Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Blaðsíða 50
58
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1995
Afmæli
Páll Jónsson
Páll Jónsson, kennari og húsa-
smíöameistari, Orrahólum 7 í
Reykjavík, sem nú dvelur á Hóh viö
Bjamastaði, Hvítársíðu, Mýrars.,
veröur sjötugur á morgun.
Starfsferill
Páll er fæddur á Þorvaldsstöðum,
Hvítársíðu, en ólst aðallega upp á
Bjarnastöðum (1930-54), Hvítársíðu.
Hann sótti farskóla á Hvítársíðu, er
búfræðingur frá Hvanneyri 1956,
lærði húsamíði í Iðnskólanum í
Reykjavík (1958), var í Meistara-
skólanum í Reykjavík (1966) og í
réttindanámi kennara við Kennara-
háskóla íslands (1982).
Páll byggði upp og bjó á Bjarna-
stöðum ásamt foreldrum sínum en
flutti til Akraness 1954 og starfaði
við smíðar víða á Vesturlandi í ára-
tug og byggði m.a. iðnaðarbýlið
Smiðjuholt í Reykholti 1959. Hann
flutti til Reykjavíkur 1964 og stóð
fyrir ýmsum byggingum ásamt
vinnuflokki sínum til 1977 en hóf
þá kennslu við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti og hefur starfað þar síð-
an.
Páll söng með Karlakórnum Svön-
um á Akranesi og síðar með Fóst-
bræörum í Reykjavík um árabil.
Páll hefur þýtt kennslubækur.
Fjölskylda
Kona Páls er Edda Magnúsdóttir,
f. 5.5.1936, húsmóðir. Foreldrar
hennar: Magnús B. Finnbogason,
látinn, húsasmíðameistari, og Lauf-
ey Jakobsdóttir húsmóðir.
Börn Páls og Eddu: Jón Magnús,
f. 22.11.1954, maki Hrafnhildur Hró-
arsdóttir, þau eiga tvo syni, Pál
Vigni og Arnar Má, dóttir Jóns
Magnúsar er Hrafnhildur Harpa;
María Björk, f. 16.6.1956, látin; Finn-
bogi, f. 3.11.1957, maki Hrönn Vig-
fúsdóttir, þau eiga tvær dætur, Guð-
rúnu Eddu og Hönnu Katrínu; Páll
Bjarki, f. 15.11.1959, maki Anna Sig-
urðardóttir, þau eigaþrjú böm,
Ástu Björk, Eyrúnu Ýr og Sigurð;
Erlendur, f. 13.9.1966, maki Guðrún
Harpa Bjarnadóttir, þau eiga eina
dóttur, KristínuMaríu; Þorbjörg, f.
23.3.1968, hún á tvö böm, Óskar Þór
og Eddu.
Systkini Páls: Þorbjörg, f. 1919, d.
1941; Guðmundur Óskar, f. 1929,
bóndi Bjarnastöðum; Ingibjörg, f.
1934, húsfreyja í Borgarnesi.
Foreldrar Páls: Jón Pálsson, f. 11.6.
1883, d. 15.3.1971, bóndi Bjarnastöð-
um, og Jófríður Guðmundsdóttir, f.
10.5.1892, d. 27.5.1982, húsfreyja
Bjamastöðum.
Ætt
Jón var sonur Páls Helgasonar,
b. á Bjamastöðum, og Þorbjargar
Pálsdóttur.
Jófríður var dóttir Guðmundar
Páll Jónsson.
Magnússonar og Friðbjargar Frið-
riksdóttur, síðast búsett á Jaðri í
Kolbeinsstaðahreppi.
Páll verður með miðdagskaffl á
afmælisdaginn í Félagsheimilinu
Brúarási í Borgarflrði.
Bjöm Kristjánsson
með afmælið
27. maí
90 ára 50ára
KristbjömBenjaminBson,
Akurgerði 9, Öxarfjaröarhreppi.
85 ára
Jóhanna Sigmundsdóttir,
Veöramóti, Hofshreppi.
Magnús Jónsson,
Hlíðarfossi, Ytri-Torfustaðahreppi.
Stefán Þórsson,
Árholti 12, Húsavik.
Sigurlaug Markúsdóttir,
Lyngbraut 13, Garði.
Brynjólfur Tryggvason,
LerkÓundi 30, Akureyri.
Hjálmveig Jónsdóttir,
Bleiksárhlíð 35, Eskifiröi.
Arndís Herborg Bj ömsdóttir,
Safamýri83, Reykjavik.
Þorsteinn Pétursson fuiitrúi,
80 ára
Stefania Guðmundsdóttir,
Sléttuvegi 11, Reykjavík.
Þórir Benedikt Sieuriónsson,
fyrrv.deildar-
stjóri,
Vesturbergi8,
Reykjavlk.
Eiginkona
hanserÁsta
SigríðurÞor-
kelsdótör.
