Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Side 18
18
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
Dagur í lífl Áma Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Heilsustofnunar NLFÍ:
Haldið upp á
40 ára afmæli
Ég vaknaöi aö vanda vel fyrir
klukkan sjö. Á meðan ég var í sturtu
hringdu stöllur frá gömlu gufunni
(Ríkisútvarpinu) og spurðu mig
spjörunum úr um 40 ára afmæli
Heilsustofnunar NLFÍ sem var þenn-
an dag. Raunar þurftu þær ekki aö
spyrja mig spjörunum úr því ég sat
á adamsklæðunum á meðan ég svar-
aði þeim. Fékk mér kjarngóöan
morgunverð og saknaði Moggans.
Var kominn á skrifstofuna rúmlega
hálfátta.
Því miður hafði veðurspáin staöist.
Það var byrjað að rigna. Við höfðum
skipulagt afmæhsgleði starfsmanna
og ijölskyldna þeirra í Þrastalundi
en nú varð að breyta því í skyndi.
Varaskeifan var stóra tívoh-húsið.
Þangað fór hð vaskra manna til aö
gera klárt fyrir kvöldið. Ég hafði
samband við Jón Ragnarsson á Hótel
Örk. Hann lánaði okkur borð og stóla
með brosi á vör. Og sama gerði Ólaf-
ur í Húsinu á sléttunni. Valdimar í
Kjörís bjargaði ísmálum barnanna.
Allir voru boðnir og búnir til að að-
stoða. 300 manna veisla hafði verið í
undirbúningi nokkurn tíma og nú
var allt tilbúið um miðjan dag. í hug-
anum fagnaði ég og þakkaði kosti lít-
ils samfélags og samhjálpar.
Áhyggjur af
þrastahreiðri
Fyrir hádegi komu til mín nokkrir
dvalargestir og starfsmenn til að
ræða margvísleg mál. Elskulegur
eldri maöur hafði af því nokkrar
áhyggjur að þrastarungar í hreiöri í
blómakörfu utandyra kynnu að detta
niður og meiöast og þá kannski að
köttur næði í þá. í vor hafði varp
misfarist hjá þrastarhjónum en þau
byrjuðu bara aftur dvalargestum til
ómældrar ánægju. Þroski og vöxtur
unganna haföi verið uppspretta um-
ræðna og gleði.
Um miðmorgun fór ég yfir rekstr-
aryfirlit fyrstu sex mánaða. Launa-
kostnaður hafði hækkað verulega
vegna kjarasamninga og afleysinga í
sumarleyfum. Stofnunin er á fostum
fjárlögum og allur rekstur í járnum.
Ég ýtti áhyggjunum frá mér í trausti
þess að fjármálaráðuneytið bætti
kostnað vegna samninga sem það
gerði sjálft. Ég fór yfir innlagnahsta.
Aht fullt, um 160 dvalargestir og
margir á biðhsta. Kannaði trygginga-
mál vegna listaverka Þorbjargar
Pálsdóttur og Hannesar Lárussonar.
Þau sýna verk sín á 40 ára afmælis-
sýningu NLFÍ og lífga mjög upp á
húsakynni og nágrenni. Sýningin
verður formlega opnuð á sunnudag
og fjölda manns boðið. Síðan hafði
ég samband við vin minn, Baltasar
hstmálara, sem var að ljúka við mál-
verk af Jóni Guðmundssyni yfirsmið
sem hér hefur starfað síðan 1953, í
tvö ár áður en stofnunin tók til
starfa. Við afhjúpuöum myndina
inni í borösal klukkan hálftólf, að
viðstöddum íjölda starfsmanna. Mál-
verkið reyndist einstaklega vel gert,
eitt besta verk sem ég hef séð eftir
Baltasar - glettið brosið hans Jóns
og vinnulúnu hendurnar. í öllu sínu
lítillæti og andúð á hégóma held ég
að Jóni hafi hkað myndin vel.
