Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1995
41
Trimm
Guðmundur R. Ingvason:
Gaf sjálfum sér mara-
„Þetta var algjörlega ógleymanleg
og frábær lífsreynsla sem ég mun lifa
á það sem eftir er. Þetta heppnaðist
stórkostlega.“
Guðmundur R. Ingvason varð
flmmtugur 21. maí síöastliðinn. Guð-
mundur gaf sjálfum sér þá óvenju-
legu afmælisgjöf að hann og tveir
félagar hans úr hlaupahópnum Bláu
könnunni í Hafnarfirði hlupu heilt
maraþon eldsnemma um morgun-
inn.
„Málið á sér nokkra forsögu," sagði
Guðmundur í samtali við Trimmsíð-
una. Forsagan er sú að Guðmundur
gekkst í ársbyrjun 1993 undir skurð-
aðgerð á brjóstholi í kjölfar lang-
vinnra veikinda.
„Ég var algjör aumingi eftir þetta.
Tíu metra brekka vafðist fyrir mér
því ég var alveg þreklaus."
En Guðmundur hafði stundað sund
í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði og oft
veitt athygh glaðbeittum skokkhópi
sem þar gantaðist í heitu pottunum
og langaði til þess að slást í hópinn.
„Ég sagði svo í bríaríi við lækninn
sem skar mig upp að ég væri að
hugsa um að byrja aö skokka með
vorinu. Hann sagði að það yrði allt
í lagi og hvatti mig bara til að fara
rólega í byrjun. Ég gaf honum þá það
heit að ef mér tækist að byrja myndi
ég einhvern tíma á árinu 1993 fara
10 kílómetra, hálft maraþon árið 1994
og svo heilt maraþon 1995 þegar ég
yrði fimmtugur."
Guðmundur ráðfærði sig svo við
félaga í Bláu könnunni og byrjaði
vorið 1993 á því að skokka rúma sex
km. Kvöldið eftir fór hann í langa
gönguferð og svo næsta kvöld aftur
út að hlaupa og nú rúma átta kíló-
metra.
„Eftir þetta var ég alveg eins og
ræfill í nokkra sólarhringa enda á
lélegum skóm. Svo gaf eiginkonan
mér nýja hlaupaskó og ég fór í
Krabbameinshlaupið í júníbyrjun og
varð mér til algjörrar skammar þar
og sprakk eftir tvo kílómetra."
Guðmundur lét þó ekki deigan síga
heldur stóð við heitið sem hann gaf
og aftur að Suðurbæjarlaug og þann-
ig tvo hringi. Drykkjarstöð á hjólum
fylgdi hlaupurunum eftir alla leiðina
og brynnti þeim eftir þörfum, hirti
fatnað sem þeir losuðu sig við og
veitti ýmsa þjónustu. Þeir þrír félag-
ar, Guðmundur, Sveinn og Erlendur,
voru þeir einu sem luku hlaupinu
en aðrir þátttakendur komu og fóru
eftir hentugleikum. Gísli Ásgeirsson
hljóp 35 km, Bryndís Svavarsd. 30
km, Hjalti Gunnarsson 21 km. Ýmsir
venslamenn og afkomendur Guð-
mundar skokkuðu allt frá 400 metr-
um upp í 11 kílómetra afmælisbarn-
inu til samlætis. Árangur þeirra sem
luku var mjög góður. Guðmundur
og Sveinn fóru vegalengdina á 3:43
en Erlendur á 4:02. Þess má geta að
þessi tími hefði skilað Guðmundi í
mark fyrstum íslendinga í flokki
karla 50 ára og eldri í Reykjavíkur-
maraþoni 1994.
Þegar afmælisbarnið og félagar
hans komu í mark við Suðurbæjar-
laug urðu mikil fagnaðarlæti. Fjöl-
skylda Guðmundar, vinir og boðs-
gestir úðuðu kampavíni yfir hlaup-
arana, hylltu þá með húrrahrópum
og afhentu þeim sérstaka verðlauna-
peninga í tilefni dagsins. Síðan var
slegið upp herlegri veislu með drykk
í heita pottinum í Suðurbæjarlaug
og stóð hún fram undir hádegi að
viðstöddu fjölmenni. Seinnihluta
dagsins var svo afmæhsveisla á
þurru landi þar sem var sungið og
trallað og talað um hlaup í það óend-
anlega.
„Þetta var algjörlega frábært og
þeir félagar voru yndislegir hlaupa-
félagar. Hlaupaleiðin er frábærlega
falleg þar sem náttúran iðar af lifi
og fjallahringurinn blæs manni orku
í brjóst. Þetta var óskaplega
skemmtilegur dagur.“
Guðmundur segist ekki hafa skap-
gerð til að hlaupa í keppni og ætlar
ekki í Reykjavíkurmaraþonið í sum-
ar.
