Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1995 ist Á toppnum Lag Bjarkar Guömundsdóttur, Army of Me, er enn á toppnum, 2. vikuna í röð. Lagið, sem er búið að vera fjórar vikur á listanum, var í 13. sæti fyrir tveimur vik- um. Aðdáendur Bjarkar eru svo sannarlega ekki sviknir af þessu lagi og bíða eflaust spenntir eftir útkomu plötunnar Post sem áætl- að er að komi út 15. júní. Nýtt Hæsta nýja lagið, Living Next Door to Alice með hljómsveitinni Gombie, lendir í 5. sæti sem þyk- ir ansi gott fyrir lag sem kemur nýtt inn á listann. Hér er á ferð- inni gamall Smokeysmellur í nýrri útfærslu. Lagið, sem er að verða mjög vinsælt inn alla Evr- ópu, er m.a. komið inn á topp 40 listann í Bretlandi. Hástökkið Hástökk vikunnar er lagið Vor í Vaglaskógi með hljómsveitinni Sixties sem gaf nýlega út sína fyrstu plötu. Hér er á ferðinni nýtt, íslenskt Bítlavinafélag en hljómsveitin leikur gömul ís- lensk bítlalög. í Sixties eru ung- ir og hressir strákar og eflaust á eftir að heyrast mikið frá þeim í sumar. Lagið, sem er búið að vera í tvær vikur á listanum, var í 30. sæti í síðustu viku en er nú kom- ið í 12. sæti. Rokk og ról ég gefið hef þér... Gömlu rokkbrýnin Little Ric- hard, Chuck Berry og Fats Dom- ino eru aldeilis ekki á þeim bux- unum að setjast í helgan stein þótt árin færist óðfluga yfir. Þeir hafa nú ákveðið að stilla saman strengi sín í fyrsta sinn allir þrír og eru komnir til Bretlands tif tónleikahalds. Little Richard er unglingurinn í hópnum, aðeins 62 ára en hinir eru 67 og 68 ára gamlir. Björk í sauma- skapinn! í síðustu viku sögðum við frá mjög sérstakri tískusýningu og uppboði sem Brian Eno stendur fyrir á næstunni til aðstoðar bosnískum bömum. Eno hefur fengið urmul frægra poppara til að hann og sauma fot sem fyrst verða sýnd og síðan boðin upp. Meðal þeirra sem sestir eru við saumavélina að beiðni Enons eru David Bowie, Phil Collins, Lou Reed, Pete Townshend, Iggy Pop, Michael Stipe, Dave Stewart, Pet- er Gabriel og Dolores O’Riordan. Og nú hafa fréttir borist af því að Björk Guðmundsdóttir sé líka sest við saumaskapinn ásamt þeim Adam Clayton og Luciano Pavarotti! i I BOÐI é Á BYLGJUNNI í DAG KL. 16.00 £f K * M' VI yy w t j|^ xsd ð © 0 \P © 11. £Y 1)5 1 1 I 119 ÞESSI VIKA SlÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKURÁ LISTANUM 1 41 fr wl JE. ' • 4. VIKANR. 7- 1 1 13 4 ARMY OF ME BJÖRK G> 3 3 6 HAVE YOU EVER REALLY LOVED A WOMAN BRYAN ADAMS 3 2 1 7 SELF ESTEEM OFFSPRING Q 8 25 3 LAY LADY LAY DURAN DURAN | - NÝTTÁ LISTA - Cs) 1 LIVING NEXT DOOR TO ALICE GOMBIE CS) 7 18 5 CAN'T STOP MY HEART FROM LOVING YOU AARON NEVILLE Q) 18 30 3 HOLDING ON TO YOU TERENCE TRENT D'ARBY Cs) 9 _ 2 ÉG ELSKA ALLA STJÓRNIN 9 4 6 4 SAVE IT 'TIL THE MOURNING AFTER SHUT UP AND DANCE CTo) 19 20 4 BABY BABY CORONA 1 11 5 2 7 THE BOMB! (THESE SOUNDS FALL IN TO MY MIND) BUCKETHEADS - HÁSTÖKK VIKUNNAR - <S> 30 - 2 VOR í VAGLASKÓGI SIXTIES 14 - 2 SOME MIGHT SAY OASIS CÍ4) 16 - 2 BE MY LOVER LA BOUCHE (15) 17 19 3 SKY HIGH NEWTON 16 11 8 10 OVER MY SHOULDER MIKE 81THE MECHANICS 17 6 7 6 FOR WHAT IT’S WORTH HEIÐRÚN ANNA (5) 23 - 2 ÉG SÉ UÓSIÐ BUBBI OG RÚNAR 19 10 4 8 1 YOU, WE JET BLACK JOE (S) 24 - 2 DON'T WANT TO FORGIVE WET WET WET 21 13 9 9 BACK FOR GOOD TAKETHAT (22) 25 27 3 U SURE DO STRIKE 23 12 5 8 TURN ON, TUNE IN, COP OUT FREAK POWER (24) 28 - 2 LIGHTNING CRASHES LIVE (25) rmi 1 LETHER CRY HOOTIE & THE BLOWFISH 26 15 10 7 DON'T GIVE ME YOUR