Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Qupperneq 2
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995
DV flnnur myndbandsvél með jólamyndum af bömum Hafsteins og Berglindar.
Síðustu myndirnar sem
teknar voru af börnunum
- ótrúlegt að þetta skuli finnast nú, segir Hafsteinn Númason
_PanQcnnif’ mvndbíiTldsvél. mikiö T
Reynir Traustason, DV, Súðavík
„Þetta er ótrúlegt og stórkostlegt
aö þetta skuli finnast nú. Við vorum
oröin úrkula vonar um að mynd-
bandsvélin fyndist nokkurn tíma,
sagði Hafsteinn Númason í samtali
við DV eftir aö blaðamaöur fann
myndbandsvél hans og Berglindar
konu hans á haugnum á Langeyri
innan Súðavíkur í gær.
DV var á ferð um Súðavík í gær
og lá leið m.a. um Langeyri þar sem
rætt var við Heiðar Guðbrandsson
sem stjórnar hreinsunarstarfi á
haugnum sem hefur aö geyma rústir
húsa og búslóða sem snjóflóðið féll
á. Þegar blaðamaður hugðist taka
mynd af Heiðari á haugnum rak
hann augun í eitthvaö sem glampaöi
á undir broti úr steinvegg. Við nán-
ari skoðun kom í ljós að þar var
Dönsk stúlka
efst í skeiði
Eiríkur Jónsson, DV, Sviss:
Eftir tvo fyrstu sprettina af íjórum
í 250 metra skeiði á heimsmeistar-
mótinu í Sviss er danska stúlkan
Rikke Jensen í fyrsta sæti á hinum
21 vetra gamla Baldri frá Sandhólum.
Tími hans var 22,1 sekúnda og er það
bésti tími hans til þessa. Þetta er jafn-
framt danskt met. Hinrik Bragason
er í öðru sæti á Eitli frá Akureyri á
22,4 sek. Síðari tveir sprettimir verða
famir á morgun.
Stuttarfréttir
Blaöamaður DV átti leið um Súðavík í gær og tann þa myndbandsvel Haf-
steins Númasonar og Berglindar Kristjánsdóttur sem hafði að geyma imnn-
ingar þeirra hjóna um böm sín frá síðustu jólum. Hér sést Heiðar Guð-
brandsson, sem hefur yfirumsjón með leit í haugnum, taka við vélinni og
spólu sem var í henni. Eins og sjá má er upptökuvélin onýt en ekki sa a
spólunni eftir rúma sex mánuði í haugnum. DV-myndir Ro
Panasonic myndbandsvél, mikið
skemmd en upptökuspóla í henni var
heil. Heiðar kannaðist strax viö vél-
ina sem vél Hafsteins Númasonar og
Berglindar Kristjánsdóttur konu
hans sem misstu öll þrjú böm sín í
snjóflóðinu 16. janúar. Hann segir
þetta vera það dýrmætasta sem hægt
hafi verið að finna í haugnum.
„Viö höfum í þessu staríi okkar
veriö að svipast um eftir myndbands-
vélinni sem þau hafa saknað mjög.
Þetta er það dýrmætasta sem hægt
var að finna, það er ekki spurning.
Við erum fyrst og fremst að leita eft-
ir minningum fyrir það fólk sem
missti ástvini í snjóflóðinu,"' segir
Heiðar.
„Þetta eru jólamyndimar af börn-
unum okkar og þær síöustu sem voru
teknar á myndbandsvél. Ég tók þær
á aðfangadagskvöld. Ég er orðlaus
yfir að þetta hefur fundist," segir
Hafsteinn og Berglind kona hans
bætir við aö hún hafi verið búin að
afskrifa vélina þar sem hún hafi ekki
veriö í hlíföartösku þegar snjóflóðið
féll á hús þeirra.
Tveir starfsmenn eru nú við
hreinsunarstörf á haugnum á vegum
Viðlagasjóðs. Mikiö hefur fundist af
munum, svo sem bókum, myndum,
leirtaui, myndbandsspólum og fót-
um. Heiðar segir að þó mikið hafi
unnist þá sé langt í aö sjáist fyrir
endann á starfinu.
„Það verður væntanlega bætt við
átta starfsmönnum á næstunni og
þá er hægt að ljúka þessari hreins-
un, “ segir Heiðar.
Grænt Ijós á sparnað
Stjómamefhd ríkisspítalanna
hefur gefið ftamkvæmdastjórum
spítalanna grænt ljós á að útfæra
nánar þær spamaðarleiðir sem
hún telur hagkvæmastar til að
lækka rekstrarkostnað. Sam-
kvæmt fréttum RÚV er fækkun
starfsfólks meðal þeirra leiða.
Landgræösla rikisins hefur í
sumar dreift 3 tonnum af lúpinu-
fræjum á friðuð landgræðsiu-
svæði landsins. Mbl. greindi frá
þessu.
Verkefnisfreyja óskast
Menntasroiðja kvenna á Akur-
eyri hefur óskaö eftir því að ráða
„verkefnisfreyju“. Samkvæmt
frétt Tímans er hér á ferðinni
brotájafnréttislögum. -bjb
Nauðgari dæmdur af Héraðsdómi Austurlands:
Ársfangelsi fyrir
nauðgun á útihátíð
- virti ekki andmæll 16 ára stúlku og kom fram vilja sínum með ofbeldi
Héraðsdómur Austurlands hefur geirifyrirnauðgun.Aðsögnlögreglu framkærunaogeftuatburðmnþyk-
virtist stúlkan í losti og á mörkum
dæmt Ásgeir Jónsson, 22 ára Djúpa-
vogsbúa, í eins árs fangelsi fyrir að
nauðga 16 ára stúlku á útihátíðinni
Neistaflugi ’94 sem haldin var í Nes-
kaupstaö um verslunarmannahelg-
ina í fyrra.
