Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 25. MARS 1995 Poppstjömur ársins: Við misstum af Bubba - segja þau Emiliana Torrini og Páll Rósinkrans sem urðu sigurvegarar á íslensku tónlistarhátíðinni „Við viljum tónlistarstrið - byltingu. Það þarf eitthvað að gerast," segir þetta unga fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í heimi frægðarinnar. hætti í vinnu, sem ég var í, og félagar mínir hættu í skóla til að geta gert tónlistina að fullu starfi. Við vorum einlægir og trúðum á það sem við vorum að gera. Samstarfið hefur gengið mjög vel hjá okkur,“ segir Páll Rósinkrans. í tónleikaferðalag í næsta mánuði kemur plata Jet Black Joe, Fuzz, út í flestum Evrópu- löndum og í Asíu. í kjölfar þess fer hijómsveitin í tónleikaferðalag. „Þetta gefur okkur tækifæri til að spila fyrir útlendinga og vekja at- hygli á okkur.“ Báðar fyrri plötur Jet Black Joe hafa verið gefnar út á Evrópumark- aði og á Filippseyjum þar sem hljóm- sveitin hefur náð miklum vinsæld- um. „Lagið Rain náði fjórða sætinu í samantekt útvarpsstöðva þar í landi,“ segir Páll og þess má geta í leiöinni að lagið Tabu með Spoon heyrðist á útvarpsstöð í Barcelona fyrir stuttu þannig að unga fólkið á íslandi nær eyrum fjöldans. Páll Rósinkrans og félagar hafa lít- ið spilað á tónleikum undanfarið. Páll segir að þeir hafi verið að und- irbúa plötu sína fyrir utanlands- markað. Þeir eru þó ákveðnir í að troða upp áður en haldið verður ut- an. Ekkert er heldur ákveðið með næstu plötu. Emiliana segir hins vegar að Spoon hafi áhuga á að gefa út sína aðra plötu á þessu ári en þó hefur ekkert verið ákveðið ennþá með tímasetn- ingar. „Maður pæhr kannski minnst í plötuútgáfu á þessum árstíma,“ skýtur Páh inn í. „Tónhstarmenn eru á fuhu á haustin og fram að jólum en reyna síðan að slappa af fyrstu mánuði ársins," útskýrir hann. Vantar stefnu - En hvemig finnst ykkur tónhstar- markaðurinn vera um þessar mund- ir? „Það er mikið framboð af ahs kyns tónlist en engin stefna eða stíh ríkj- andi. Það vantar einhveija spennu í markaðinn - eins og var til dæmis á hippatímabilinu," svarar Emihana og Páh bætir við: „Það vantar ein- hvem kraft í þetta. Það er enginn æsingur í fólki á tónleikum eins og var hér áður fyrr.“ Þau segjast þó finna fyrir mikilli grósku í tónhstarheimir.um en hún rriætti vera meiri. „Það mætti koma tóniistarstríð og allt brjálað," segir Emihana. „Já, uppreisn," segir Páll. Þau eru sammála um að gaman værí að standa að einhvers konar byltingu á þessu sviði. „Við viljum meiri spennu í loftið.“ „Fólkiö þarf að brjótast út úr þess- um íslendinga-fíhngi. Mér finnst Emiliana Torrini, tæplega átján ára menntaskólastúika og söngkona hljómsveitarinnar Spoon, og Páll Rósinkrans, 21 árs söngvari hljóm- sveitarinnar Jet Black Joe, voru kjörin söngkona og söngvari ársins á hátíð íslenskra tónhstarmanna sem fram fór á Hótel íslandi sl. sunnu- dagskvöld. íslensku tónlistarverð- launin em virtustu verðlaun sem fólk í tónhstarheiminum getur hlotið hér á landi. Þau vom nú afhent í annað sinn og má segja að orðið hafi kynslóðaskipti í tónhstarheiminum. Unga fólkið er að koma fram á sjón- arsviðið. Emiliana Torrini var auk þess kos- in bjartasta vonin sem einstakhngur og hljómsveit hennar, Spoon, hlaut einnig þann titil sem hljómsveit. Hljómsveit Páls, Jet Black Joe, var kosin flytjandi ársins og átti einnig lag ársins. „Ég er mjög ánægð með þessi verð- laun, þau eru mikill heiður," sagði Emihana þegar helgarblaðið ræddi við hana og Pál Rósinkrans í vik- unni. Hann tók undir með henni þótt hann segðist ekki vita hvað heiður- inn þýddi fyrir sig. „Þessi