Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Side 25
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
25
- en Kramnik hafði betur í baráttunni við Karpov
Stórmótið í Dortmund í Þýskalandi
markar þáttaskil á skákferli yngsta
stórmeistara heims, Peters Leko frá
Ungveijalandi. Þótt Leko sé aðeins
15 ára gamall sýndi hann það og
sannaði á mótinu að hann er enginn
eftirbátur sér eldri og reyndari
meistara. Leko deildi þriðja sæti
ásamt Ivantsjúk en einungis Karpov
og Kramnik urðu ofar.
Umsjón
Jón L. Árnason
23. Re4 Hf7 24. d5!?
leiknum leggur Kramnik lævísa
gildru og Beljavskí gætir sín ekki.
44. -Hxg2+?
Með 44. - Re6 getur svartur veitt
harðvítugt viðnám.
45. Kfl!
í stað 45. Kxg2? Bxí3+ o.s.frv. Nú
eru hins vegar góð ráð dýr. Ein hót-
unin er 46. Hxc6 og næst 47. Kxg2.
Ef t.d. 45. - Ha2 46. Hc7+ Kf8 (46. -
Ke6 47. Rg7 mát) 47. Hd8+ Be8 48.
He7 og mátar. Beljavskí gafst upp.
HelgiÁssvannalla
Góð þátttaka varð á skákmóti Tafl-
félags Reykjavíkur um síðustu helgi,
þrátt fyrir að oft hafi reynst örðugt
að smala til keppni yfir „heitustu"
mánuðina. Nú létu skákáhugamenn
sig ekki vanta, enda njóta helgarmót
félagsins mikilla vinsælda og ekki
var veðrið til trafala.
Helgi Áss Grétarsson stórmeistari
var meðal 44 þátttakenda og hann
gerði sér lítið fyrir og vann alla and-
stæðinga sína, sjö að tölu. Staða efstu
manna varð þessi:
1. Helgi Áss Grétarsson 7 v.
2. Sævar Bjarnason 6 v.
3. Sigurður Daði Sigfússon 5,5 v.
4. -7. Jón Viktor Gunnarsson, Torfi
Leósson, Héðinn Steingrímsson og
Einar Hjalti Jensson 5 v.
þráðlaus
sími frá
Hagenuk
kr. 28.750.-
2^ radiomidun
Grandagarði 9 • Sími 511 1010
Frammistaða Leko er gleðiefni fyr-
ir íslenska skákunnendur, því að
Ungverjinn knái er einmitt væntan-
legur hingað til lands á Friðriksmót-
ið í september. Margir spá því að
Leko verði eitt af stórmennum skák-
listarinnar og segja að frammistaða
hans í Dortumund gefi í raun styrk
Fischers á sama aldri htið eftir. Leko
var meira að segja óheppinn að hafna
ekki einn í þriðja sæti - í lokaumferð-
inni tapaði hann óvænt fyrir
Beljavskí, sem fram að því hafði
kannað hafsbotninn.
Taflið í Dortmund tilheyrði ungu
mönnunum. Vladimir Kramnik, tví-
tugur, sigraði glæsilega með sjö
vinninga af níu mögulegum og þurfti
aldrei að játa sig sigraðan. Karpov
tókst ekki að sporna við honum, þótt
hann setti á fulla ferð í lokin. í loka-
umferðinni vann Karpov Lautier og
þá héldu margir að sigurinn yrði
hans en Kramnik vann Piket og hélt
þar með efsta sætinu.
Karpov hlaut 6,5 vinninga - hálfum
minna en sigurvegarinn. Ivantsjúk
og Leko fengu 5 v., næstur kom
Lautier, þá Piket og Short, Bareev
og Beljavskí og Lobron rak lestina.
Skoðum hvernig Kramnik vann
Beljavskí í fjörugri skák. Beljavskí
náði að klóra í bakkann eftir mis-
heppnaða byijun en lét svo Kramnik
plata sig.
Hvítt: Vladimir Kramnik
Svart: Alexander Beljavskí
Drottningarbragð.