Þautakaámóti
gestum á almælisdaginn í sam-
komusal félagsstarfs aldraöra að
Hraunbæ 105 frá kl. 17-19.
Stapasíðu lli,
Akureyri.
Eiginkona
hans erSnjó-
laugÓskAðal-
steinsdóttiraf-
greiðslumaður.
Þautakaámóti
gestum í safn-
aðarheimiIiGlerárkirkjufrákl. 15.
Valdis Hans-
dóttir,
Blikahóluml2,
Reykjavík.
Húnerað
heiman.
Inga Dóra Guðjónsdóttir,
Vogagerði 9, Vogum.
75 ára
Bj arni Stefánsson,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Hallgerður Jónsdóttir,
Tjamarbrú 20, Homafiarðarbæ.
Valgerður Ásgelrsdóttir,
Hafriargötu 40b, SeyðisfirðL
70 ára
Hrefna Svava Guðmundsdóttir,
Fellsmúla 8, Reykjavík.
Sigurður Jónsson,
Túngötul5,ísafirði.
Guðmundur Guðmundsson,
Hraunbæ 176, Reykjavík.
Guðbjörg Fjóla Þorkelsdóttir,
Krummahólum lö.Reykjavík.
Paul Eberhard Heide,
Fannborg 9, Kópavogi.
60 ára
ReynirNfelsaon,
Skólavegi 25, Fáskrúðsfiröi.
Biigir G. Albertsson,
kennari í Langholtsskóla,
LækjarásiS, Reykjavík.
Hann er staddur á Benidorm.
40 ára
Guðrún Sigurðardóttir,
Lundarbrekku4, Kópavogi.
Anna Mikaelsdóttir,
Leirubakka 10, Seyðisfirði.
Magnús Ólafsson,
Sóivallagötu ll, Reykjavík.
SigriðurHrönn Sigurðardóttb:,
Akurgerði llb, AkureyrL
Krístján Kristjónsson,
Brúnalandi 28, Reykjavík.
Hörður Harðarson,
Lækjarfit4, Garöabæ.
Sveinn ómar Eliasson,
Uröarteigi 15, Neskaupstað.
fijörg Guðrún Bjamadóttir,
Vallarhúsum 65, Reykjavik.
Hólmfriður Bjarkadóttir,
Fannafold 154, Reykíavík.
Aðalheiður Stefánsdóttir,
Borgarsíðu 2, Akureyri.
Hún tekur á móti gestum á afinæl-
isdaginn 1 sal Landsbankans á Ak-
ureyri, 4. hæö, frá kl. 16-19.
Sigurjón Hannesson,
Árskógum l7a, Egilsstöðum.
Bjöm Kristjánsson, fyrrv. bóndi
og vitavörður í Skoruvík á Langa-
nesi, nú á dvalarheimilinu Nausti á
Þórshöfn, er áttatíu og fimm ára í
dag.
Starfsferill
Björn er fæddur í Skoruvík á
Langanesi og ólst þar upp. Hann
fékk takmarkaða barnafræðslu eins
og þá var títt í afskekktum sveitum
en er að öðru leyti sjálfmenntaður
en lærði smíðar af föður sínum.
Björn, sem smíðaði margar trillur,
bjó alla sína búskapartíð í Skoruvík
og var þar einnig vitavörður til
margra ára. Þar er mikill reki sem
Björn nýtti eins og hægt var og eins
aflaði hann sjávarfangs á opnum
smábátum. í Skorvíkurbjörgum var
mikil eggjataka en Björn þótti dug-
mikill sigmaður.
Fjölskylda
Björn kvæntist 20.4.1946 Stein-
unni Guðjónsdóttur, f. 26.10.1912,
húsmóður. Foreldrar hennar: Guð-
jón Þórðarson og kona hans, Kristín
Jónsdóttir, þau bjuggu á Jaðri í
Sauðaneshreppi til fjölda ára.
Kjördóttir Bjöms og Steinunnar:
Steinunn Björnsdóttir, f. 10.11.1954,
verkakona á Hofsósi, sambýlismað-
ur hennar er Karel Jakobsson, sjó-
maður.
Systkini Björns: Margrét, f. 29.3.
1884, látin, húsmóðir á Þórshöfn;
Jóhann, f. 29.3.1898, d. 10.6.1983,
sjómaður á Þórshöfn; Helgi Valtýr,
f. 15.3.1904, látinn, verkamaður á
Raufarhöfn og síðar í Hafnarfirði;
Guðmundur, f. 25.10.1907, látinn,
skipstjóri í Vestmannaeyjum lengst
af; Karl, f. 7.8.1911, d. 25.1.1976,
verkamaður og sjómaður á Þórs-
höfn; Ásgrímur Hólm, f. 25.3.1913,
d. 6.7.1987, sjómaður á Þórshöfn
lengst af; Valgerður, f. 2.3.1918, lát-
in, húsmóðir í Reykjavík; Júlíus, f.
18.7.1919, látinn, sjómaður í Vest-
mannaeyjum. Tveir bræður Bjöms,
Skúh og Helgi, dóu í bernsku.
