Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 27. MAl 1995 Fegurðardrottning Islands 1995: Þetta hefur verið þroskandi og gefandi - segir Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, 19 ára verslunarskólamær „Mér líður mjög vel, hef haft í nógu að snúast að taka á móti blómasendingum, skeytum og góð- um kveðjum frá vinum og ættingj- um. Þetta er búið að vera meiri hátt- ar,“ sagði nýkjörin fegurðardrottn- ing íslands, Hrafnhildur Hafsteins- dóttir, í samtali við helgarblað DV daginn eftir krýninguna. Meðal þeirra sem komu með blóm til feg- urðardrottningarinnar voru bekkj- arfélagar hennar sem samglöddust henni innilega. Eftir að Hrafnhildur hafði verið kjörin fegurst kvenna á miðviku- dagskvöldið var hún umvafin fólki og hlýjar kveðjur streymdu að henni frá gestum á Hótel íslandi. Það var því magnþrungin spenna hjá hinni nítján ára gömlu verslun- arskólameyju þetta kvöld. Hún sagð- ist þó hafa farið snemma heim enda þreytt eftir spennuríkan dag. „Það var yndisleg tilfinning þegar nafnið mitt var kallað upp enda frá- bært þar sem maður var búin að undirbúa þetta kvöld í marga mán- uði. Þetta hefur eiginlega verið vinna í sex mánuði en jafnframt mjög skemmtilegur tími. Ég verð þó að viðurkenna að geðshræringin var mikil þegar allt var húið og ég fann fyrir nokkurs konar spennu- falli. En þetta var yndislegt kvöld. Mér brá en þetta kom mér skemmti- lega á óvart,“ sagði Hrafnhildur. Átján fallegar stúlkur Átján stúlkur tóku þátt í Fegurð- arsamkeppni Islands að þessu sinni. Stúlkurnar hafa lagt mikla vinnu í að undirbúa kvöldið og meðal þess hafa þær sótt fræðslunámskeið um alnæmi en forráðamenn keppninnar hafa ákveðið að fegurðardrottning Islands muni halda fyrirlestra um sjúkdóminn á næstu mánuðum. Hrafnhildur Hafsteinsdóttir er nítján ára, fædd 7. febrúar 1976. Hún er dóttir Gunnhildar Arnardóttur og Hafsteins Jónssonar. Hrafnhildur á eina systur, Berglind, sem er fjórtán ára. Fegurðardrottningin er fædd og uppalin í Laugarneshverfinu í Reykjavík en stundar nú nám í Verslunarskóla Islands á næstsíð- asta ári. Keppnin fer fram í miðjum prófönnum en hún lætur það ekki á sig fá heldur skipuleggur tíma sinn. I öðru sæti keppninnar varð Sig- ríður Ósk Kristinsdóttir, 18 ára frá Akureyri, í því þriðja Brynja Björk Harðardóttir, tvítug stúlka úr Kefla- vík, en hún var auk þess kosin vin- sælasta stúlkan í hópnum, í fjórða sæti varð Berglind Ólafsdóttir, átján ára úr Hafnarfirði, en hún er jafn- framt fegurðardrottning Reykjavík- ur, og i fimmta sæti varð Guðlaug Harpa Gunnarsdóttir, tuttugu og tveggja ára Kópavogsbúa, en hún var einnig kosin ungfrú Oroblu. Þá var Berglind Laxdal kosin besta ljós- myndafyrirsætan. Fegurðardrottn- ing íslands, Hrafnhildur Hafsteins- dóttir, var einnig kosin O’Neill stúlkan en það er fyrirtæki með sportfatnað sem útdeilir þeim titli. Eftirminnileg stund Hrafnhildur segist vitaskuld hafa farið í keppnina með þeim tUgangi að reyna að vinna og segir að spenn- an hafi verið magnþrungin þegar fyrstu fjögur sætin voru orðin ljós og beðið eftir hver væri sigurvegari kvöldsins. „Þetta á eftir að vera ein af mínum eftirminnilegustu stund- um,“ sagði hún. Hrafnhildur hefur áður tekið þátt í Fordkeppninni 1993, þar sem hún varð í öðru sæti, og í keppninni Hawaiian Tropic í fyrra þar sem Margrét Skúladóttir Sigurz setur kórónuna á fegurðardrottningu Islands, Hrafnhildi Hafsteinsdóttur, stúlkurnar í næstu sætum fylgjast brosandi með. DV-myndir GVA hún var sigurvegari. Það var síðan um áramótin sem haft var samband við hana og óskað eftir henni í prufu fyrir Fegurðarsamkeppni ís- lands og hún sló tU. „Fyrst tók ég þátt í keppninni um fegurðardrottn- ingu Reykjavíkur og undirbúningur