Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995
Undanfarin ár hefur Nökkvi lækn-
ir farið í framhaldsskóla nokkurn
á Reykjavíkursvæðinu til að ræða
við yngri nemendur um áfengis-
drykkju og fíkniefni. Að loknum
stuttum fyrirlestri hefur hann
spurt hópinn um drykkjuvenjur og
afstöðu tíl áfengis. Flestir virðast
þeirrar skoðunar að gæta beri var-
úðar þegar stígin er glíma eða dans
við Bakkus konung. Fólk er hrætt
við óminni eða blakkát, mörgum
er illa við móral og brennivíns-
dauða og flestir hafa ímugust á af-
rétturum og margra daga drykkju.
Þó virðast allir á einu máh að við-
teknar venjur og hefðir varðandi
áfengisneyslu falh allar úr gildi
eina helgi á ári, sjálfa verslunar-
mannahelgina. Þá er í himnalagi
að drekka sig ofurölvi, fara í
óminni, deyja, fá sér afréttara og
drekka nokkra daga í röð. Þessa
fyrstu helgi í ágúst eiga allir að
sleppa fram af sér beislinu, eyða
miklum peningum, drekka og
skemmta sér ærlega.
Glaðhlakkalegir
kaupahéðnar
Margir kaupahéðnar gera að
sjálfsögöu út á þennan markað
hömluleysis og unglingaæðis.
Nokkrar útíhátíðir eru skipulagðar
til að að stefna saman sem flestum
unglingum og hafa af þeim eins
stóran hluta sumarlaunanna og
hægter.
Með dyggri aöstoð fjölmiðla tekst
yfirleitt að magna upp mikinn
trylhng í kringum þessi hátíðahöld.
Unghngurinn fær þá tilfinningu að
um sé aö ræða „nú eða aldrei ævin-
týri“, þeir sem missi affjörinu nái
sér aldrei á strik í lífinu. Stans-
lausar auglýsingar um útihátíðir
bylja á landsmönnum; þekktir
popparar og alls kyns smástirni
vitna um ágætí ákveðinna staöa og
menn keppast við að yfirbjóöa hver
annan.
Um þessa helgi mun aðalstraum-
urinn vera til Kirkjubæjarklaust-
urs en þangað hefur verið stefnt
einhverjum óþekktum útlendum
hljómsveitum ásamt nokkrum ís-
lendingum til að spila og syngja á
hefðbundnu verslunarmannahelg-
arfylliríi. Framkvæmdastjóri há-
tíðarinnar heitir því sögufræga
„Þá er i himnalagi að drekka sig ofurölvi, fara i óminni, deyja, fá sér
afréttara og drekka nokkra daga í röð.“
Múgsefjun um
verslunar-
mannahelgi
nafni Einar (Örn) Benediktsson.
Nafna hans, stórskáldinu, tókst
fyrr á öldinni að selja útlendingum
norðurljósin og virðist slík ofur-
sölumennska fylgja nafninu að
drengstaula þessum hefur tekist að
æra upp fáheyrða stemningu
kringum þetta helgarskrall. Hann
hefur tryllt fréttamenn og dag-
skrárgerðarmenn upp úr skóm og
sokkum og búið tíl ótrúlegustu
fréttir af þessum „viðburði" til að
skapa sem mesta spennu og eftir-
væntíngu. Landsmenn hafa t.d.
fylgst af athygli með fréttaflutningi
piltsins af „trukknum mikla sem
framleiðir hávaða“. Fréttamenn
hafa ótrauöir gengið erinda hátíð-
arinnar og tíundað samviskusam-
lega alla eiginleika þessa trukks,
ferðakostnað og fararmáta Bjarkar
Guðmundsdóttur og skattlagningu
hátíðarinnar.
