Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Side 21
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1995 21 Reykingamenn tapa í forræðismálum Reykingar fyrrverandi maka eru nú orönar aö vopni í forræðisdeilum í Bandaríkjunum. Samkvæmt frá- sögn breska blaðsins Daily Express hafa þegar um þrír tugir aðila í Bandaríkjunum tapað í forræðisdeil- um vegna reykinga. Peggy Unger, sem er tveggja barna móðir í New Jersey, hefur fengið þann úrskurð hjá dómurum að hún megi hafa syni sína tvo, tólf og sjö ára, hjá sér svo framarlega sem hún reyki ekki. Peggy er þeirrar skoðun- ar að fyrrverandi eiginmaður hennar sé að reyna að hefna sín. „Reykingar voru ekkert vandamál þegar við gift- um okkur, hann gaf mér kveikjara og sígarettuhylki og á veitingastöð- um og í flugvélum sátúm við alltaf þeim megin sem reykingar voru leyfðar. Núna notar fyrrverandi eig- inmaður minn þetta gegn mér til þess að fá forræði yfir sonum okk- ar,“ segir Peggy í blaðaviðtali. Dómarar telja sig vera að taka tillit til þess sem er börnunum fyrir bestu. Ef Peggy Unger reykir á hún það á hættu að synir hennar verði teknir frá henni. í nýlegum þætti bresku sjónvarps- stöðvarinnar BBC um heilbrigðismál var vitnað í bandaríska skýrslu frá 1993 sem sýnir aö 200 þúsund börn í Bandaríkjunum undir 18 mánaða aldri fá lungnabólgu eða bronkítis vegna óbeinna reykinga. í sömu skýrslu kemur fram að ástand einnar Stephen Masone með Elysu dóttur sinni sem hann fékk forræði yfir vegna reykinga móður hennar. milljónar barna með asma versni vegna óbeinna reykinga. í skýrsl ' unni er þess jafnframt getið að á hverju ári látist um þrjú þúsund manns úr lungnakrabba vegna óbeinna reykinga. Einn þeirra sem borið hefur sigur úr býtum í forræðisdeilu vegna reyk- inga fyrrverandi maka er Stephen Masone. Hann sýndi fram á það fyrir rétti að það að konan hans fyrrver- andi reykti 40 sígarettur á dag gerði það að verkum að lungnastarfsemi dóttur hans, sem er með asma, skert- ist um helming. Hann gat sannað að nikótínmagnið í líkama dótturinnar samsvaraði því að hún hefði sjálf reykt átta sígarettur á dag. Móðirin, sem er hjúkrunarkona, reykir enn en hún má ekki gera það í návist dóttur sinnar. Dótturina fær hún ein- ungis að hitta um helgar. í Bretlandi er einnig verið að herða ólina gegn reykingamönnum. Þar eiga reykingamenn á hættu að fá neitun þegar þeir sækja um að fá að ættleiða barn. Þegar um er að ræöa ættleiðingu barna undir tveggja ára aldri eru foreldrar sem ekki reykja teknir fram yfir hina. FRAM - ÍBV laugardaginn 27. maí Leikurinn hefst kl. 14 á Laugardalsvelli Vestmannaeyingar stuðningsmenn Hist verður á Glaumbar kl. 12. Rútuferð á leikinn kl. 13.20 og til baka að leik loknum. Mætum öll og styðjum okkar menn til sigurs! Á tn'nt i tjí3r icJi Lágmúla 7 ATVR (Átthagafélag Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu) ® BURÐARBOGAR BURÐARFESTINGAR FARANGURSGRINDUR 7 FARANGURSBOX SKÍÐABOGAR BÖGGLABÖND~T“lS ■ STREKKIÓLAR/f^^ LÁSAR /iffilr ÖRYGGIS- gllp U FESTINGAR K Festingar fyrir farangur af öllum gerðum, t.d. reiðhjól, seglbretti s___ eða bara g, ferðatöskur og poka. imEMTO TUHAMJ5 Burðarbogar og festingar fyrir allar gerðir bíla Mjög einfalt en öruggt kerfi. Bogar, festingar, grindur og allir aukahlutir seldir hver í sínu lagi. Auðvelt að breyta og bæta við eftir því sem þörf er. • 1 r* Farangursbox. & Mjög hentug allt árið. _ Fyrir skíðin á veturna , eða í útileguna og k veiðiferðina á sumrin. Einfaldur, þægilegur og hreinlegur , ,....., :.- kostur. ÆLmmm Strekkiólar, bögglabönd og festingar. Margar gerðir. ÞJONUSTA - GÆÐI - GOTT VERÐ -wwvív œ26- nausf s<'1"562 2262' ------Bæjarhrauni 6. Hafnarfirði. Sími 565 5510.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.