fyrir hana hófst í janúar. Sú keppni var síðan 31. mars og síðan þá hefur verið mjög mikill undirbúningur. Maður hefur þurft að skipuleggja allan sinn tíma. Undirbúningurinn hefur verið að mestu fólginn í að byggja sig upp bæði andlega og lík- amlega og æfingar fyrir sjálft kvöld- ið. Þetta hefur verið erfitt en gaman. Með því að taka þátt í þessari keppnL kemst maður í gott form bæði andlega og líkamlega. Einnig lærir maður margt á henni. Ég þekki nokkrar stúlkur sem hafa áður tekið þátt í keppninni og vissi nokkurn veginn í hvað ég væri að fara. Þetta var þó meiri vinna en ég átti von á. Maður þarf að ákveða, áður en tekin er ákvörðun um að vera með, hvort maður vilji leggja þetta á sig og hafi tíma til þess. Ég mundi samt hvetja allar stúlkur, sem þess eiga kost, að taka þátt í þessari keppni því hún er bæði þroskandi og gefandi. Maður lærir að þekkja sjálfan sig betur og að skipuleggja tíma sinn. Stofna saumklúbb Við sem höfum tekið þátt í keppn- inni höfum kynnst vel enda höfum við verið saman nánast öllum stund- um. Við fórum saman í ferðalag um Snæfellsnes og mig langar að segja að eitt það besta við þessa keppni er að kynnast þessum yndislegu stúlk- um. Þær eru allar frábærar enda ætl- um við að halda sambandinu áfram með því að stofna saumaklúbb." Þegar Hrafnhildur var spurð hvort öll þessi undirbúningsvinna heföi ekki tekið tíma frá skólanum svaraði hún því játandi. „Þorvarður Elíasson skólastjóri hefur verið mér mjög hjálplegur og tekið tillit til þess að ég hef verið í þessu.“ Á leið til Bandaríkjanna Sumarið verður viðburðarikt hjá Hrafnhildi þar sem hún mun ferðast til Bandaríkjanna sem O’Neill stúlk- an. „Ég mun fara til Kaliforníu og Flórída í myndatökur þar sem ég mun starfa sem fyrirsæta fyrir O’Neill. Þær myndir munu síðan birtast í bæklingi fyrirtækisins fyr- ir sportföt ársins 1996. Ég er eigin- lega alveg himinlifandi með þann titil því hann skapar mér atvinnu. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á fyrirsætustörfum og þetta kemur mér á framfæri. Ég fór til Flórída og tók þátt í Hawaiian Tropic keppn- inni og mér fannst það mikið og skemmtilegt ævintýri þótt það byði ekki upp á atvinnutækifæri. Hins vegar fékk ég að sjá margt, fór í sigl- ingar og ferðaðist um á limosínum. Það var komið fram við okkur eins og við værum drottningar.” Álausu Hrafnhildur hefur nokkuð fengist við fyrirsætustörf hér á landi með skólanum en jafnframt hefur hún starfað á sólbaðsstofu og í söluturni á sumrin. „Ég stefni á að klára stúd- entspróf á næsta ári og síðan langar mig að ferðast. Sálfræði heillar mig en ég hef þó ekki tekið endanlega ákvörðun með áframhaldið. Ég tel að ef maður hefur tækifæri til að ferðast um heiminn sé það reynsla sem kemur manni að gagni síðar.“ Hrafnhildur segist hafa fengið góðan stuðning frá foreldrum sínum og systur meðan á undirbúningnum stóð. „Þau hafa gefið mér mikinn andlegan stuðning." Varla þarf að taka fram að for- eldrar hennar voru ákaflega stoltir af dóttur sinni þegar hún gekk um salinn með kórónuna á höfði. Hrafnhildur fékk marga fallega vinninga, pels, úr, skartgripi og ferð til Cancun í Mexíkó í sumar fyrir tvo eru meðal þeirra. - En hverjum ætlar fegurðar- drottningin að bjóða með sér til út- landa? „Ætli ég bjóði ekki bestu vinkonu minni,“ svaraði hún en herrarnir verða áreiðanlega glaðir þegar það upplýsist að fegurðardrottningin er á lausu. Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, fegurðardrottning Islands 1995, er í miðjum prófum i Verslunarskóla íslands. Fegurðardrottningin ásamt foreldrum sínum, Hafsteini Jónssyni og Gunn- hildi Arnardóttur, og systurinni Berglind, 14 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.