Um tíma var þeirri frétt komið á
framfæri að allt yrði fljótandi í
vímuefnum og dílerar landsins
væru á leiðinni á þessa hátíö. Allir
sjá hversu fáránlegar þessar gervi-
fréttir eru enda hafa þær þann til-
gang einan að æra og trylla ungl-
inga svo að þeir fái þá tilfinningu
að um einhvern meiri háttar „við-
burð“ sé að ræða en ekki venjulegt
gamalkunnugt fyllirísskrall á nýj-
um stað. Aðrar hátíðir hafa fallið í
skuggann af ofursölumennsku Ein-
Á læknavakdiuú
ars þessa Benediktssonar og fjöl-
miðlatengslum og sennilega munu
einhveijir sitja uppi með sárt enniö
þegar kvöldar mánudaginn 7. ág-
úst.
Sorgleg þróun
Þessi sérstaða verslunar-
mannahelgar í áfengismenningu
þjóðarinnar er í raun ákaflega
sorglegt fyrirbæri sem oft hefur
dregið á eftir sér alvarlegan og feit-
an dilk. Ófá hörmuleg slys hafa
orðið um verslunarmannahelgi,
alls kyns ofbeldi, þjófnaðir, nauðg-
anir og árásir hafa þrifist í þessu
fyllirísumhverfi þar sem allt er jú
leyfilegt. Fyrir venjulegt foreldri
er þessi barátta algjörlega glötuö.
Lýðskrum og múgsefjun eru svo
algjör að enginn fær rönd við reist.
Fjölmiðlar magna upp slíka
stemningu aö venjulegum unghngi
er vart mögulegt aö standa mótí
straumnum og sitja heima meðan
alhr skunda á útíhátíð til að
skemmta sér ærlega enda eiga
menn að „vera í banastuði alla
helgina" (dauðadrukknir?), að sögn
dagskrárgerðarmanna útvarps-
stöðvanna. Þarna er um að ræða
dæmi um vanmátt einstaklingsins
gagnvart hugarfari, stemningu,
peningagræðgi og tíöaranda sem
trylUr, villir og ærir um stundar-
sakir. Þess vegna mun heillavæn-
legast að leggjast á bæn þessa helgi
og vona að ekkert alvarlegt komi
fyrir og alUr þessir unglingar kom-
istheilirheim.
43
LiTTi
Vinningstölur ,
mldvlkudaginn:
Helldarupphaeð þessa vlku
44.265.630
á ísi.: 1.235.630
fjff irinningur ertvöfaldur næsT
UPfVÍ'SjNGAR, SÍMSVARI «1- «815 11
LUKKUUNA M 10 00-TEXTAVARP 451
■iRT MEO FYRIRVARA UM PREMTVILLUR
Smáauglýsingadeild
///////////////////////////////
Verslunarmannahelgin
Opið:
föstudag frá kl. 9-18
mánudag frá kl. 16-22
Lokað
laugardag og sunnudag
Næsta blað kemur út
eldsnemma að morgni
þriðjudagsins 8. ágúst.
Akið varlega og góða ferð
smáauglýsingadeild
Þverholti 11 - sími 563 2700
Sumar-Þrumuleikur
904-1750
Verð kr. 39,90 mín
Taktu þátt í
skemmtilegum
leik þar sem þú
átt þess kost að
vinna glæsilega
Samsung Max 370 hljónrijækja-
samstæðu að verðmæti kr. 35.900 eða
tíu geisladiskastanda frá Bónus Radíó
að verðmæti kr. 1.490 hver.
Það eina sem þu þarft að gera er að
hringja í 904-1750 og; svara þrem
laufléttum spurningum um hin
fjölbreyttu Sumar-prumutilboð
Bónus Radíó. Svörin við spurningunum
finnur þú í fjögurra síðna
blaðauka frá Bónus Radíó sem
fylgdi DV laugardaginþ 29. júlí.
Allir sem svara
öllum þremur
spurningunum
rétt komast í
pottinn sem d
verður úr föst
11. ágúst.
Þú getur tekið þátt einsk oft
og þú vilt og þannig aukið
vinningsmöguleika þína!
Grensósye
Sími: 5 886 886 Fox:5