LOVE ALEX PARTY 27 21 11 8 LOOK WHAT LOVE HAS DONE . PATTY SMYTH (S> 33 40 3 THIS WAY TO HAPPINESS GLEN FREY (29) 31 - 2 1 WANNA BE FREE (TO BE WITH HIM) SCARLET 30 20 12 6 GIMME LITTLE SIGN DANIELLE BRISEBOIS Gi) 1 MADE IN ENGLAND ELTON JOHN (32) NÝ TT 1 l'LL BE AROUND RAPPIN '4 TAY (5) NÝ TT 1 KEY TO MY LIFE BOYZONE 38 38 3 BEST IN ME LET LOOSE 35 22 15 8 WAKE UP BOO BOO RADLEY’S di) LUál 1 EVERYDAY LIKE SUNDAY PRETENDERS (37) NÝTT 1 FEEL MY LOVE TEN SHARP NÝTT 1 (24-7-365) l'M GONNA LOVE YOU CHARLES & EDDIE 40 n 2 RIDING ALONE REDNEX NÝTT 1 SOMEONE TO LOVE JON B. & BABYFACE Kynnir: Jón Axel Ólafsson Islenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn erniöurstaða skoðanakönnunarsem erframkvæmd af markaðsdeild DVi hverri viku. Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400. á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið af spilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 16.00 sama dag. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn tekur þátt i vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard. ;989 /waaoou GOTT ÚTVARP! Yfirumsjón meö skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman og Jóhann Garðar ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel ólafsson Hróarskeld- an klár Allt er nú klappað og klárt fyr- ir Hróarskelduhátíðina víðfrægu sem haldin er í Roskilde í Dan- mörku á hverju sumri. Hátíðin hefst 29. júní næstkomandi og stendur ffam til 2. júlí. Aragrúi heimsþekktra hljómsveita og tónlistarmanna kemur fram á há- tíðinni og helstu skrautfjaðrim- ar að þessu sinni eru Bob Dylan, R.E.M., Jimmy Page & Robert Plant, The Cure, Elvis Costello, Oasis, Cranberries, Offspring, Suede, Van Halen og Soul Asyl- um. Engin ættarmót hjá Elton Ekki verður sagt að Elton John sé ættrækinn maður né láti hann eitthvað af hendi rakna tfl ætt- ingja sinna. Þannig býr nú hálf- bróðir hans Geoff Dwight í hálf- gerðum hundakofa vegna þess að hann hefur ekki efni á að búa bet- ur. Geoff er einum 20 árum yngri en Reginald eins og Elton heitir réttu nafni og segist hæstánægð- ur með að búa þröngt. Hann hef- ur ekki heyrt eða séð bróður sinn í 11 ár og var vísað frá af örygg- isvörðum þegar hann bankaði uppá hjá honum á dögunum. Paula hreppti hnossið Nú er ljóst að það er Paula Yates sem fer með sigur af hólmi í glímunni um Michael Hutchence söngvara INXS sem ku feikneftirsóttur karlpeningur. Hutchence var áður í tygjum við dönsku fyrirsætuna Helenu Christensen en viðtal sem Paula tók við hann í rúminu virðist hafa ruglað hann og hana gjör- samlega í ríminu eða rúminu. Bob Geldof fyrrum eiginmaður Paulu situr nú eftir með sárt enn- ið og sama er að segja um Hel- enu. Paula og Michael eru hins vegar lukkunnar pamfllar og þá sérstaklega Paula sem hefur lát- ið þau orð falla að Michael sé guðs gjöf tfl kvenna! Plötufréttir Urge OverkOl hefúr lokið upp- tökum á nýrri plötu sem mun bera naöiið Exit The Dragon og vera tOeinkuð minningu kung-fu mannsins knáa Bruce Lee... Morrissey vinnur af kappi og er búinn að taka upp nýja plötu í samvinnu við upptökustjórann Steve Lilliwhite. Gripurinn heit- ir Soutpaw Grammar og kemur út í júlí eða ágúst...David Bowie er meö tvær plötur í vinnslu hvorki meira né minna. Önnur platan heitir Outside og kemur út í haust en hin heitir Inside og er óráðið hvenær hún kemur út. Upptökustjóri á báðum plötunum er Brian Eno... -SþS-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.