„Þetta var mitt maraþon og er nóg
fyrir mig.“
Klukkan sex við Suðurbæjarlaug í upphafi hlaups. Frá vinstri: Erlendur Sveinsson, Sveinn Baldursson, Gísli Ás-
geirsson og Guðmundur R. Ingvason.
lækninum og náði því að hlaupa 10
kílómetra þetta sumar og með dygg-
um stuðningi félaganna í Bláu könn-
unni var hálft maraþon farið ahs
fjórum sinnum sumariö 1994.
Það var svo um síðustu áramót að
stefnan var sett á heilt maraþon á
sjálfum afmæhsdeginum þegar Guð-
mundur yrði fimmtugur.
„Bryndís Svavarsdóttir ofurskokk-
ari, sem er félagi í hópnum, gaf mér
svo 20 vikna hlaupaáætlun miðaða
við heht maraþon upp úr einhverju
blaði eftir áramótin og viö stilltum
því plani upp og hlupum í stórum
dráttum eftir því.“
Guðmundui- sýnir mér stoltur ná-
kvæmt bókhald sem haldið var um
æfmgarnar þar sem tíundað er vega-
lengd, tími, veöurfar og hðan hlaup-
ara. Janúar var 122 km, febrúar 148,4
km, mars 224, apríl 320 og 190 km
Umsjón
Páll Ásgeir Ásgeirsson
fram til 20 maí. Ahs eru þetta 1.005
kílómetrar. í athugasemdum gefur
aö hta frasa eins og: „Blautur og
gegnblautur," eða „Þungur, stiröur,
seinn og lengi.“
Það voru þeir Sveinn Baldursson
og Erlendur Sveinsson, félagar Guð-
mundar í Bláu könnunni, sem æfðu
með honum ahan tímann og þeir fé-
lagarnir luku hlaupinu með honum
á afmæhsdaginn. Þeir félagarnir eru
á líkum aldri þó Guðmundur sé elst-
ur og voru allir að fara heht maraþon
í fyrsta skipti
„Ég vhdi svo gera þetta afmælis-
hlaup þannig að ég myndi eftir því
alla ævi. Þegar ég verð sestur á
Hrafnistu þá mun ég taka þetta fram
á hverjum degi og lesa yfir koUegun-
um. Þetta er algjörlega ógleymanleg-
ur tími. Við slepptum aldrei úr æf-
ingum vegna veðurs og ég hélt einu
sinni að við yrðum úti á Álftanes-
inu.“
Afmælishringurinn var nákvæm-
lega mældur 21,1 km og lá frá Suður-
bæjarlaug um Setberg, Flatahraun
og Álftanes og til baka um Garðaholt
þon í afmælisgjöf
Reykjavíkurmaraþon 20. ágúst:
Hlaupaáætlanir í 13 vikur
-10 km, hálfmaraþon og maraþon
Æfingaáætlanir fyrir þrjár mismun-
andi vegalengdir í Reykjavíkurmara-
þoni munu hefjast í dag og munu birt-
ast næstu 13 laugardaga. Þeir sem
hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoni
hlaupa 4-5 sinnum í viku í sumar en
þeir sem hlaupa hálft maraþon eða
heht maraþon hlaupa 5-6 sinnum í
viku. Einu sinni í viku verður hraða-
leikur (fartlek) en þá á að hlaupa ró-
lega og hratt th skiptis. Ég kem th
með að fjalla hthlega um ýmsa þætti
er tengjast hlaupum eins og verið
hefur undanfarin sumur í æfingaá-
ætlunum þessum.
Almenningshlaup eru mjög vinsæl
og eru fjölmörg yfir sumarið. Við
komum til með að setja þau inn í
áætlanirnar þar sem því verður við
VOLVO
850
Styrktaraðili Rey
1. vika 27/5-3/6
10km 21 km 42 km
Sunnudagur 6 km ról. 10km ról. 18 km ról.
Mánudagur Hvíld Hvíld Hvíld
Þriðjudagur 6km (hraðaleikur) 8km (hraðaleikur) 8km (hraðaleikur)
Fyrst 2 km ról. og síðan Fyrst 2 km ról. og síðan Fyrst 2 km ról. og síðan
2 km með stuttum sprettum 4 km með stuttum sprettum 4 km með stuttum sprettum
ög joggi á milli. ogjoggiámilli. ogjoggiámilli.
Síðan 2 km ról. í lokin. Síðan 2 km ról. í lokin Síðan2kmilokin.
Miðvikudagur 5km 7 km ról. 12km ról.
Fimmtudagur Hvíld 6 km ról. 8 km ról.
Föstudagur 3 km jafnt 4 km ról. 6 km ról.
Laugardagur Krabbameinshlaupið Krabbameinshlaupið Krabbameinshlaupið
4km 10km 10km
Samt: 24 km 45 km 62 km
komið í sumar.
Ég geri ráð fyrir að þeir sem ætla
sér í maraþon hafi verið að hlaupa
undanfarin ár og hafi þar af leiðandi
einhvern grunn th að byggja á.
Hafið hugfast að góö ástundun skh-
ar árangri! Jakob Bragi Hannesson.
er styrktaraðili
Reykjavíkurmaraþonsins
0M fluglæidirJS Lffi
W asics^