Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1995
5
Fréttir
Evrópusamtökin:
Félagar
úröllum
stjórnmála-
flokkum
„Evrópuumræðan á íslandi er
ennþá svo frumstæð að menn
hafa beinlínis lent í vandræðum
fyrir að ljá máls á stuðningi við
samtökin og ég ætla ekki að auka
þau vandræði. Hins vegar hlýtur
að vera kominn tími til að for-
ystumenn allra flokka gefi út
skýra afstöðu um að flokksmönn-
um þeirra sé heimilt að hafa þá
skoðun að ísland eigi að sækja
um aðild að Evrópusambandinu.
Þessa skoðun er að fmna í öllum
flokkum en margir eru hræddir
við að opinbera hana vegna
þrýstings frá flokksfélögum sín-
um,“ segir Ólafur Þ. Stephensen,
stjórnarmaður í nýstofnuðum
Evrópusamtökum
Á annað hundrað manns mætti
á stofnfund Evrópusamtakanna,
þar á meðal þekkt andlit úr öllum
stjórnmálaflokkum. Að sögn Ól-
afs var nokkuð um að fólk þyrði
ekki að mæta á fundinn vegna
andstöðu flokksfélaga við ESB-
aðild. Aðspurður vildi Ólafur
ekki nafngreina þessa einstakl-
inga.
I stjórn voru kjörin þau Ágúst
Þór Ámason, Drífa Hrönn Krist-
jánsdóttir, Davíð Stefánsson, Jón
Þór Sturluson, ÓlafurÞ. Stephen-
sen, Sigríður B. Guðjónsdóttir og
Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Varamenn voru kjörnir Friðrik
Jónsson, Magnús M. Nordal og
Margrét S. Björnsdóttir.
Að auki vom kjörið í 20 manna
fulltrúaráð. í því eiga meðal ann-
ars sæti þau Markús Örn Antons-
son, Ragnhildur Helgadóttir,
Guðni Guðmundsson, Auður
Styrkársdóttir, Gylfi Þ. Gíslason,
Pétur J. Eiríksson, Valgerður
Bjarnadóttir, Jónas H. Haralz,
Sveinn Hannesson, Ellen Ingva-
dóttir, Jón Baldvin Hannibals-
son, Inga Dóra Sigfúsdóttir, Aðal-
heiður Sigursveinsdóttir, Sigríð-
ur Ingibjörg Ingadóttir, Sigurður
E. Guðmundsson og Ása Ric-
hardsdótir. -kaa
RÁÐNINGARÞJÓNUSTAN
hefur tekið til starfa
í boði er:
Þjónusta til einstaklinga og fyrirtækja
Ráðgjöf í starfsmannahaldi og skipulagningu á rekstri
Kappkostað er að veita trausta, örugga og fljóta þjónustu
Ráðningarþjónustan er opin virka daga frá kl. 9-17.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTAN
Jón Baldvinsson
Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavik
Sími 588 3309 Fax 588 3659
Klofinn Hæstiréttur dæmir:
Dómaraf ulltrúar líka
óhæfir í einkamálum
Hæstiréttur felldi á miðvikudag úr
gildi dóm dómarafulltrúa við Hér-
aðsdóm Reykjavíkur í einkamáli frá
því í febrúar á síðasta ári og vísaði
málinu heim í hérað til nýrrar dóms-
meðferðar og dómsálagningar. Fyrir
viku felldi Hæstiréttur sams konar
dóm í opinberu máli.
í dómi Hæstaréttar nú líkt og fyrir
viku segir ,,„að staða dómarafull-
trúa, eins og henni er nú fyrir kom-
ið, uppfylli ekki grunnreglur stjórn-
arskrár um sjálfstæði dómsvaldsins,
...“. Gildir það jafnt um einkamál
sem opinber mái. Ber því að fella
hinn áfrýjaða dóm úr gildi."
Athygli vekur að áfrýjandi krafðist
ekki ómerkingar dómsins heldur
sýknu. Til þessa tók minnihluti rétt-
arins tillit en hæstaréttardómararnir
Hrafn Bragason og Hjörtur Torfason
skiluðu samhljóma sératkvæði.
Segja þeir að framkvæmdavaldið
hafl hvergi komið við sögu í þessu
máli þar sem um einkamál hafl verið
að ræða. í málinu hafi ekki verið
sýnt fram á ákveðin atvik eða að-
stæður sem fallnar væru til að draga
í efa óhlutdrægni dómarafulltrúans
í deilu aðila.
Loks segja þeir að brestur á al-
mennum dómaraskilyrðum þurfi
ekki endilega að fylgja ógildi dómsat-
hafnar. í þessu tilviki hafi dómara-
fulltrúinn haft löggildingu dóms-
málaráðherra til framkvæmdar
dómstarfa. Hann hafi ekki getað
skorast undan meðferð málsins þrátt
fyrir að hann væri sammála ofan-
nefndum skilyrðum. „Að þessu at-
huguðu þykir ekki næg ástæða til að
ómerkja dóm í málinu án kröfu og
vísa því til nýrrar meðferðar í hér-
aði,“segirísératkvæðinu. -pp
Jeppadagur
í dag kl. 10-16
Fjöldi breyttra jeppa verður sýndur ásamt jeppabreytingahlutum
Toyota Tacoma
m.a.
Nissan Patrol
Breyttir og betri bílar frá
Vagnhöfða 23
Vagnhöfða 23, s. 587-0-587
Patrol á 35” BF Goodrich dekkjum, nýir
brettakantar.
Nissan Terrano II
Terrano II á 33” BF Goodrich dekkjum.
Ford Econoline
Dodge Ram V-10
Grand Cherokee Orvis
Nýr á 31” BF Goodrich dekkjum.
BFCoodrich
mm^mmmamammmmmi^mmmmmmDekk
GÆDI Á GÓÐU VERDI
Léttar veitingar
Dodge Ram pickup á 44” DicJ<
Cepek dekkjum.
Econoline ‘95 á 44” Dick Cepek dekkjum
m/öllu.
Bíll slysavarnadeildar Tryggva
Gunnarssonar, Selfossi.
Nýtt útlit,
Toyota Tacoma, 190 hö.,
algjörlega nýr.
Til sýnis í fyrsta skipti á íslandi.
Verð frá kr. 1.790.000 án vsk.
Ný gormafjöðrun að
framan.
Grand Cherokee