í New York, London og Berlín en er engin algild regla. Víðast hvar tíðkast að loka Umsjón Páll Ásgeir Ásgeirsson hluta götunnar af fyrir hlauparana. „Við höfum lengi barist fyrir því að fá að loka fyrir umferðina að hluta eða öhu leyti. Okkur finnst ahs ekki til of mikils mælst að fá lokun í fjóra klukkutíma einu sinni á ári. í ár og í fyrra var ræst kl. 11 í stað 12 áður, gagngert til þess að losna við hádeg- isumferðina. Það eina sem lögreglan fæst til þess að gera er að líta eftir og stjóma umferðinni á stærstu gatnamótun- ur hggur áfram inn með Fossvogin- um en ágætt kerfi göngustíga er um alla Öskjuhhð. Frá hinum endanum liggur afbragðsstígur meðfram sjón- um í Skeijafirði og út alla Ægisíðu út að Skjólum. Betri leið getur vart til þess að anda að sér sjávarlofti og virða fyrir sér fuglalíf. Nú vantar aðeins herslumuninn til þess að tengja þennan stíg viö stígana í Foss- voginum sem síðan ná áfram upp í Elhðaárdal og þaðan upp í Heiðmörk. Breiðholt og Árbær tengjast Elliða- árdalnum svo sjá má að þessi stúfur, sem nú verður senn tekinn í notkun, er mjög mikilvægur. um. Nokkrir hlauparar lentu í vand- ræðum vegna bíla sem óku í veg fyr- ir þá og einn hlaupari tábrotnaði eft- ir samstuð við bíl. Við megum þakka fyrir að óhöppin urðu ekki fleiri og alvarlegri. Það er ekki forsvaranlegt að menn séu í slysahættu og það er forgangsatriði fyrir næsta ár að kippa þessu í lag,“ sagði Sigurður. „Eg veit ekki hvort vald lögreglu- stjóra er algjört í þessum efnum en borgin hlýtur að hafa eitthvað að segja. Þetta tefur umferðina ekki meira en malbikunarframkvæmdir." Stjórn Reykjavíkurmaraþons settist á rökstóla fljótlega eftir hlaupið og þá krufðu menn það sem þeim þótti að betur mætti fara. Sigurður sagði að fyrir utan smávægileg mistök við tímatöku í 10 kílómetra hlaupi, sem var kippt í liðinn á síðustu stundu, hefðu engin vandamál komið upp við framkvæmdina. 700 skráðu sig of seint „Við þurfum hins vegar að laga tímamörk skráningar. Við höfum gefið eftir í því til þess að koma til móts við fólk en það gengur á lagið. Það voru 700 manns sem skráðu sig á laugardeginum. Þá átti skráningu að vera löngu lokið. Þetta varð gífur- legt álagt á starfsfólkið, aö okkar mati óþarfa álag. Sá sem ætiar í hálft eða heilt maraþon gerir það ekki óundirbúinn og þarf ekki að draga fram á síðustu stundu aö skrá sig. Hugmyndir okkar lúta að því að næsta ár verði þeim veitt einhver umbun sem skrá sig meö góðum fyr- irvara." Ætti að breyta leiðinni? Stundum hafa þær raddir heyrst að hlaupaleiðin sem farin þegar Reykjavíkurmaraþon fer fram sé ekki alls kostar heppileg. Sú gagn- rýnin kemur einkum frá þeim sem hlaupa heilt maraþon og finnst sál- fræðilega erfitt að fara tvo hringi. Eru uppi hugmyndir um að breyta hlaupaleiðinni? „Okkur hefur fundist það kostur að hlauparar sem fara heilt maraþon hafa félagsskap af hinum sem fara hálft. Það er ekkert sérstakt kapps- mál að hafa maraþoniö einn heilan hring og erfitt að koma því við hér í Reykjavík án þess að meiri brekkur yrðu í hringnum en nú eru. Þó höfum við látið okkur detta í hug breytingar sem tengjast því þegar búið verður að gera góðan göngustíg gegnum Fossvog, meðfram Óskjuhlíð út í Skerjafjörð. Þá, hvort sem það verð- ur 1996 eða síðar, opnast ýmsir möguleikar sem vert er að skoða,“ segir Sigurður. Fleiri útlendingar Hefur þátttaka í Reykjavíkurmara- þoni náð hámarki að þínu mati eða mun hlaupurum áfram fjölga? „Ég á varla von á miklum sveiflum í þátt- töku. Erlendum keppendum íjölgar hægt og rólega og margir þeirra sögð- ust í blöðum eftir hlaupið vera mjög hrifnir af því. Alls tóku 250 útlend- ingar þátt í ár en voru 200 í fyrra. Stöðugt fleiri ferðaskrifstofur, sem leggja áherslu á íþróttaferðir, aug- lýsa Reykjavíkurmaraþon og við höf- um fengið góða kynningu erlendis að undanförnu. Við verðum enn fyrr á ferðinni með erlenda skráning- arbæklinginn okkar en í fyrra, hann kemur út nú fyrir áramót. Þátttaka íslendinga verður vonandi áfram jafn góð og vaxandi en ég býst ekki við mikilli aukningu nema áhugi á hlaupum og skokki aukist enn í sam- félaginu. En við erum farnir að huga að næsta hlaupi og stefnum að því það verði enn skemmtilegra en þaö siðasta. Það eru ýmsar hugmyndir í gangi um að leggja meiri áherslu á skemmtiþáttinn í hlaupinu, veita fleiri verðlaun fyrir ýmsa þætti sem myndu laða almenning til meiri þátt- töku. Þaö kemur í ljós að ári.“ KAUPBEIÐNI Nafn: Kennit: Heimilisfang: Slmi: CU EuroD Visa.nr: Gildistími: O Póstkrafa: I IStór-Revkiavlkursvæöiö I 1 - I 1 rv O Akureyri >ú fyllir út kaupbeiðni/r og velur hvort þú viljir sjá leikina á Akureyri eöa Stór-Reykjavíkursvæðinu. í slembimiðapottinum veróa 5000 miðar og því er ekki öruggt að þú fáir miða. Slembimiöinn gildir á eitt leikkvöld sem eru 2 eða 3 leikir. í pottinum verða 250 miðar á útsláttarkeppnina og eru þeir mun verðmeiri. Ef heppnin er með þér getur þú fengið miða á úrslitaleikinn fyrir aðeins 2500 kr.! Þeir aðilar sem verða dregnir út fá skriflegt svar fyrir I október og greiða þeir 2500 kr. fyrir slembimiðann. ____ unairsKnn: W RA? VÍS ICEltND 1 »995 1 Pósthólf 170,602 Akureyri. einkasöluaðili S: 96*12999, 96-12800, 91-641522 Hinn lang- þráði stígiu'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.