Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1995
13
Verkfallsnemendur í samræmdu prófunum:
Höftim unnið
námsefnið vel upp
- segja unglingar í Hlíðaskóla
Nemendur í tíunda bekk grunn-
skólans eru um þessar mundir í
miðjum samræmdu prófum en þau
eru mánuði seinna á ferð vegna sex
vikna verkfalls kennara í vetur.
Margir þessara nemenda urðu fyrir
barðinu á verkfallinu því erfitt var
að taka upp þráöinn þar sem frá var
horfið. Þó hafa kennarar reynt að
vinna upp tapið með nemendunum
og aukið við kennslustundir þeirra.
Margir skólar hafa auk þess sleppt
upplestrarfríum og eru nemendur
þá í skólanum jafnframt prófunum.
Um tíma var talið að samræmdu
prófunum yrði sleppt og skólapróf
tekin í staðinn en síðan tók mennta-
málaráðuneytið ákvörðun um að
prófunum yröi seinkað um einn
mánuð. Nemendur fá hins vegar ekki
einkunnir sínar fyrr en 23. júní eða
mánuði seinna en venjulega.
Samræmdu prófm eru íslenska,
stærðfræði, enska og danska. Helg-
arblaðið náði tali af nokkrum nem-
endum Hlíðaskóla þegar þau komu
út úr fyrsta prófi sínu, dönsku, á
miðvikudag.
Gunnar Þór
Hallgrímsson
„Mér fannst prófið frekar létt mið-
að við gamalt samræmt próf sem við
höfðum tekið áður. Ég býst við að
það hafi verið tekið tillit til þess að
við lentum í þessu verkfalli. Mér
tókst að ljúka prófinu áður en tíminn
var útrunninn en notaði síðan tím-
ann til að fara vel yfir. Ég er þokka-
lega ánægður miðað við hversu htíð
ég undirbjó mig. Að vísu höfum við
farið nyög vel yfir í tímum og erum
með góðan dönskukennara, Eddu
Snorradóttur. í rauninni hefur ekk-
ert fag komist eins vel í gang eftir
verkfallið og danskan. Þetta var því
örugglega léttasta prófið. Á fostudag
verður stærðfræði hjá okkur. Versta
prófið, og sem ég kvíði mest fyrir, er
á mánudag en það er íslenskan. Það
er erfiðasta prófið og við höfum ekki
náð að fara almennilega yfir efnið.
Maður verður aö nota helgina vel til
að lesa bókmenntir og þá sérstaklega
Gísla sögu Súrssonar. Mér finnst
ekki óréttlátt aö við tökum sam-
ræmdu prófin en það þarf að taka
tillit til þess að við misstum úr námi
og maður var lengi að komast í gang
aftur."
Guðrún Gísladóttir
„Mér gekk sæmilega 1 prófinu.
Fannst það þó frekar erfitt. Við vor-
um búin að fá nokkra aukatíma í
dönsku og það hýálpaði. Hins vegar
fannst mér erfitt að hlusta á dönsk-
una, ég heyrði ekki nógu vel hvað
sagt var. Annars er ég ágætlega
ánægð með þetta. Ég kvíði hins vegar
fyrir stærðfræðiprófinu á fóstudag.
Ætli ég notí ekki uppstígningardag
til að læra allar reglur. Mér fmnst í
lagi að hafa samræmdu prófin en var
sagt að þau hefðu verið búin til fyrir
verkfall þannig að það var ekki tekið
tillit til þess að við misstum úr námi.“
Hulda Eggertsdóttir
„Mér gekk ágætlega. Þetta var ekk-
ert erfitt en ég klúðraði aðeins í
hlustuninni. Ég held að verkfallið
hafi ekki skipt öllu máli þegar upp
er staðið og ég er alveg sátt við að
taka samræmdu prófin. Það hefur
þó örugglega ekkert verið tekið tíllit
til verkfallsins þegar prófin voru
búin til. Ég kvíði ekkert þessum próf-
Hulda Eggertsdóttlr.
Gunnar Þór Hallgrimsson.
Guórún Gisladóttir.
Jóhanna Ella Jónsdóttir.
DV-mynd Brynjar Gauti
um enda erum við með mjög góða
kennara hér í Hlíðaskóla auk þess
finnst mér dönskuprófið hafa verið
léttara en í fyrra.“
Jóhanna Ella
Jónsdóttir
„Mér leist ágætlega á þetta próf en
það var þó heldur þyngra en ég átti
von á. Samt gekk mér mjög vel. Eg
er ekki viss um að verkfalliö geri
okkur erfiðara fyrir þar sem við höf-
um unnið mikið upp. Mér sýnist að
þetta próf sé mjög svipað og það sem
var í fyrra. Mér fannst hlustunin létt.
Ég er sátt við þetta og vonast til að
fá á milli sjö og níu í einkunn. Stærð-
fræðin og íslenskan verða örugglega
erfiðari próf. Maður veröur að nota
tímann vel til að læra.“
Landsins mesta úrval
af keramikvörum
íslensk
framleiðsla
Gjafavara í úrvali
Listasmiðjan
Dalshraun 1 - hfafnarfírði - Sími 652105 - Fax 53170
í Rnnglunni eru yfíi 65
dfbeltuverslunuin landsins
undir sama |i,iki
brúðkaups - vöggu - alinælis - útskriflargjaQi'
MUNIÐ GJAFAKORTIN
þau fást tByggt og Búið
1995 bæklingurimi er kominn út!
Fæst hjá okkur og á flestum bensínstöðvum.
Ferðaþjónusta bænda, Bændahöllinni v/Hagatorg, 107 Reykjavík, sími 562-3640/42/43.