Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 27. MAl 1995
Veiðivon
Þaðstyttistíaðlaxveiöimennirn- er spáð góðu veiöisumri þetta árið spá. En veiðimennimir eru alltaf kaupa veiðileyfi fyrir margar millj- og þaö er stærsta spumingin. Við
ir byrji að berja veiðiámar frá og þá veröur það sýnu verst fyrir jafn vonglaöir og eiga von á tölu- ónir. Spennan í laxveiðinni er heyrðum hljóöiö í nokkrum veiði-
morgni til kvölds og reyni að fá norðan. Páir fiskifræðingar hafa veröri veiði, eins og alltaf. Þaö þýð- nefnilega sú hvort laxinn kemur mönnum rétt áöur en veiðitíminn
fiskinn til aö taka agníð. En ekki tjáð sig um sumarið enda erfitt að ir ekki nein svartsýni segja þeir og yfirhöfuð nokkuð í hyljí veiöiánna bytjar fyrir alvöm. -G.Bender
Friðrik Þ. Stefánsson.
Þokkaleg veiði
fyrir sunnan
og vestan
„Ég er þokkalega bjartsýnn á
sumarið á félagssvæðum Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur. Okkár
veiðisvæði eru aðallega á Vestur-
og Suðurlandi og ef spár fiskifræð-
inga ganga eftir verður þokkaleg
veiði á þessum svæðum," sagði
Friðrik Þ. Stefánsson.
„Að auki hefur verðlag á okkar
svæðum verið lækkað til muna
vegna aukins skilnings veiðiréttar-
eigenda á erfiðri stöðu markaðar-
ins. Mér er til efs aö hagstæðara
verð fáist annars staöar miðað við
gæði. Það er kvíði í mér fyrir hönd
íslenskra stangaveiðimanna því
hér hafa á undanfornum vikum
gerst atburðir sem verulega gætu
stefnt í hættu þeirri þróun til jafn-
vægis sem hefur verið í verðlags-
málum. Ég vona svo sannarlega að
þessi þróun verði ekki eyðilögð og
að íslenskir stangaveiöimenn geti
átt von á að kaupa veiðileyfi sem
eru í takt við kaupgetu þeirra,"
sagðiFiúðrik.
Guðný Snæbjörnsdóttir.
Það er gaman
að veiða í Ell-
iðaánum
„Það eru Elhöárnar sem ég fer
alltaf í á hverju ári og oft veiðum
við vel, enda oft mikiö af fiski í
ánum,“ sagði Guðný Snæbjöms-
dóttir.
„Ég reyni að fara alltaf á afmælis-
daginn minn í Elhðámar en maður
fær nú ekki alltaf úthlutaö á þeim
degi. Doddi sonur minn fékk út-
hlutað í júlí og æth ég fari ekki á
árbakkann og fylgist með honum
veiöa. Kannski förum við aftur í
Laxá í Leirársveit eins og í fyrra.
Sá veiðitúr gekk mjög vel,“ sagði
Guðnýennfremur.
í Borgarfirðinum líka. Ég held að
við eigum bæði von á stórlaxi og
smálaxi í bland," sagði Ingvi Hrafn
Jónsson.
„Skilyrði hafa verið góð síðustu
vor í Borgarfirðinum en öðm máli
gegnir um Norðurlandið en þar
gæti orðið róleg veiði. Það verður
allavega gott útsýni yfir veiðiámar
og svo gefast veiðimenn aldrei upp.
Þeir reyna og reyna fram á síðustu
stundu. Krían og lóan koma á stað-
inn og við veiðimenn gerum það
hka og vonum það besta. Við erum
að gera stórátak með sleppingar
seiða í Langá og vorum að sleppa
12.500 gönguseiðum víða um ána
sem öh em merkt. Það verður
spennandi að sjá hvemig þessar
sleppingar koma út,“ sagði Ingvi
Hrafn enn fremur.
Lárus Gunnsteinsson.
Verð nokkrum
sinnum í Vest-
urdalsá
„Það verður veitt viða í sumar,
t.d. í Miðfjarðará, Laxá í Leirár-
sveit, Laxá í Miklaholtshreppi og
svo nokkrum sinnum í Vesturdalsá
í Vopnafirði," sagði Láms Gunn-
steinsson.
„Við vonum að Vesturdalsá verði
kringum meðalveiðina, alla vega,
en það em 222 laxar. í fyrra veidd-
ist nákvæmlega meðalveiðin, 222
laxar. Það er gaman aö veiða þarna
fyrir austan enda áin skemmtileg.
Bleikjuveiðin getur verið feiknagóð
en hollin í fyrra vom að fá á milh
100 og 200 bleikjur auk laxanna,"
sagði Lárus ennfremur.
Einar Sigfússon.
Sumarið byrjar
í Norðurá með
Fjaðrafoki
„Ég spái góðri laxveiði hérna
vestan- og sunnanlands enda góð
skhyrði í hafinu. Fyrir norðan er
spáö minni veiði en það er aldrei
að vita nema smálaxinn mæti í
verulegu magni. Það hafa líka veriö
keyptar upp netalagnir í Borgar-
firðinum og það hefur sitt að segja,“
sagði Einar Sigfússon.
„Við félagamir í Fjaðrafoki byrj-
um sumarið saman í Norðurá í
Borgarfirði og það verður 27. júní.
