Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
13
Ægir Mar Kárason, DV, Suðumesjum;
Elsti bakarinn á Suðumesjum, Val-
geir Þorláksson, hélt nýlega upp á
tvöfalt afmæli. Bakaríið hans, Val-
geirsbakarí í Njarðvík, varð 25 ára
og sjálfur átti hann 50 ára afmæh.
í gegnum árin hefur Valgeir bakað
margar brauðtegundir. „Nú eru
komin þessi góðu súrdeigsbrauð sem
eru tvímælalaust komin til að vera.
Þetta eru tískubrauðin í dag og mik-
il heiisubrauð. Þessum brauðum hef
ég. mikla trú á,“ segir Valgeir um
súrdeigsbrauðið sem hefur vakið
mikla athygli á Suðurnesjum og við-
ar.
Brauðinu, sem er gerlaust og fitu-
laust, hefur verið vel tekið enda fjölg-
ar þeim landsmönnum ört sem hugsa
meira um línumar og gæta aö því
hvað þeir setja ofan í sig. Valgeir
reynir aö breyta uppskriftinni tvisv-
ar í viku til að fá annað bragð en
heldur sömu uppbyggingunni á súr-
deigsbrauðinu. Hann segir þó að
menn megi ekki gleyma fransk- og
heilhveitibrauðunum. Þau séu ekki
óhoh enda séu miklar trefjar í þeim.
„Það em margir sem kaupa eingöngu
heilsubrauðin. Við seljum einnig
mikið af tertum og vínarbrauðum
sem fólk verður alltaf annað slagið
að leyfa sér að fá. Fólk fær sér þá
bara einn góðan göngutúr á eftir.“
Valgeir hefur verið í faginu frá því
hann var 15 ára. Hann er uppalinn á
Húsavík en flutti 25 ára gamall til
Njarðvíkur, en þaðan er konan hans,
Magdalena Olsen, með innbú úr bak-
aríi sem hann hafði keypt. Þau hjón-
in hófu rekstur á Valgeirsbakaríi og
leigöu til að byrja með 104 fermetra
húsnæöi. Síöan keyptu þau hús-
næðið og fyrir 10 árum byggðu þau
nýtt 300 fermetra bakarí við hhðina
á því gamla. Gamla húsnæöið gáfu
þau björgunarsveitinni í Höfnunum
og er það notað sem björgunarskýh.
Fyrstu árin unnu þau Valgeir og
Magdalena tvö í bakaríinu og af-
greiðslunni en nú eru breyttir tímar
og starfsmennimir eru orðnir ellefu.
Það hefur ekki farið fram hjá neinum
hvar bakaruð er til húsa í Njarðvík.
Þar er byrjað að vinna eldsnemma á
morgnana og hefur ilmurinn vakið
marga Njarðvíkinga með bros á vör.
Þeir em einnig margir sem ekki geta
keyrt fram hjá bakaríinu án þess að
fá sér eitthvert góðgæti þar.
radiomidíin.
Grandagarði 9 • Sími 511 1010
Valgeir Þorláksson bakari i Njarðvik.
DV-mynd Ægir Már
28" LITASJONVARP
. .
4F Hágœða Surround
Nicam-Stereo!
_ slibroijwd
^ sama
VERÐl!
Nicam Stereo
Surround-hljómgæöi
íslenskt
textavarp
Super Planar
myndlampi
og margt fleira...
ALLT ÞETTA
FYRIR AÐEINS
69.800
STGR.
SÍÐUMÚLA 2 - SÍMI 568 9090
U RÐ
elsta bakarans
Tvöfalt afmæli
AUKAHLUTIR