Foreldrar Bjöms: Kristján Þor-
láksson, f. 12.11.1872 í Lækjardal á
Axarfirði, d. 10.3.1961, bóndi í
Skoruvík, og Kristbjörg Helgadóttir,
d. 14.3.1947, húsmóðir. Þau bjuggu
í Skoruvík.
Ætt
Kristján var sonur Þorláks Ein-
arssonar og konu hans, Margrétar
Guðbrandsdóttur. Þorlákur lést er
Kristján var tveggja ára og fluttu
þau þá á Langanes.
Björn dvelur á dvalarheimilinu
Nausti á Þórshöfn og tekur þar á
móti gestum á afmælisdaginn.
Bridge
Mistökin kost-
uðu 800 pund
Áhangendum bridgeíþróttarinn-
ar á íslandi hefir íjölgað með ári
hverju eftir að ísiendingar unnu
heimsmeistaratitilinn í Yokohama
1991.
í keppnum taka fleiri sveitir og
pör þátt, þannig að nýtt og glæsi-
legt húsnæði Bridgesambands ís-
lands verður áreiðanlega of lítið
innan fárra ára. Rúbertubridge
hefir alla tíð verið mjög vinsælt og
líklega spila fleiri rúhertubridge í
heimahúsum heldur en í keppni.
Einnig er vinsælt að spila TOPS,
en þá spila menn forgefm spil og
bera árangur sinn saman við
marga bestu spilara heimsins.
í rúbertubridge leggja menn
gjaman undir og sumir spila í sjóð,
sem síðan er notaður til ferðalaga
eða skemmtanahalds. Allt er þetta
í hófi gert og ekki er mér kunnugt
um aö stórar fjárhæðir. skipti um
eigendur hjá þeim sem stunda rú-
bertubridge.
Erlendis er þessu öðmvísi variö
því þar hafa margir atvinnu af því
aö spila rúbertubridge og skipta þá
gjaman stórar fjárhæöir um eig-
endur á hverju kvöldi og jafnvel í
hverju spili.
í spilaklúbbi í London fyrir stuttu
missti sagnhafi af aukamöguieika
í úrspilinu og mistökin kostuðu
hann 800 pund.
S/Allir
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
♦ Á4
V ÁKD3
♦ ÁG4
+ G1093
* G10863
¥ 94
♦ 5
+ 87652
♦ KD75
Jf G6
♦ 10862
+ áD4
Suöur Vestur Norður Austur
lgrand pass 21auf pass
2 spaöar pass 4grönd pass
5 tíglar pass 6grönd pass
pass pass
Noröur ætlaði 4ra granda sögn
sína sem áskorun en suður tók
hana sem ásaspurningu. Og þegar
suður sýndi ásinn sem vantaði
skaut norður á sex gröndum.
Vestur spilaði út tígulkóng, sagn-
hafi drap á ásinn, fór heim á hjarta-
gosa og spilaði tígulsexi. Vestur lét
sjöið, blindur gosann, meðan aust-
ur kastaði spaðaþrist. Tíu slagir
voru nú í augsýn og tveir í viðbót
urðu að koma í lauflitnum. Sagn-
hafi svínaöi því laufadrottningu.
Vestur drap á laufkónginn og tók
tíguldrottningu - einn niður.
Þar eð sagnhafi þarf einungis
þrjá laufslagi kostar það ekkert,
nema hugsanlegan yfirslag, að
drepa strax á laufás. Eigi austur
laufás er hægt að sækja laufslagina
án áhættu en aukamöguleikinn er
að vestur eigi laufkónginn einspil.
Jafnvel þótt þaö hljóði undarlega
er best fyrir vestur að drepa strax
á tíguldrottningu í þriðja slag og
spila meiri tígli. Nú á sagnhafi 11
slagi en má ekki gefa laufslag.
Hann gæti því freistast til aö spila
með líkunum og svína laufi.
Sérfræðingur í sæti sagnhafa
myndi kafa dýpra. Ef hann tekur
tígulgosa, þrjá spaðaslagi og tígul-
tíu og síðan hjartaslagina endar
austur á spaðagosa og einspili í
laufi. Sagnhafi getur þá spilað
laufaás í tólfta slag með öryggi.
En ef vestur drepur á tíguldrottn-
ingu og rýfur samgang sagnhafa
meö því að spila hjarta. Nú getur
sagnhafi drepið á hjartadrottningu,
tekið hjartaás og tígulgosa og heim
á laufás. Síðan tekur hann tígultíu,
inn á spaðaás í bhndum og þá hjar-
takóng. Þar eð laufkóngurinn kom
í ásinn voru erfiðleikamir að baki
en heföi austur átt laufkóng var
hann í kastþröng í svörtu litunum.
Sannarlega áhugavert spil og
vonandi hefir sagnhafi haft efni á
því að borga 800 pund fyrir mistök-
in.
f 108752
♦ KD973