Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Side 30
42
LAUGARDAGUR 29. JULI1995
Tíska
Rauður kjóll með rennilás frá Ralph
Lauren.
Ullarkápa niður á kálfa frá Dior.
Það verður allt í lagi að láta brjósta-
haldið sjást á böllunum f haust eins
og í sumar.
Dragt með síðum jakka frá
MaxMara.
Hér kemur nýr tónn, sem verður
sjálfsagt vinsæll meðal unga fólks-
ins, en það er dragt úr einhvers kon-
ar plastefni frá hönnuðinum Önnu
Sui.
Haust- og vetrartískan:
Kvenlegar ullardragtir
í brúnum litum vinsælar
Þaö hefur varla verið veður
hér á landi í sumar til að taka
- upp stuttbuxurnar, ermalausu
bolina og sumarkjólana. Víðast
annars staðar í heiminum hafa
slík föt komið sér vel í hitabylgj-
unni sem fræg er orðin. Það er
þó ekki öll nótt úti enn og við
teljum að minnsta kosti einn
mánuð eftir af þessu sumri.
Þrátt fyrir það eru nú verslan-
ir úti í hinum stóra heimi að
klára sumarútsölur og ekki líð-
ur á löngu uns haust- og vetrar-
tískan verður komin í alla
* verslunarglugga. í erlendum
tískublöðum er þegar farið að
kynna hausttískuna frá París,
Mílanó, New York og London.
Þar boða menn nýja sídd á pils-
um og kjólum og dragtir verða
vinsælli en nokiam sinni fyrr.
Síddin sem verður allsráðandi í
Kvenlegar dragtir í brúnum litum
verða vinsælar í haust.
Og hér er það kasmírullardragt frá Calvin Klein.
vetur er rétt fyrir neðan hné,
stundum situr hún á hnénu en
hjá sumum tískuhönnuðum
nær hún alveg niður á miðja
kálfa.
Kamelbrúnn litur er nokkuð
áberandi og reyndar flestir
mildir brúnir litir. Jakkar eru
aðsniðnir í mittinu, kragar
stækka en þó sjást einnig kraga-
lausir jakkar.
Það er eins og venjulega ýmis-
legt sem fram hefur komið á
tískusýningum. Dimmrauður
litur hefur komið nokkuð mikið
fram á prjónuðum kjólum, káp-
um og jöldcum.
Hinir hefðbundnu haustlitir,
svo sem svart, grátt og dökk-
fjólublátt, sjást einnig. Eitt er þó
öruggt og það er að tískan er
kvenleg, eins og þróunin hefur
reyndar verið að undanfómu.
Ljós ullardragt frá Gianni Versace
sem súpermódelið Linda Evang-
elista klæðist. Ef einhvern langar að
vita það þá kostar dragtin tæp 140
þúsund.