kynslóða- skipti em mjög ánægjuleg fyrir okk- ur. Það er í raun langt síðan maður hefur heyrt eitthvað nýtt í tónhst- inni. Hún hefur verið nokkuð stöðn- uð,“ segja þau. Gróska í tónlistarlíílnu Emihana segir að nokkur gróska sé að færast í tónlistarlífið. Hún og félagar hennar í Spoon hafa fengið upphringingar frá ungu fólki sem vih fá að vita hvemig þau bára sig að við að gefa út plötu. „Það má segja að við höfum ratt veginn því það hefur ekki verið algengt að ungir tónhstarmenn gefi sjálfir út plötu,“ segir Emihana en hún og félagar hennar í Spoon nutu engrar aðstoðar hljómplötuútgefenda þegar þau gáfu út plötu sína. Jet Black Joe var heppnari því sú hljómsveit fékk plötusamning á með- an hún var nánast enn í bílskúmum. Pétur Kristjánsson heyrði í strákun- um og ákvað að taka þá upp á sína arma. Þaö var síðan Steinar Berg sem sá um útgáfuna og hefur nú komið hljómsveitinni á kortið víöa um lönd. Jet Black Joe hefur verið starfandi í fjögur ár en Páh Rósinkrans var aðeins sautján ára þegar hljómsveit- in hóf feril sinn. Hljómsveitin vakti strax mikla athygli og Páll Rósin- krans skaust upp á stjömuhimininn. „Maður gerði sér enga grein fyrir því hvað var að gerast," segir hann. „Líf- ið breyttist talsvert á stuttum tíma og þetta var aht mjög skrítið. Ég unga fólkið vera of feimið við að tjá tilfinningar sínar á tónleikum. Tón- hstarmenn hér á landi eru miklu þvingaðri en kollegar þeirra í útlönd- um. Það gerist m.a. vegna þess að fólkið heldur manni niðri. Maður fær ekki útrás á sviðinu. Annars erum við hötuð af fimmtíu prósentum þjóðarinnar vegna þess að við syngj- um ekki á íslensku," segja þau. „Mér finnst það asnaleg spurning þegar ég er spurð af hverju ég syngi ekki á íslensku," segir Emihna. „Það er ekkert hægt að svara því nema með orðinu „bara“,“ heldur hún áfram. Páh segir að draumurinn um að geta spilað á erlendum vettvangi sé eina ástæða Jet Black Joe fyrir því að syngja á ensku. „Ef við gerðum plöt- umar okkar á íslensku þyrftum við að útbúa þær aftur á ensku fyrir er- lendan markað. Við teljum að enskan henti okkur best og höfum þvi kosið að vinna plöturnar aðeins á einu tungumáh." Raggi er flottur - En hlustið þið á gömlu tónlistar- mennina, t.d. Ragnar Bjarnason? „Raggi Bjarna er flottur,“ svara þau samtímis. „Hann er flott týpa - verulega „Cool“.“ Emihana segist lítið hafa hlustað á íslenska dægurtónlist í gegnum tíð- ina. „Ég veit aldrei hver er hvað.“ - Þú þekkir nú Bjögga? „Já, ég þekkti dóttur hans, hún er gömul vinkona mín.“ „Ég á mjög fáar plötur," segir Páh. „Helst einhveija gamla soul-gaura.“ Emiliana segist hafa haldið mikið upp á Kötlu Maríu þegar hún var barn en Páll segist ekki hafa átt neitt átrúnaðargoð. Páh Rósinkrans er ahnn upp í Hafnarfirði og kemur úr mikihi söngætt. „Mamma á sjö systkin og þau hafa öll sungið inn á plötu,“ seg- ir hann. Móðursystir hans er Sigríö- ur Guðnadóttir sem er vel þekkt söngkona. Páll var í drengjakór þeg- ar hann var tíu ára gamah. Þegar hann var fjórtán ára byijaði hann í hljómsveit. „Ég var ráðinn vegna þess að ég var í leðuijakka og kú- rekastígvélum," segir hann. Páll vih þó ekki viðurkenna að hann hafi verið töffari en segist hafa verið frek- ar erfiður og uppreisnargjarn ungl- ingur. „Ég tók þátt í þrettándaólátum í Hafnarfirði - það gerðu reyndar flestir unghngar á þeim tíma,“ segir hann. „Þá voru allir unglingar' klæddir svörtum mittisjökkum úr Vinnufatabúðinni sem vora appels- ínuhtir að innan.“ Fóru í söngtíma Emiliana var einnig í kór. Hún er uppalin í Kópavogi og var í Kársnes-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.