Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1995
55
Leikstjórinn ásamt leikurum.
Sumartryllir í
Kaffileikhúsinu
Nú er sumar gengiö í garð, að minnsta kosti sam-
kvæmt almanakinu, og starfsfólk atvinnuleikhúsanna
er um það bil að fara í frí.
En þaö er ekki þar með sagt að enginn vilji fara í
leikhús á ljúfum sumarkvöldum, og reyndar er allt
útlit fyrir að leikhúsgestir muni hafa úr ýmsu að
moöa á næstunni.
Kafíileikhúsið frumsýndi sitt framlag til sumarvert-
íöar, Herbergi Veroniku, á fimmtudagskvöldiö, og þar
á bæ er alls ekki ætlunin að leggja árar í bát þó að
bjart sé úti.
Leikritið er lipurlega skrifaður sálfræðitryllir með
óvæntum vendingum. Höfundurinn, Ira Levin, kann
að koma íléttunni haganlega fyrir þannig aö atburða-
rásin kemur áhorfandanum hvað eftir annað í opna
skjöldu (vonandi). Þýðing Ingunnar Ásdísardóttur er
áheyrileg og þjál, þó að eðli málsins samkvæmt sé
ekki hægt að koma til skila öllum þeim tilbrigðum í
málfari persóna sem enski textinn felur í sér.
Susan er í háskólanámi á hippatímanum þegar hún
kynnist strák sem henni líst vel á og þaö virðist gagn-
kvæmt. Þau hitta elskuleg eldri hjón, sem staðhæfa
að hún sé hreint ótrúlega lík annarri stúlku, Veroniku
nokkurri. Þau segja reyndar aö Veroriika hafi dáið
fyrir mörgum árum, en engu að síður biðja þau Susan
að gera sér smágreiða.
Það má náttúrlega alls ekki segja meira um efni
verksins því að slíkt mundi spilla ánægju þeirra sem
koma til með að sjá sýninguna.
Þórunn Sigurðardóttir, leikstjóri, og aðstoðarfólk
hennar nýta plássið í Kafíileikhúsinu á nýjan hátt og
eins og venjulega á þeim bæ er allur ytri búnaður og
„leikhústilfæringar“ í lágmarki.
Engu aö síður næst upp ágætasta stemning, húsbún-
aður og smáhlutir færa tíma verksins að hluta aftur
til fjórða áratugarins og einfóld lýsingatrikk nægja
alveg til að undirstrika andrúmsloftið.
Við þessar aðstæður er það auðvitað túlkun leikend-
anna, sem skiptir höfuðmáli, og með þeim stendur og
fellur sýningin. Þóra Friðriksdóttir og Rúrik Haralds-
son veita verkinu kjölfestu með öruggri og kunnáttu-
samlegri túlkun og nýútskrifaðir leikarar, Ragnhildur
Rúriksdóttir og Gunnlaugur Helgason, njóta góös af.
Reyndar náði sýningin ekki almennilegu flugi í byij-
un, leikendurnir voru einhvern veginn ekki alveg
sannfærðir í fyrsta atriðinu og hreyfingin í sýning-
unni var svolítiö stirðleg. En þetta rann af þeim von
Leiklist
Auður Eydal
bráðar og leikur kattarins að músinni hófst með allri
þeirri geggjun sem svona trylli tilheyra.
Rúrik var snilldarlegur í hlutverki eiginmannsins
og lék þar á marga strengi, svo ekki sé meira sagt.
Þóra náði líka sérstaklega vel að sýna persónuklofn-
inginn og þá einkum eftir að „frúin“ sýnir sitt rétta
andlit. Hún ríkir eins og drottning yfir hirðmönnum
sínum og getur látið þá dansa að vild í þeirri myrkra-
veröld sem hún hefur skapað.
Þaö er alltaf gaman að kynnast nýjum leikurum og
þau Ragnhildur og Gunnlaugur tóku líka vel við sér
eftir þvingaða byrjun. Þau fundu sig bæði miklu betur
í seinni hlutanum, þegar ógnin blasir við, og samleik-
ur leikaranna fjögurra var mjög góður í atriðinu þar
sem spennan nær hámarki. Ragnhildur sýndi góð til-
þrif í þessu hlutverki sem gerir töluverðar kröfur til
leikarans og verður spennandi að fylgjast með henni
í framtíðinni.
Sem sagt. Ágæt sýning í afslöppuðu andrúmslofti
Kafíileikhússins, þar sem gestir geta notið huggulegra
veitinga úr eldhúsinu og síðan fengið Herbergi Verón-
iku í desert.
Katfileikhúsið sýnir í Hlaðvarpanum:
Herbergi VeronikU
Höfundur: Ira Levin
Þýðing: Ingunn Ásdisardóttir
Leikstjóri: Þórunn Sigurðardóttir
______________Meiming
Söngurinn ómar hjá
Karlakórnum Jökli
Sigursteinn Melsted, DV, Breiödalsvík:
Nú eru farfuglamir að koma, loftið
ómar af fuglasöng og 1. maí fengum
við í heimsókn Karlakórinn Jökul í
Austur-Skaftafellssýslu.
Hann hélt tónleika í grunnskólan-
um og söng sig inn í hjörtu Breiðdæl-
inga og nágranna.
Söngskráin var fjölbreytt, bæði
innlend og erlend lög.
Stjórnandi var Jóhann Morávek
undirleikari Guölaug Hestnes og ein-
söngvarar voru Friðrik Snorrason
Erlingur Arason og Heimir Heiðars-
son. Húsfyllir var og þurfti kórinn
aö syngja mörg aukalög.
Karlakórinn Jökuii hélt tónleika á Breiðdalsvik.
DV-mynd Sigursteinn Melsted
Reykhyltingar, útskrifaðir
1964 og 1965
ásamt starfsfólki. Munið nemendamótið 24. júní nk.
Hafið samband við Addý s. 94-3197, Ásu s. 94-3821
eða Valda s. 93-51165.
Utskriftarmen
14 k gullhálsmen með perlu
Fallegur skartgripur í útskriftina
Verð kr. 4.900 án festar.
Laugavegi 49, sími 561 7740
Leikfélagar á Vopnaíirði frumsýndu nýlega spennuleikritið Með lífið í lúkun-
um eftir Bandaríkjamanninn Ira Levin. Leikstjóri er Aldís Baldvinsdóttir og
hlutverk í leiknum fimm. Myndin sýnir leikarana og leikstjórann bregða á
leik. DV-myndir Ari Hallgrímsson
Keppnin hefst
kl. 14.00 á brautinni
við Krísuvíkurveg.
Aógangseyrir
kr. 500 fyrir fullorðna,
fritt fyrir börn
12 ára og yngri.
RALLY
Sunnudaginn 28. maí
1. keppni sumarsins