1. Rf3 d5 2. d4 Rffi 3. c4 e6 4. Rf3 Be7
5. Dc2 0-0 6. Bg5 Rbd7 7. Hdl!? dxc4(?)
Kramnik teflir ekki eins og algeng-
ast er en leikaöferð hans er þó ekki
ný af nálinni. Síðasti leikur Beljavsk-
ís - aö gefa eftir á miðborðinu - sting-
ur illilega í augu. Hvítur er þess albú-
inn að mæta þessu og nú kemst
kóngspeðið fram um tvo reiti í einu
stökki.
Betra er 7. - c6, eða 7. - h6 8. Bh4
c6 eins og Petrosjan lék gegn
Kortsnoj fyrir 36 árum!
8. e4 Rb6 9. h4!? Rfd7 10. Be2 He8 11.
Be3 c612. e5! Rf813. Re4 Bd714.0-0 f5
Svartur hefur komið sér í afar
óvirka aðstöðu og freistar nú þess
að losa um taflið. Þetta tekst honum
að nokkru leyti en í staðinn verður
peðastaðan lasburða.
15. exf6 (framhjáhlaup) gxf6 16. Bh6
Rg6 17. Rc5 Dc7 18. Bxc4 Rxc4 19.
Dxc4 Bf8 20. Bxf8 Rxf8 21. Hfel He7
22. Dc3 Hae8!?
Svörtum hefur tekist að valda e6
tryggilega og þótt hinn gerði leikur
„strandi" á taktísku stefi má vera aö
þetta sé þrátt fyrir allt besta tilraun
svarts. Mögulegt er 22. - Be8 og síðan
Bf7 en svartur sæti þá áfram í óvirkri
vörn.
Stenst ekki freistinguna. Hvítur
hótar 25. RxfB + og vinna skiptamun.
24. - e5 25. dxc6 Dxc6 26. Rd6
Svartur fær nú ekki afstýrt hðstapi
en í staöinn tekst honum að riðla
peðastöðu hvíts og rétta verulega úr
kútnum. Því er áhtamál hvort 24.
leikur hvíts hafi verið réttmætur.
26. - Dxc3 27. bxc3 He6! 28. Rxf7 Kxf7
29. Rd2 Ha6!
Þennan þátt skákarinnar teflir
Beljavskí vel.
30. Re4 Bc6 31. Hd6 Rd7 32. Hedl Ke7
33. H6d2
Betri kóngsstaða í endatafhnu eftir
33. Hxd7+ Bxd7 34. Hxd7+ Kxd7 35.
Rc5+ Kc6 36. Rxa6 bxa6 37. Kfl Kb5
38. Ke2 Kc4 gefur svörtum jafntefli.
33. - Ha3 34. f3 Ba4 35. Hcl Bc6 36.
Rd6 Rc5 37. Rc4 Ha4 38. Re3 Re6 39.
Hcdl Kf7 40. Rf5 Rc5 41. Hd8!?
Beljavskí hefur stiht upp sterkri
víggirðingu en Kramnik reynir að
bijótast í gegn með peðsfóm.
41. - Hxa2 42. h5 Re6 43. Hh8 Rg5 44.
Hc8
Ef 44. Hdd8 er 44. - Ke6! nauðsynlegt
gegn hótuninni 45. Hhf8+ Ke6 46.
Hd6+ Kxf5 47. HxfB mát. Með texta-
1995 -fy
FJÖLSKYLDUSKEMMTUN UM VERSLUNARMANNAHELGINA
3. • 7. ÁGÚST
• X Tívolí U.K
ujju Skemmtisiglingar ss. Árnes
Hestaleiga
Vatnaþotur
Útimarkaðir
Flugeldasýning
^ Gönguferð á Siglunes
/v
Útiskemmtanir fyrir
börn og fullorðna
Landleguböll
Síldarsöltun
Síldarminjasafn
Myndlistarsýning
Harmoníkusveit
I
Miðaldamenn
Gautar
Mbe be
Fílapenslar
Leikfélagið
Kvennakórinn
GÓÐ TJALDSTÆÐI
Svefnpokapláss í skólum og að Hóli
Pantanir í síma 467 1700