Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1995, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1995
11
DV
Takmarkað framboð á sérfræðingum hjá Tryggingastofnun rikisins:
Fréttir
Enginn lýtalæknir með samning
- fullt gjald án þátttöku rikisins hjá 52,3 prósentum sérfræðinga
Af þeim 386 sérfræðingum sem hafa
samning við Tryggingastofnun ríkis-
ins hafa 204 sagt upp samninginum
frá og með 1. maí næstkomandi.
Ástæðan er sú ákvörðun Sighvats
Björgvinsonar heilbrigðisráðherra aö
taka upp tilvísanakerfi. Leiti sjúkling-
ar til þessara lækna eftir 1. maí verða
þeir að bera allan kostnað af kom-
unni því án samnings tekur Trygg-
ingastofnun ekki þátt í kostnaðinum.
Á síðasta ári voru komur til sér-
fræðinga alls 325 þúsund, þar af voru
186 þúsund til lækna sem verða án
samnings við Tryggingastofnun eftir
1. maí.
Fjöldi sérfræðinga, 'sem sagt hafa
upp samningi sínum við Trygginga-
stofnun, er mismunandi eftir grein-
um. Þannig hafa til dæmis allir lýta-
læknarnir, alls 5 sérfræðingar, sagt
upp, en enginn af 28 starfandi augn-
læknum. Af 37 geðlæknum hafa 15
sagt upp, af 31 barnalækni hafa 17
sagt upp, af 31 kvensjúkdómalækni
hafa 21 sagt upp og af 9 þvagfæra-
læknum hafa 7 sagt upp.
Þá hafa 3 af 5 öldrunarlæknum
sagt upp samningi við Trygginga-
stofnun, 17 af 44 skurðlæknum, 47
af 73 lyflæknum, 15 af 21 háls-, nef-
og eyrnalækni, 20 af 30 svæfmga-
læknum, 5 af 7 krabbameinslæknum,
og 10 af 13 húðlæknum. Einungis 1
endurhæfmgarlæknir af 5 hefur sagt
upp samninginum en 8 af 22 bæklun-
arlæknum hafa gert það.
Af þeim sérfræðingum sem nú
Uppsagnir sérfræðinga
- hjá Trygggingastofnun taka gildi 1. maí 1995 -
Oldrunarlæknar
Þvagfæralæknar
Taugalæknar
Svæflngalæknar
Skurðlæknar
Lýtalæknar
Lyflæknar
Kvensjúkdómalæknar
Krabbameinslæknar
Húölæknar
Hals-, nef- og eymalæknar
40%
,6%
I
Bamalæknar
71,4%
64,4%
67,7%
60 70 80 90 100%
DV
60%
77,8%
66,7%
00%
starfa fyrir Tryggingastofnun hafa
47,7 prósent ekki sagt upp samningi
sínum við Tryggingastofnun. Á síð-
asta ári fóru 42,7 prósent sjúklinga
sem þurftu sérfræðihjálp til þeirra.
Hlutfall þeirra sem sagt hafa upp
samningnum er 52,3 prósent og fengu
þéir til sín 57,3 prósent af öllum kom-
umtilsérfræðingaífyrra. -kaa
Þróun atvinnulífs á landsbyggðinni
Umsókn um styrki
Stjórn Byggðastofnunar hefur á-
kveðið að verja verulegum hluta af
ráðstöfunarfé sínu á árinu 1995 til að
styrkja þá sem vilja stuðla að þróun at-
vinnulífs á landsbyggðinni.
Stefnumótandi áætlun í byggðamál-
um var samþykkt af Alþingi 6. maí
1994. í samræmi við hana verður lögð
megináhersla á nýsköpun í atvinnu-
lífinu, styrkveitingar til vöruþróunar og
markaðsmála og til að auka hæfni
starfsmanna. Lögð verður áhersla á
samstarfsverkefni milli fyrirtækja á
landsbyggðinni og við rannsókna- og
menntastofnanir.
Stofnunin hefur til ráðstöfunar fé af
almennu framlagi af fjárlögum auk sér-
staks framlags til að styrkja nýjungar í
atvinnulífi á þeim svæðum sem eru sér-
staklega háð sauðfján-ækt. Vakin er at-
hygli á því að styrkveitingar vegna
sauðfjársvæða eru ekki bundnar starf-
# Byggðastofnun
Engjateigi 3 • 105 Reykjavík • Sími 560 5400 • Brófsími 560 5499 • Graen lína 800 6600
Hafnarstræti 1 • 400 ísafirði • Sími 94-4633 • Brófsími 94-46 22
Skagfirðingabraut17-21 • 550 Sauðárkróki • Sími 95-36220 • Bréfsfmi 95-36221
Strandgötu 29 • 600 Akureyri • Sími 96 12730 • Brófsími 96-12729
Miðvangi 2-4 • 700 Egilsstöðum • Sími 97 12400 • Brófsími 97-12089
semi sem fer fram á lögbýlum eða í
sveitum.
Umsækjendur geta verið einstakling-
ar, fyrirtæki, atvinnuþróunarfélög eða
sveitarfélög. Lögð er áhersla á vandaðan
undirbúning verkefna að því er varðar
markmið og umfang, vinnuaðferðir og
fjármögnun. Þátttaka umsækjenda í
kostnaði er nauðsynleg.
Tvær úthlutanir verða á árinu 1995.
Umsóknarfrestur vegna fyrri úthlutunar
er til 1. apríl. Gert er ráð fyrir því að
umsóknir verði afgreiddar í maí. Um-
sóknarfrestur vegna seinni úthlutunar er
til 1. september og verður hann auglýstur
sérstaklega.
Umsóknir má senda til allra skrifstofa
Byggðstofnunar. Þar er þar hægt að fá
umsóknareyðublöð og allar nánari
upplýsingar. Atvinnuráðgjafar víðs
vegar um landið veita aðstoð við undir-
búning verkefna og umsókna.
rw
TIL ALLT AÐ 36 IWAnAÐA
m RAOGREhOSLUP
TIL AL^T^^MáSaÐA
Macintosh Performa 475 er öflug einkatölva, sem
hentar sérlega vel hvort heldur er fyrir heimili,
skóla eða fyrirtæki. Hægt er að nota hana fyrir nánast
allt sem viðkemur námi, starfi eða leik.
Svo er hún með íslensku stýrikerfi og fjölmörgum
forritum á íslensku.
Apple-umboðið hf.
Skipholti 21, sími: (91) 62 48 00
* Upphæðin er meðaltalsgreiðsla með vöxtum, lántökukostnaði og færslugjaldi.
Macintosh Performa 475 er með
15" Apple-litaskjá, stóru hnappaborði, mús,
4 Mb vinnsluminni og 250 Mb harðdiski.