Ræöa í hádegi
í hádeginu var hátíöarmatur: lax
og margs konar góðgæti annað. Ég
ávarpaði dvalargesti og minntist
brautryðjandans, Jónasar Kristjáns-
sonar læknis, sem hafði forgöngu um
smíði og rekstur Heilsustofnunar og
boðaði nýja lífshætti og forvarnir í
heilbrigðismálum. Eftir hádegi gekk
ég frá nokkrum atriðum vegna hjól-
reiðakeppni sem var haldin daginn
áður og tókst vel. Hún var háð í til-
efni afmælisins. Þá skoðaði ég tilboð
í bónvinnu. Mestur hluti síðdegisins
fór í undirbúning kvöldsins.
Fúll í lauginni
Um hálfsexleytið fór ég í bestu laug
á íslandi, laugina í Laugaskarði. Þar
tókSt nokkrum útlendingum að
koma mér í illt skap. Þeir óðu inn í
búningsklefa á gönguskónum og ætl-
uðu út í laug án þess að þvo sér. Ég
gerði þeim grein fyrir reglum um
sápuþvott á kroppi en þeir urðu bara
fúhr. Flestir þvoðu sér þó. Einn neit-
aði alveg að fara úr skýlunni. Hann
tók sápu ogþvoði sér á milh fótanna
í skýlunni. Eg var ennþá argur þegar
ég lagðist í' heita pohinn. Þá kom
maður, sem mér sýndist ekki hafa
þvegið sér, og lagðist niður meö
sæluhljóðum. Ég sagði stundarhátt
við konu mína og aðra sem ég þekkti
Árni Gunnarsson hafði i nógu að snúast að halda upp á afmæli NLFÍ.
að hér væri kominn einn sóðinn í
viðbót. Þá kallaði sóðinn á htinn son
sinn og talaði íslensku. Að auki var
hann sápuþveginn frá hvirfli til ilja.
Konumar hlógu svo mikið að þær
sáu þann kost vænstan að forða sér.
Ég varð í framan eins og karfi með
andarteppu. Þegar ég kom úr laug-
inni hitti ég fararstjóra útlending-
anna, elskulega stúlku sem baðst af-
sökunar á því að hafa gleymt að
brýna fyrir ferðamönnunum að fara
eftir baðreglum. Útlendir kólígerlar
eru ekkert betri en innlendir.
Fullt í tívolíhúsinu
Um klukkan sjö vorum við komin
í tívolíhúsið og aht fyhtist af gómsæt-
um mat sem matreiðslumaðurinn
okkar, Francois Fons, hafði útbúið
með aðstoð afmælisnefndarinnar
sem Jóna Einars stýrði með bravúr.
Alhr borðuðu vel og lengi og síðan
hófst dagskrá fyrir börnin sem stóð
langt fram eftir kvöldi. Sigga Krist-
jáns hjúkrunarfræðingur hafði
skipulagt leiki og fórst það vel úr
hendi, enda skáti. Ég held að alhr
hafi skemmt sér vel og verið ánægð-
ir með kvöldið. Þegar allir voru farn-
ir heim gengum við frá og þrifum
eftir okkur. Ég var kominn í rúmið
rétt eftir miönætti, ætlaði að lesa
Newsweek en sofnaði með blaðið í
höndunum. Þetta var góður dagur
með góðu fólki. Hvers meira er hægt
að krefjast?
Finnur þú fimm breytingar? 320
Mundu það, Júlíus: Viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér,
sama hvað hann er vitlaus, Ijótur, smekklaus og dónalegur.
Nafn:.
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruðustu og
átjándu getraun reyndust vera:
1. Ingibjörg Guðmundsdóttir 2. Borghildur Flórentsd.
Smáragrund 7 Krummahólum 33
531 Hvammstangi 111 Reykjavík
Myndimar tværvirðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er aö gáð
kemur í Ijós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þúþessi fimm atriöi
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að
verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmiðstöö-
inni, Síðumúla 2, Reykjavík.
2. verðlaun:
Örvalsbækur. Bækurnar sem eru í verð-
laun heita Likþrái maöurinn og Athvarf
öreigans, úr bókaflokknum Bróðir Cad-
fael, aö verðmæti kr. 1.790. Bækurnar eru
gefnar út af Frjálsrí flölmiölun.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú finun breytingar? 319
c/oDV, pósthólf 5380
125 Reykjavík