Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1995, Page 19
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1995
31
Fréttir
Skýrr breytt í hlutaf élag?
- höfum fengið að fylgjast með hveiju skrefi, segir talsmaður starfsmanna
Haukur Pálmason, formaður
stjórnar Skýrsluvéla ríkisins og
Reykjavíkurborgar, Skýrr, segir að
tillögur stjórnarinnar að stofn-
samningi fyrir breytingu á rekstri
Skýrr í hlutafélag séu langt komn-
ar og verði lagðar fram innan fárra
vikna.
Tillögumar gangi í meginatrið-
um út á að breyta rekstrinum úr
sameignarrekstri með ótakmark-
aðri ábyrgð eigenda í hlutafélags-
form með ábyrgð sem takmörkuð
er við hlutafé. Skattbyrði fyrirtæk-
isins breytist og ábyrgð eigendanna
takmarkist. Stefnt er að því að
rekstrarforminu verði breytt á
þessu ári.
„Við höfum ekki verið með nein-
ar hugleiðingar um aö selja hlut
borgarinnar í þessu fyrirtæki en
ef við eigum áfram helming í þessu
fyrirtæki viljum við fá arð í sam-
ræmi við það eða minnka hlut
borgarinnar í fyrirtækinu. Ríkið
notar þjónustuna að 90 prósentum.
Við viljum að hagkvæmur rekstur
þessa fyrirtækis nýtist ekki bara
ríkinu í formi lægri þjónustu-
gjalda,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri.
„Við höfum fengið að fylgjast með
hverju skrefi í þessu máli. Við er-
um ekki hrædd við þessar breyt-
ingar í sjálfu sér, auðvitað erum
við.varkár en ekki hrædd. Þessár
breytingar eru í lagi svo framarlega
sem það nást samningar um að
starfsmannamálin séu í góðu lagi,“
segir Garðar Hilmarsson, formað-
ur Starfsmannafélags Skýrr, SSRR.
Eldur í verbúð
Eldur kom upp í risíbúð í verbúð
Soffaniasar Cecilssonar hf. hér í
Grundarfirói. Um er að ræða gam-
alt hús og gekk greiðlega að ráða
að niðurlögum eldsins. Reyndar
voru það vaskir lögreglumenn sem
fyrstir komu á vettvang og slökktu
eldinn. Slökkviliðið sá svo um af-
ganginn. Á myndinni er verið að
reykhreinsa ibúðina eftir brunann.
DV-mynd Ingibjörg T. Pálsdóttir,
Grundarfirði
Sólarkaffiog3ja
stjörnu koníak
Regina Thorarensen, DV, Selfossi;
Ég átti nýlega tal við séra Jón
ísleifsson, sóknarprest í Ámesi á
Ströndum. Þar er nú geysilega mikill
snjór, einkum við hús Kaupfélags
Norðurfjarðar sáluga. Illmögulegt aö
sækja nokkurn mat í Norðurfjörð en
Kaupfélag Hólmavíkur rekur nú
verslun í gamla kaupfélagshúsinu.
Rafmagnið er skammtað í Árnes-
hreppi og hefur verið síðan óhappið
varð við Þverárvirkjun á dögunum.
SólarkafFi var dmkkið 28. janúar
því sólin sást ekki fyrr vegna dimm-
viðris. í venjulegu árferði sést sólin
í Árneshreppi fyrst 14. janúar. Ár-
neshreppsbúar halda þeim góða sið
að drekka sólarkafíi eða súkkulaði
með þriggja stjömu koníaki.
Bláalónið:
Útlendingar
90%ijanúar
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Þrátt fyrir rysjótt veður hefur
aðsókn verið mjög góð í Bláa lónið.
Vel hefur til tekist að stjórna hitan-
um og þrátt fyrir rok og kulda hefur
hitinn í lóninu verið mjög notaleg-
ur,“ sagði Kristinn Benediktsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Bláa
lónsins, í samtali við DV.
Góð aðsókn var í lónið í janúar -
rúmlega 3000 manns. Það er svipaður
fjöldi og í fyrra en fyrir þremur ámm
komu um 1000 manns í lónið í jan-
úar. Uppbyggingarstarfiö skilar góð-
um árangri.
Útlendingar eru fjölmennir í lón-
inu, 90% þeirra sem þar komu í jan-
úar, en það þykir líka gott að fá 300
íslendinga á þessum árstíma.
STÓRÚTSALA
Á NOTUÐUM BÍLUM
Það dugar ekkert hangs á útsölunni hjá Jöfri því hún
stendur aðeins yfir í stuttan tíma.
ÞÚ KAUPIR NOTAÐAN
BÍL FRÁ JÖFRI OG
FÆRÐ í KAUPBÆTI:
4 snjódekk.
Ábyrgðartryggingu í 6 mánuði.
Jöfursábyrgð í 6 mánuði.
OG ÞÚ GETUR
GREITT PAKKANN:
• Á þremur árum (36 mánuðum)
með fyrstu greiðslu í maí.
• Með EURO-raðgreiðslum í 36 mánuði.
• Með VISA raðgreiðslum í 18 eða 24 mánuði.
Eða fengið staðgreiðsluafslátt, allt að
250.000 kr.
F
NOTAÐIR BÍLAR
Skeljabrekka 4
Simi: 64 26 10, 4 26 00
Opnunartimi: mán.-fös. 9-18, lau. 12-16