Um síðustu helgi gengum viö niöur
með Þverá í Borgarfiröi og þaö var
góður göngutúr. Áin óx þann tíma
sem við vorum þarna, enda rigndi
töluvert. Það voru 25 félagar sem
mættu í þessa ferð,“ sagði Einar í
lokin.
Hrafnhildur Sigurðardótfir.
Sumarið byrjar
í Straumunum í
Borgarflrði
„Það veröur veitt á nokkrum
stööum í sumar en fyrsti stóri veið-
itúrinn verður í Straumana í Borg-
arfirði með veiðiklúbbnum Óðflug-
unni. Þessi veiðitúr verður um
mánaðamótinjúní/júlí,“ sagði
Hrafnhildur Sigurðardóttir.
„Mér hst vel á laxveiðina hér á
Vesturlandi en þar gæti orðið tölu-
verð stórlaxaveiði. Oðru máh gegn-
ir um Norðurlandið, þar gæti veið-
in orðið daprari enda hefur verið
kalt þar. Viö í Óðflugu fórum
reyndar í æfingaferð á Hraunið í
vikunni enda styttist í fyrsta veiðit-
úrinn,“ sagði Hrafnhildur enn-
fremur.
„Ég ætla með
konunni í
Noróurá í
juni
„Mér hst ekki vel ábyrjunina í
laxveiðinni í sumar og þá sérstak-
lega fyrir norðan. Hérna fyrir
sunnan verður þetta betra,“ segir
Egill Guðjohnsen.
„Sumarið byriar með veiði á
Munaðamessvæðinu í Noröurá,
svo Laxá í Kjós nokkrum dögum
seinna og svo aftur á Norðurár-
bakka. En þá ætla ég að taka kon-
una meö mér og leyfa henni aö
veiða laxa. Ég held að Rangárnar
og Norðurá verði bestu veiðiárnar
þetta sumarið," sagði Egill.
Silungsveiðin
byrjar frábær-
lega
„Mér hst vel á sumarið og þá sér-
staklega silungsveiðina. Hún byij-
ar frábærlega, til dæmis í Kleifar-
vatni þar sem hefur verið mokveiði
Kolbeinn Ingólfsson.
síðustu dagana," sagði Kolbeinn
Ingólfsson.
„Ég hef trú á laxveiðinni í sumar
en veiðitúrinn í Grímsá í Borgar-
firði í haust er toppurinn á sumr-
inu. Þar hef ég oft fengiö væna laxa
til að taka hjá mér flugu. Svo dettur
alltaf inn einn og einn veiðitúr í
laxveiðinni. Við erum líka mikið
kringum veiðimenn í starfinu,
enda seljum við veiðileyfi í margar
ár og vötn,“ sagði Kolbeinn í lokin.
Þröstur Elliðason.
„Mér líst
þokkalega á
veiðina"
„Mér líst þokkalega á veiðina fyr-
ir sunnan og vestan en ég er
hræddur um að hún verði slök fyr-
ir norðan eitt áriö enn,“ sagði
Þröstur Elliðason.
„Þetta byggi ég á því að smálax-
inn brást fyrir norðan í fyrra. Og
þaö Ieiðir til þess að líklega verður
ekki mikið um tveggja ára lax þar
í sumar. Það kæmi vemlega á óvart
ef veiðin yrði ekki svipuð eða j afn-
vel meiri í Rangánum á sumri kom-
anda. Þetta byggi ég á reynslu af
seiðasleppingum sem hefur fengist
hin seinni árin í Rangánum. í fyrra
veiddust 1600 laxar hjá okkur,"
sagði Þröstur ennfremur.
Ingvi Hrafn Jónsson.
„Veiðimenn
koma eins og
krían og lóan"
„Veiðin í Langá á Mýrum gæti
orðið góð í sumar, eins og reyndar
Eggert Skúlason.
Gef lítið
fyrir spár
fiskifræðinga
„Mér líst rosalega vel á þetta
veiðisumar og ég gef lítið fyrir spár
fiskifræðinga. Enda verð ég von-
andi á réttum stað þegar fiskurinn
gefur sig í sumar," sagði Eggert
Skúlason.
„Við munum taka upp 6 nýja
veiðiþætti um Sporðaköst og það
verður víða um landið. Veiðisum-
arið byijar hjá mér meö Sigurði
niðurbrotna Sveinssyni og Guð-
mundi Framara Guðmundssyni í
shungsveiðinni. Við ætlum að
renna fyrir sUung á góðum stað og
það kemur í ljós seinna hvar það
er. Svo verður veitt vítt og breitt
um landið þegar færi gefst," sagði
Eggertílokin.
Ætla að byrja
sumarið í
Hörðudalsá
„Mér líst alltaf vel á hvert sumar
í veiðinni þótt innst inni viti maður
að laxveiðin gæti brugðist th beggja
vona. En það er spennan í veið-
inni,“ sagði Sigurður Sigurjónsson.
„Það verður alla vega nóg vatn í
ánum í sumar og það er ljósi punkt-
urinn. Ég byrja veiðina í Hörðu-
dalsá 20. júní og þar ætla ég að
veiða mikið af fiski í sumar. Við
félagarnir ég, Jóhann Sigurðarson
og Hallur Leopoldsson leigjum ána
til tveggja ára. Ég skrapp í Vífils-
staðavatn í fyrradag og veiddi vel
í soðið, það er mikið af fiski í vatn-
inu. Það er alltaf jafn gaman að
veiða silunginn," sagði Sigurður í
lokin.
Sigurður Sigurjónsson.
Egill Guójohnsen.