Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Side 12
12
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
Erlendbóksjá
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Tom Clancy:
Oebt of Honor.
2. Celeb Carr:
The Alienist.
3. Michael Crichton:
Congo.
4. John Grisham:
The Chamber.
5. Carol Shields:
The Stone Diaries.
6. Nancy Taylor Rosenberg:
First Offense.
7. Mary Higgins Clark:
Remember Me.
8- Sandra Brown:
Charade.
9. Elizabeth Lowell:
Only Love.
10. Anne Rivers Siddons:
Downtown,
11. Steve Martini:
Undue Influence.
12. Jackie Collins:
Hollywood Kids.
13. Roger MacBride:
Assault at Selonia.
14. Meave Binchy:
Circle of Frlends.
15. Jack Higgins:
On Dangerous Ground.
Rit almenns eðlis:
1. J. Lovell & J. Kluger:
Apollo 13.
2. B.J. Eadíe 8i C. Taylor:
Embraced by the Light.
3. Mary Pipher:
Revivíng Ophelia.
4. Maya Angelou:
I Know why the Caged Bird
Sings.
5. Thomas Moore:
Care of the Soul.
6. Hope Edelman:
Motherless Daughters.
7. M. Knox 8t M. Watker:
The Private Diary of an O.J.
Juror.
8. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
9. Bailey White:
Mama Makes up Her Mind.
10. Thomas Moore:
Soul Mates.
11. Delany, Delany 8t Hearth:
Having Our Say.
12. Laurence Leamer:
The Kennedy Women.
13. A. Toffler 8. H. Toffler:
Creating a New Civilization.
14. Nicholas Dawidoff:
The Catcher Was a Spy.
15. Nathan McCall:
Makes Me Wanna Holler.
(Byggt á New York Times Book Review)
Tekist á við
ebola-veiruna
Talið er að HlV-veiran, sem leiðir
til eyðni, hafi fyrst borist í menn
suöur í Afríku, en þar er þessi alvar-
lega veiki víða orðin landlæg.
En þótt sú veira sé ógnvænleg, ekki
síst vegna þess að við henni hefur
ekki enn fundist nein lækning, þá er
hún aðeins ein af mörgum „nýjum“
veirum sem stökkva milli dýra og
manna þar suður frá.
Nú í sumar komst svokölluð ebola-
veira í fréttimir, en hún olli hundr-
uðum dauðsfalla í Afríkuríkinu Za-
ire. Þessi veira er ógnvænleg fyrir
þar sakir hversu fljótt hún vinnur á
fórnarlömbum sínum. Einhver orð-
aði það svo að það sem HIY-veiran
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
gerði í mannslíkamanum á tíu árum
„afrekaði" ebola-veiran á aðeins tíu
dögum.
Rústar líkamann
En ebola-faraldurinn í Zaire nú er
engan veginn fyrsta innrás þessarar
veiru í líkama manna.
Eins og rækilega er rakiö í bókinni
The Hot Zone hefur ebola-veiran gert
vart við sig nokkrum sinnum á síð-
ustu tveimur áratugum. Fyrst í Zaire
A I KRRIFYIN’G TRUE STORY
RKiiARD PR.EST0N
og síðan í nágrannaríkinu Súdan.
Og hugsanlega í fleiri ríkjum Afríku,
þótt það hafi ekki sannast.
Dauðdagi þess fólks í Afríku sem
fékk ebola-veiruna var óskaplegur.
Veiran margfaldast afar íljótt í
mannslíkamanum: breytir blóði,
æðum, innyflum og flestum öðrum
hlutum líkamans í óteljandi afrit af
sjálfri sér á örfáum dögum.
Lýsingar Prestons á þessu ferli eru
ógnvekjandi og líkjast einna helst
hugmyndaríkri fantasíu vísinda-
sagnahöfundar. En þær eru því mið-
ur sannar og skýra hvers vegna
ebola-veiran vekur slíkan óhug sem
. raun ber vitni. Það hefur verið orðað
svo að hún hreinlega éti upp hold og
blóð sjúklinganna á mettíma.
Uppruninn óþekktur
Það eykur á áhyggjur manna af
ebola-veirunni að vísindamönnum
hefur ekki enn tekist aö komast að
því hvaðan hún kemur.
Þó er vitað til þess að hún hefur
borist með öpum sem fluttir eru tug-
þúsundum saman heimsálfa á milli
vegna læknisfræðilegra tilrauna af
ýmsu tagi.
