Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 25. MARS 1995 Poppstjörnurnar í dag - Emiliana Torrini og Páll Rósinkrans. Hér kíkja þau í gegnum sérstakt listaverk eftir Kristínu Jónsdóttur frá Munkaþverá sem sýnt er á Kjarvalsstöðum skóla þar sem hún tók þátt í kór- starfl. Hún lærði síðan að syngja hjá Þuríði Pálsdóttur um tveggja ára skeið. Draumur hennar er að fara út í frekara óperunám og þá jafnvel í útlöndum. „Mig langar líka til aö syngja blues, ég er minna fyrir popp,“ segir hún. Páll hefur farið í nokkra söngtima hjá Guðmundu El- íasdóttur en segist hafa hætt og það hafi verið sín mistök. Emiliana er mikið fyrir furðufót og segist oft eiga eríitt með að finna fót á sig í verslunum. Þegar hún var yngri vildi hún einungis ganga svart- klædd en nú er hún farin að nota hti. Emiliana var uppreisnargjarn ungl- Lngur eins og Páll Rósinkrans. „Ég gerði náttúrlega aht það sem var bannað,“ segir hún. Þegar Páll var spurður hvort for- eldrar hans væru ekki bara stoltir af honum í dag svaraði hann: „Jú, ég held það. Móðir mín, Hrefna Guðnadóttir, var stöðugt að biðja mig að klippa mig en nú er hún hætt því.“ Þess má geta að Páll á tveggja ára son, Helga Val. Emiliana Torrini er hálfítölsk. Hennar sérstaka nafn er komið úr nöfnunum á ömmum hennar, Emilíu og Önnu. Faðir hennar er ítalskur, Salvadore Torrini, en móðirin ís- lensk, Anna Stella Snorradóttir. Emiliana segir að móðir hennar sé mikil listakona og sé sérlega sniðug að hanna heimih. „Við erum að flytja úr Kópavoginum og mér finnst mamma rosalega klár að finna út hvemig hlutirnir passa best. Emil- iana svarar því játandi þegar hún er spurð hvort hennar foreldrar séu ekki stoltir af henni. „Mamma æsir sig kannski svolítið yfir klæðaburð- inum á mér.“ Kynntust á Akureyri - En hvenær kynntust þau PáU og EmiUana? „Ég man eftir því þegar Jet Black Joe sphaði hjá okkur í tíunda bekk á árshátíð. Mér fannst þeir rosalegir töffarar.“ PáU segist muna eftir þess- um dansleik og þegar hann er spurð- ur hvort hann hafi ekki tekið eftir henni á þessu kvöldi segir hann: „Jú, örugglega, ég er mjög glöggur á kven- lega fegurð." Rétt fyrir síðustu jól kynntust þau á Akureyri en þá voru báðar hljómsveitirnar veðurtepptar. „Við röbbuðum saman um kvöldið og það var mjög skemmtilegt. Síðan fórum við í partí.“ Þau segja að samband miUi tónUst- armanna sé annars ekki mikið. „Það er helst þegar menn hittast að þeir tali saman. Það eru mjög ólíkar manneskjur í tónUstarheiminum og enginn virðist eins.“ - Hvernig taka eldri tónUstarmenn ykkur? „Mjög vel. Þeir eru alveg sáttir við að yngri kynslóð taki við.“ PáU og EmiUana eru svo ung að árum að þau muna ekki eftir því þegar Stjömumessa var haldin en það var aðalhátíð tónlistarmanna á seinni hluta áttunda áratugarins. Þegar Bubbi Morthens gerði aUt vit- laust með Utangarðsmönnum í kringum 1980 var Páll Rósinkrans sex ára gamaU og Emiliana þriggja ára. „Við misstum af Bubba ogpönk- inu,“ segja þau. „Ég á frænda sem var í pönkinu og var í hljómsveitinni Sjálfsfróun. Ég fylgdist með honum," segir Emil- iana. PáU segist hafa hlustað talsvert á þungarokkhljómsveitina AC/DC þegar hann var á þrettánda ári. Bæði hafa þau hlustað á hljómsveitina Cult. íslenskar hljómsveitir hafa ekki komist á kortið hjá þeim. Skrítin áfengisstefna Tónhstarmenn geta verið misjafn- lega upplagðir eins og aðrir og Emil- iana segir að það sé hræðUegt þegar röddin sé í ólagi og tónleikar á dag- skrá. Páll bætir við að röddin geti farið vegna þess að þau kunni ekki að beita henni rétt. „Maður þarf nauðsynlega að læra raddbeitingu. Það er ekki hægt að fara í tónleika- ferðalag án þess að kunna hana.“ Þau PáU og EmUiana eru hissa á áfengisstefnu íslendinga. „í útlönd- um fá menn sér einn bjór þegar þeim dettur í hug. Hér er bara drukkið um _ helgar og þá þannig að fólk verður útúrdrukkið. Ef fólk fær sér einn bjór á þriðjudegi, t.d. með mat, þá hneykslast fólk og segir: „Þessi hlýt- ur að vera alkóhólisti." Þetta er slæmt, segja þau. Emiliana segist vera heimakær. Páll Rósinkrans segir að það hafi verið erfitt að fara út að skemmta sér fyrst eftir að Jet Black Joe urðu vin- sæhr en undanfarið hefur hann verið látinn í friði. „Það hefur enginn áhuga á að tala við mig lengur," seg- ir hann og brosir. Það kostar talsvert að hefja tónlist- arferU, mikUr peningar fara í kynn- ingarstarfsemi. „Ég seldi mótorhjólið mitt,“ segir PáU. „Eg lék í kvikmynd tU að borga skuldir en ég ætla sko ekki að segja hvaða mynd það er,“ segir EmUiana. „Ég er versta leik- kona í heimi.“ „Ég lék einu sinni í Malt-auglýs- ingu en hún var bönnuð eftir eina sýningu. Það var texti í henni sem fór fyrir brjóstið á fólki,“ segir Páll. „Ég sat einu sinni fyrir á bókarkápu og fannst það hræðUegt," segir hún. - En hver eru ykkar áhugamál fyrir utan tónlistina? „Mér finnst gaman að föndra,“ seg- ir EmiUana en Pál dreymir um að fara í fallhlífarstökk. „Mig langar að sigla niður Hvítá,“ segir EmiUana. „Það er alltaf gaman að gera eitthvað spennandi." Framtíðin ókunn - Hver er ykkar framtíðarsýn? „Maður reynir að þroskast með músíkinni og móta hana. Maður horfir á lífið öðrum augum en áður en ég er mjög sáttur við það sem við erum að gera,“ segir hann. EmiUana segist enn vera svo ung í tónUstinni og ómótuð. „Ég er bara rétt að byrja - það kemur svo bara í ljós hvert framhaldið verður. Þetta hefur allt gerst mjög hratt þannig að maður hefur varla áttað sig. En þetta er skemmtilegt." Á John Lennon-sýningu á Kjarvalsstöðum. Þau vilja nýtt hippatimabil. DV-myndir GVA \

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.