Málavextir eru þeir að stúlkan kom
á lögreglustöðina í Neskaupstaö að-
faranótt sunnudagsins 31. júlí í fylgd
tveggja vinkvenna sinna og kvaðst
vilja leggja fram kæru á hendur Ás-
NIÐURSTAÐA
Á að leyfa hjónabönd
samkynhneigðra?
Já
þess að fá taugaáfall. Stuttu síðar var
Ásgeir handtekinn af lögreglu.
Við réttarlæknisskoðun á stúlk-
unni og Ásgeiri kom fram að þau
voru bæöi undir áhrifum áfengis. Að
lokinni sýnatöku og skýrslugerð
læknis var kærandi lögð inn á spít-
ala vegna andlegs ástands síns.
í framburði hennar hjá lögreglu
kom fram að hún hefði sagt skilið
við vinkonur sínar tvær, sem seinna
fylgdu henni á lögreglustöðina, um
nóttina. Eftir það hitti hún Ásgeir
sem hún kannaðist lítillega við og
fóru þau að leita sameiginlegs vinar
þeirra. Þótt stúlkan hafi veriö farin
aö ókyrrast endaði fór þeirra við
beitningaskúr við bryggjuna. Þar
inni í myrkrinu á blautu og skítugu
gólfmu kom Ásgeir fram vilja sínum
þrátt fyrir mótspyrnu stúlkunnar.
Stúikunni tókst þó að slíta sig lausa
áður en Ásgeir hafði lokið sér af og
hljóp grátandi til vinkvenna sinna.
Viö læknisrannsókn kom fram að
viö nauðgunina hefði meyjarhaft
hennar rofnað. Auk þess var hún
með áverka á húð við rifbein og á
innanverðum lærum í ljósi þessa og
ástands stúlkunnar þegar hún lagði
Við vorum orðin úrkula vonar um
að myndbandsvélin fyndist nokkurn
tíma, sagði Hafsteinn Númason.
Jónas Haraldsson, fréttastjóri DV,
afhenti Hafsteini spóluna i gær-
kvöldi. DV-mynd GVA
Stuttarfréttir
ir dóminum ljóst að stúlkan hafi orð-
ið fyrir alvarlegu áfalh. Hún hafi frá
upphafi verið samkvæm sjálfri sér í
framburði en Ásgeir hins vegar
breytt framburði sínum við meöferð
málsins hjá lögreglu og fyrir dómi.
Með þetta í huga var munnlegur
framburður stúlkunnar lagður til
grundvahar í málinu.
„Þá ber að hta til þess að kærandi
var óspjöhuð er hinn kærði atburður
gerðist og þykir sá framburður
ákærða ótrúverðugur að hún hafi
óskað eftir sínum fyrstu samfórum í
því umhverfi og með þeim aödrag-
anda, sem ákærði hefur borið um,
ekki síst með tiltiti til þess að ákærði
og kærandi þekktust ekki,“ segir í
dómnum.
Ásgeir hafði áður hlotið dóm fyrir
líkamsárás og ölvunarakstur. Hann
var nú dæmdur í ársfangelsi og til
að greiða stúlkunm 300 þúsund
króna miskabætur. Lögmaður stúlk-
unnar hafði hins vegar krafist 650
þúsund króna miskabóta.
Dóminn kváðu upp Ólafur Börkiu-
Þorvaldsson, Kristjana Jónsdóttir og
Jónas Jóhannsson héraðsdómarar.
-pp
Svínabændur ósáttir
Formaöur svínabænda telur
stuðning viö svínarækt á íslandi
í engu samræmi við þaö sem
haldið er fram í nýrri skýrslu
OECD um íslenskan landbúnað.
Að sögn RÚV eru svínabændur
ósáttastir við reikningskúnstir
OECD.
Togarar mótmæla
Áhafnir 30 íslenskra togara,
sem veitt hafa í Smugunni, hafa
sent frá sér mótmæh við ummæli
norskra sfjórnvalda um að is-
lensk skip sendi út neyðarkall að
ástæðulausu.
FÍB-síminn
Félag ísienskra bifreiðaeig-
enda, FÍB, verður á vaktinni um
helgina með hjálparþjónustu í
síma 562 9999. Upplýsinga- og aö-
stoðarbflar verða á fjölfórnustu
leiðum landsins.
Sigurður Árni ráðinn
Dr. Sigurður Árni Þórðarson
hefúr verið ráðinn verkefnis-
stjóri í safnaðaruppbyggingu
þjóðkirkjunnar til þriggja ára.
Lummur bannaðar
Heilbrigðiseftirht Austurlands
hefur bannað lummubakstur í
torfbænum Sænautaseli á Jökul-
dalsheiði, Að sögn RÚV má ekki
heldur selja ferðamönnum spen
volga kúamjólk.
Stjórnendur Isal og starfsmenn
eru ekki eirn byrjaðir að ræða
breytingar á kjarasamningi þótt
aðeins mánuöur sé þar til ákvörð-
un um stækkun álversins verður
tekin. Þetta kom fram á RÚV.
Kæfa slappinn
Frönsk kæfa er komin í hillur
Hagkaups og hefur sloppiö óá
reitt inn í landið án afskipta yfir-
valda. Stöð 2 greindi frá þessu.
Samband við Andorra
íslensk stjórnvöld hafa tekið
upp stjórnmálasamband við smá-
ríkiðAndorra. -bjb