Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Side 24
LAUGARDAGUR 25. MARS 1995
Á bak við þennan glugga í Bangkok sitja vændisstúlkur sem bjóða ferða-
mönnum „nudd“.
lOtil 13 ára
á kjötmörkuðum
Hræðslan við smit hefur leitt til
þess að stúlkurnar, sem neyddar eru
til að selja sig, verða sífellt yngri. Á
Sinna lOtil 15
körlum á kvöldi
Eftirspurnin eftir telpum er meiri
en framboðið og fer stöðugt vaxandi.
Þess vegna eru um 10 þúsund stúlkur
á aldrinum 11 til 13 ára fluttar inn
árlega frá nágrannalöndunum
Búrma, Laos og Kína. Fyrstu vikuna
í Taílandi eru þær í sérstöku afmeyj-
unarherbergi í vændishúsunum þar
sem þeim er nauðgað til skiptis gegn
háu gjaldi. Síðan eiga þær að sinna
10 til 15 viðskiptavinum á kvöldi.
Viðskiptavinimir eru oft giftir menn
sem síðan smita eiginkonur sínar af
hálf milljón smituð af alnæmi
Það fyrsta sem leigubílstjórar í
Bangkok í Taílandi spyrja ferða-
menn um er ekki hvert skuh aka
heldur hvort þeir vilji stúlkur, drengi
eða börn. Bílstjórarnir geta útvegað
allt við vægu verði en geta ekki um
aukaverkanirnar, alnæmi sem breið-
ist hraðar út í Taílandi en nokkru
öðru landi. Talið er að 500 til 700
þúsund Taílendingar séu smitaðir af
alnæmi. 35 þúsund hafa þegar veikst.
Samkvæmt upplýsingum Alþjóða
heilbrigðismálastofnunarinnar
greinast um 200 tilfelli á dag. Við lok
aldarinnar mun þriðjungur allra
dauðsfalla í Taílandi verða af völdum
alnæmis, að því er alnæmissérfræð-
ingurinn Vithaysa við Chiang Mai
háskólann í Bangkok gerir ráð fyrir.
alnæmi.
Fyrsta kynlífsreynsla flestra taí-
lenskra karla er af vændiskonu. Ekki
er óalgengt að þeir eigi viðhald eða
heimsæki vændishús tvisvar í viku
eftir að þeir hafa gengið í hjónaband.
Þegar taílenskir ráðherrar ferðast
um land sitt standa þeim til boða fall-
egar ungar stúlkur í þeim bæjum
sem þeir heimsækja. Þegar gengið
er frá viðskiptasamningum bíður
bónusinn í leigubílnum eða á hótel-
inu. „Bónusinn" er vændiskona sem
vinnur hjá viðkomandi fyrirtæki.
Þetta er hluti af lífsmynstrinu.
Hundruð þúsunda
stundavændi
Fulltrúi stjórnvalda telur að í Taí-
landi stundi á milh 150 og 300 þúsund
einstaklingar vændi. Ýmis samtök,
sem berjast gegn vændinu, telja að
þeir sem selja sig séu á milli 800 þús-
und og 2 milljónir. Samtökin benda
á að í Taílandi séu 6 til 7 milljónir
ólöglegra innílytjenda. Þar séu um 1
þúsund fátækrahverfi eða bæir þar
sem íbúamir eru ekki skráðir.
Ferðamönnum sem koma til Taí-
lands til að eiga kynmök við börn
fjölgar stöðugt. Algeng sjón í Taí-
landi er miðaldra erlendur ferða-
maður með loðinn og sveran hand-
legg um mittið á 10 ára gamalli taí-
lenskri telpu.
Lögreglan lætur stundum til skar-
ar skríða en samtökin sem berjast
gegn vændi segja lögregluna spillta
því mafían teygi anga sína víða.
Yfirvöld hafa nú hafið herferð gegn
barnavændinu í íjölmiðlum og skól-
um til að reyna að breyta viðhorfi
bama og foreldra. Einnig á að reyna
að bæta lífsskilyrði fátækra bænda í
Norður-Taílandi þaðan sem flest
börnin koma. Haft hefur verið sam-
band við erlend sendiráð í Bangkok
og beðið um aðstoð.
Það er fullyrt að í Taílandi sé að
finna glæsilegustu baðstrendur i
allri Asíu. Margir þeirra ferðamanna
sem sækja Taíland heim koma þó
ekki þangað i þeim eina tilgangi að
flatmaga á ströndunum eða skoða
fagurlega skreytt musteri. Þeir koma
til þess að eiga mök við börn, telpur
og drengi á aldrinum 10 til 13 ára.
kjötmörkuöum eins og Patpong í
Bangkok er algengt að þær séu 10 til
13 ára gamlar.
„Það er varla til sá fjölskyldufaðir
nyrst í Taílandi sem ekki hefur selt
eina eða tvær dætra sinna til um-
boðsmanna mafíunnar,“ segir Vanc-
hai Julsukont, fulltrúi samtaka sem
berjast gegn vændi. Veröið er 40 til
50 þúsund krónur. Stúlkumar eru
valdar í fegurðarsamkeppnum í
heimahéruðum og síðan lokkaðar til
vændishúsanna í Bangkok undir því
yfirskini að þar fái þær menntun og
vinnu. í sumum bæjum eru engar
ungar stúlkur eftir því þær hafa allar
verið sendar suöur. Við könnun kom
í ljós að í 9 bæjum voru aðeins eftir
5 stúlkur á aldrinum 13 til 14 ára.
Hundruð þúsunda stunda vændi í Taílandi:
Tíu ára böm á
kjötmarkaðn-
um í Bangkok