Verulegur hluti bókar Prestsons
fjallar einmitt um það hvernig
ebola-veiran barst til Bandaríkjanna
með öpum sem keyptir voru frá
Filippseyjum. Bandarísk stjómvöld
gripu til róttækra ráðstafana þegar
vitnaðist um komu veirunnar til
Ameríku og drápu mörg hundruð
apa sem ýmist höfðu fengið veiruna
eða komist í námunda við sýkta apa.
Sú uppákoma varö reyndar kveikja
að nýrri spennukvikmynd sem nefn-
ist Outbreak og fjallar um baráttu
gegn veiru af þessu tagi.
Þótt verið sé að lýsa raunveruleg-
um atburðum í The Hot Zone er frá-
sögnin eins og hörkuspennandi reyf-
ari sem ógerlegt er að leggja frá sér
fyrr en við bókarlok.
THE HOT ZONE.
Höfundur: Richard Preston.
Anchor Books, 1995.
Metsölukiljur
Bretland
Skáidsögur:
1. Patricia D. Cornwell:
Ths Body Farm.
2. Maeve Binchy:
The Glass Lake.
3. Jeffrey Archer:
Twelve Red Herrings.
4. Anais Nin:
A Model.
5. Gabriei Garcia Marquez:
Bon Voyage. Mr. President.
6. John Grisham:
The Chamber.
7. Oscar Wilde:
The Happy Prince.
8. Italo Calvino:
Ten Italian Folk Tales.
9. Anton Chekhov:
The Black Monk.
10. Roald Dahl:
A Lamb to the Slaughter.
Rit almenns eðlis:
1. Albert Camus:
Summer.
2. Sigmund Freud:
Five Lectures on
Psycho-Analysis.
3. Marcus Aurelius:
Meditations.
4. Virginia Woolf:
Killing the Angel in the House.
5. James Herriot:
Seven Yorkshire Tales.
6. Paul Theroux:
Down the Yangtze.
7. Kahlil Gibran:
Prophet. Madman, Wanderer.
8. Elizabeth David:
l'll Be with You in the
Squeezing of a Lemon.
9. Camilte Paglia:
Sex and Violence, or Nature
and Art.
10. Dirk Bogarde:
From Le Pigeonnier.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
1. Juliane Preisler:
Kysse Marie.
2. Jung Chang:
Vilde svaner.
3. Jostein Gaarder:
Sofies verden.
4. Jorn Riel:
En underlig duel.
5. Hanne-Vibeke Holst:
Til sommer.
6. Kirsten Hammann:
Vera Winkelwir.
7. A. de Saint-Exupéry:
Ðen lille prins.
(Byggt á Politiken Sondag)
Vísindi
Slæm tíðindi fyrir sólbaðsfíklana:
UVA-geislar sólar eru
engin meinleysisgrey
Eins gott að passa sig vel þegar farið er á sólarströnd.
Sífelltmeiri
rigning
Úrkoman á tempruðum land-
svæðum á norðurhveli jarðar
hefur aukist jafnt og þétt á þess-
ari öld. Aukningin er þegar orðin
tíu prósent og er búist við að
fratnhald verði á.
Það er enskur veðurfræðingur,
Mike Hulme, sem hefur komist
að þessari niðurstöðu eftir að láta
tölvu greina veðurlýsingar frá
átta þúsund veöurathugunar-
stöðvum.
Úrkoman á hitabeltissvæðum
norðan miðbaugs hefur minnkað
samsvarandi á sama tíma en
löndin milli 23. og 50. gráðu norð-
lægrar breiddar virðast hafa
haldið sínu óbreyttu.
Meðalhítinn hefur hækkað um
háJfa gráðu en ekki er vitað hvort
gróðurhúsaáhrifum er um að
kenna eöa hvort orsakarinnar er
að leita í mismikilli sól.
Finnarvilja
flýtimeðferð
Finnskt líftæknifýrirtæki hefur
óskað eftir þvx að bandaríska
matvæla- og lytjaeftirlitið hraöí
umíjöllun sinni um nýja meðferð
viö insúlínliáðri sykursýki.
Aöferðin byggir á því að græöa
frumur, sem framleiða insúlin, í
sjúklinga. Það hefur sýnt sig að
hægt er að halda falóðsykurshlut-
fallinu eölilegu án þess að sjúkl-
ingar sprauti í sig insúlíni.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Norski lífefnafræðingurinn Hilde
Bánrud flytur sóldýrkendum þessa
heims heldur slæmar fréttir. Þaö
bendir jú allt til þess aö svokallaðir
UVA-geislar sólarinnar séu ekki eins
meinlausir og af hefur verið látið
heldur geti þeir þvert á móti orsakað
slæm tilfelli af húðkrabba.
Þetta eru niðurstöður Hilde
Bánrud í doktorsritgerð sem hún
varði fyrir skömmu og fjallaði um
áhrif UVA-geisla á frumur. Bánrud
hefur áður birt greinar í þekktum
vísindatímaritum í Bretlandi og
Bandaríkjunum og hefur vinna
hennar vakið alþjóða athygli.
Það hefur sýnt sig að húðkrabba-
meinstilfellum í Noregi hefur ekkert
fækkað þrátt fyrir að landsmenn séu
sífellt að smyría á sig betri og betri
sólaráburð.
Sólargeislarnir sem verma á okkur
kroppinn á fógrum sumardegi skipt-
ast í tvo hópa. Annars vegar eru svo-
kallaðir UVA-geislar og hins vegar
UVB-geislar. Hættan á húðkrabba
samfara hinum sterku UVB-geislum
hefur verið þekkt í mörg ár. Snyrti-
vörufyrirtækjum hefur smám saman
tekist aö þróa sólaráburði sem úti-
loka áhrif UVB-geisla sólarinnar og
koma í veg fyrir að viö sólbrennum.
Engu að síður fá tíu þúsund Norð-
menn húðkrabba á ári hverju, þar
af eru níu hundruð tilfelli af illkynj-
uðu tegundinni.
Hilde Bánrud telur hins vegar aö
mesta hættan á húðkrabba tengist
UVA-geislunum.
„Niðurstöður rannsókna minna
sýna nefnilega verulegar frumu-
breytingar af völdum UVA-geisla.
Margar frumur mynda tvo kjarna
með erföaefninu DNA eftir að hafa
orðið.fyrir áhrifum UVA-geisla en í
eölilegu ástandi eiga frumur aðeins
að hafa einn kjarna. Þessar frumu-
breytingar geta verið orsakimar að
myndun húðkrabba," segir Hilde
Bánrud.
Hún er þeirrar skoðunar að sól-
kremin, sem vemda fólk svo vel gegn
UVB-geislunum, veiti falska öryggis-
tilfinningu. Krem þessi séu svo góð
að við getum allt að því verið eins
lengi úti í sólinni og við kærum okk-
ur um án þess að brenna. Líkaminn
sendir ekki frá sér boð um að hann
hafl fengið nóg.
Hilde Bánmd segist þó alls ekki
vera nein öfgamanneskja. „Sólböð í
hófi og með góðri vöm eru heilsu-
samleg fyrir líkamann," segir hún.
Nýtt ástand
efnisins
Vísindamönnum hefur tekist að
kæla atóm frumefnisins rúbíd-
íum svo mikið niður að þau þétt-
ust saman í eitt stórt ofuratóm
sem hegöar sér allt öðruvísi en
annað efni.
Atómin voru kæld niður í 170
milijarðasta hluta úr gráðu ofar
alkulí. Þaö er þrjú hundrað sinn-
um lægra hitastig en vísinda-
mönnum hefur tekist að ná til
þessa. Jaftivel flarlægustu hom
alheimsins eru þúsund milljón
sinnum hlýrri en þetta. Alkul
verður við mínus 273,15 gráður á
celsíus en við þaö hitastig er eng-
in hreyfing í efninu og það gefur
ekki frá sér neinn varma. Það
mun hins vegar ekki vera hægt
að kæla efni niður í alkul.
Albert Einstein hafði séð fyrír
hið nýja ástand efnisins fyrir sjö-
tíu ámm.
Ekki útdauð-
irenn
Á Seychelles-eyjum í Indlands-
hafl hafa nú uppgötvast tvö karl-
dýr af risaskjaldbökutegund sem
ekki var vitað tíl að lifði annars
staöar en á Aldabra-eyjum og sem
allir töldu að hefði dáið út í kring-
um árið 1840.
Karldýrin tvö voru snarlega
friðuð en nú ríður á að finna
handa þeim kvendýr.
Skjaldbökur voru með fyrstu
dýrunum til að hverfa þegar sæ-
farendur fyrr á öldum tóku land
á eyjum út um heim allan í leit
að fersku kjöti til að næra sig á
á langferðum sínum.